Fréttablaðið - 15.11.2006, Blaðsíða 70
MARKAÐURINN
Eimskip tók síðasta laugardag við
nýju frystiskipi sem samdægurs
var gefið nafnið Storfoss.
Lára Konráðsdóttir, yfirmað-
ur hjá Eimskip í Noregi, sem
gaf skipinu nafnið, sagði félagið
vilja halda í þá hefð að nefna þau
eftir fossum. Skipið kemur ekki
til með að koma hingað til lands
heldur verður í siglingum milli
Noregs, Englands og Hollands.
Fyrr á þessu ári tók Eimskip við
systurskipi Storfoss, sem heitir
Svartfoss, og á svo von á fjórum
skipum til viðbótar á næsta ári.
Frystiskipið var byggt af
Vaagland Båtbyggeri AS í
Álasundi í Noregi.
Hans Martin Iversen, fram-
kvæmdastjóri Eimskip-CTG í
Noregi, var að vonum ánægð-
ur með nýju viðbótina í flotann
og sagði að þótt Svartfoss hefði
verið flottur, þá væri nýja skip-
ið enn þá flottara. „Nýju frysti-
skipin gera okkur kleift að bæta
þjónustu okkar enn frekar,“
segir hann, en með breyting-
unni kynnir Eimskip-CTG nýja
og bætta siglingaáætlun frá
Noregi til Bretlands og Belgíu og
Hollands.
Félagið býður þannig upp
á aukið flutningsmagn á hrað-
skreiðustu frystiskipunum og
hönnun þeirra er þannig að losun
og lestun tekur skemmri tíma en
hjá sambærilegum skipum. Í stað
þess að lyfta vörum upp í skipið
er síðuport þess opnað og keyrt
með bretti beint inn í frystilestir
á þremur hæðum, en lyfta gengur
á milli þeirra. Storfoss er blanda
af frysti- og gámaskipi og er 80
metra langt og 16 metra breitt.
Hámarksganghraði þess verður
16 sjómílur á klukkustund og
burðargeta er 2.500 tonn. Skipin
geta borið 1.800 bretti og tæplega
þrjátíu 40 feta gáma á þilfari.
Með nýrri siglingaáætlun
sem þegar er komin í gang getur
Eimskip boðið reglulega gáma-
þjónustu frá norðurhluta Noregs
til Bretlands og Hollands, en
slík þjónusta segir Bragi Þór
Marinósson, yfirmaður Norður-
Atlantshafssviðs Eimskips,
vera nýmæli í Norður-Noregi. Í
Hollandi og Bretlandi tengist svo
flutningaleiðin inn á alþjóðlegt
flutninganet Eimskips sem teyg-
ir sig nú um allan heim.
Bragi segir stórkostlegt hafa
verið að fá að taka þátt í gríð-
arlegum vexti félagsins síðustu
tvö árin, en á þeim tíma hefur
Eimskip bætt við sig fjölda félaga
og eflst mjög. „Við ætlum að
vera öflugasta félagið á Norður-
Atlantshafi,“ segir Bragi og kveð-
ur einstakt hvernig félagið getur
nú boðið hitastýrða flutninga í
tengslum við net kæligeymsla
um heim allan. Hann segir nýju
skipin svo bjóða upp á mikinn
sveigjanleika í því að þótt þau
flytji frosinn fisk frá Noregi, geti
þau tekið til baka nánast hvað
sem er, svo sem þungaflutninga,
sérhæfðar vélar eða hvað eina
annað.
„Eimskip rekur núna um 157
starfsstöðvar í Evrópu, Norður-
og Suður-Ameríku og Asíu.
Félagið er með 40 til 50 skip í
rekstri, um 1.350 flutningabíla og
yfir 100 kæli- og frystigeymsl-
ur. Starfsmenn félagsins eru um
8.500 talsins,“ segir Bragi Þór.
- óká
15. NÓVEMBER 2006 MIÐVIKUDAGUR18
F Y R S T O G S Í Ð A S T
Storfoss er nýjasta viðbótin í
ört stækkandi flota Eimskips
Adams • BabySam • Bæjarins bestu pylsur • Ben&Jerry´s • Benetton & Sisley • Bianco • Blend • Blómaval • Body Shop
Breytilegt saumastofa • Brilliant • BT • Burger King • Byggt og búi› • Café Adesso • Carat - Haukur gullsmi›ur • D‡raríki› • Change
Coast • Debenhams • Dorothy Perkins • Dótabú›in • Drangey • Dressmann • energia bar • Ecco • Exit • Eymundsson • Evans • Fatahreinsunin
Hra›i • Gullsmi›ja Óla • Hagkaup • Hans Petersen • Herragar›urinn • Hestar og menn • Hjörtur Nielsen • Home Art • Hygea
Ice in a bucket • Intersport • Isis • Ís-inn • Jack & Jones • Joe Boxer • Jói Fel • Kaupfélagi› • Levi´s • Líf og list • Lukkusmárinn • Lyfja • Meba-
Rhodium • nammi.is • Nings Wokbar • Nóatún • Nova Bossanova • Oasis • Office 1 • Only • Optical Studio RX
Optical Studio Sól • Ormsson • Ozio • Pizza Hut • Retro • Saumur og merking • Síminn • Skífan • Skór.is • Smára skóari • Smárabíó • Steinar
Waage • Söstrene Grene • T.G.I. Friday’s • Te & kaffi • Tiger • Top Man • Top Shop • Tous • Útilíf • Vero Moda • Veröldin okkar • Vila • Vodafone
Zara • Zink
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
24
50
6
JÓLAGJAFAKORT SMÁRALINDAR ER HIN FULLKOMNA GJÖF
YFIR MILLJÓN GJAFIR
Rafræna gjafakorti› í Smáralind er jólagjöf sem hittir í mark hjá
starfsmönnum jafnt sem vi›skiptavinum. Haf›u samband vi› fljónustudeild
Smáralindar í síma 528 8000 og panta›u gjafakort, sérmerkt flínu fyrirtæki.
Gegn vægu gjaldi pökkum vi› kortinu í fallega gjafaöskju.
Opi›: mán, flri, mi› 11-19, fim 11-21, fös 11-19, lau 11-18, sun 13-18 / 528 8000/ smaralind.is