Fréttablaðið - 15.11.2006, Blaðsíða 13
Mikið var um
dýrðir í Vestmannaeyjum í gær
þegar því var fagnað að Stórhöfða-
viti er 100 ára. Sturla Böðvarsson
samgönguráðherra var meðal
veislugesta ásamt þingmönnum
kjördæmisins.
Í ræðu Sturlu kom fram að
meðalvindhraði á Stórhöfða er 11
metrar á sekúndu og þar er að
jafnaði logn fjórum sinnum á ári.
Ráðherra og veislugestir skoð-
uðu meðal annars mælitæki í vit-
anum sem er eini mannaði vitinn í
dag. Mælitækin eru notuð til að
mæla mengun sem kemur með
lægðum til landsins. Ástæða þess
að mælitækin eru staðsett á Stór-
höfða er sú að lægðir koma yfirn-
leitt fyrst að Vestmannaeyjum og
sýna þannig hvernig mengun
getur borist að landinu.
Boðið var til kaffisamsætis í
tilefni afmælisins.
Aðeins fjórum
sinnum logn á ári
Í gær fékk Folda-
skóli afhentan Grænfánann sem
er alþjóðleg viðurkenning og stað-
festing á virku umhverfisstarfi.
Kristinn B. Guðmundsson,
skólastjóri í Foldaskóla, segir að
vinna við að fá Grænfánann hafi
staðið undanfarin tvö ár.
„Í tilefni dagsins voru haldnar
ræður og boðið upp á tónlistar-
atriði og veitingar.
Grænfánann fáum við til
tveggja ára en þess má geta að
Hafdís Ragnarsdóttir, sem er
umhverfisfræðingur og kennari
við skólann, leiddi starfið.“
Græna fánanum fagnað
„Þetta var afar
athyglisverð ferð og það var ein-
staklega ánægjulegt að kynnast
starfsemi og verkefnum Þróunar-
samvinnustofnunar í Mósambík,“
segir Sigríður Dúna Kristmunds-
dóttir, sendiherra Íslands í Suður-
Afríku, en hún kynnti sér á dögun-
um starfsemi ÞSSÍ í Mósambík.
Sigríður Dúna segir að ekki hafi
síður verið fróðlegt að kynnast
landi og þjóð og henni sé sérlega
minnisstæð ferð norður til
Inhambane.
„Í Inhambane gafst okkur færi
á að kynnast aðstæðum á vett-
vangi langt inni í skógum Mós-
ambík og verða vitni að því hvern-
ig þróunarverkefni hefur sig til
flugs,“ segir Sigríður Dúna.
Að sögn Mörtu Einarsdóttur,
verkefnisstjóra ÞSSÍ í Mósambík,
er stefna ríkisstjórnar landsins að
auka aðstoð við sveitir landsins og
leggja áherslu á landbúnað en 70
prósent landsmanna búa í sveitum
og hafa einkum lífsviðurværi sitt
af landbúnaði. Markmið kvenna-
og félagsmálaráðuneytisins er að
aðstoða konur og aðra hópa sem
eiga um sárt að binda við að auka
landbúnaðarframleiðslu og ráð-
stöfunartekjur. Marta segir að
verkefnið í Inhambane snúi því
einkum að ekkjum, einstæðum
mæðrum og fjölskyldum með
munaðarlaus börn á framfæri.
Í tilefni af komu Sigríðar Dúnu
Kristmundsdóttur sendiherra og
starfsmanna Þróunarsamvinnu-
stofnunar til Guissembe voru
grasrótarsamtökin formlega
stofnuð með hátíðardagskrá,
dansi, ræðuhöldum og vígsluat-
höfn. Allir þorpsbúar tóku þátt í
dagskránni og sýndu einstaka
gestrisni að hætti heimamanna.
Aðstoð við sveitir
landsins aukin