Fréttablaðið - 15.11.2006, Blaðsíða 68

Fréttablaðið - 15.11.2006, Blaðsíða 68
MARKAÐURINN Hólmfríður Helga Sigurðardóttir skrifar Á Krókhálsinum í Reykjavík er Ráðningarþjónustan starf- rækt sem, eins og nafnið gefur glögglega til kynna, er sérhæfð í ráðningum og þjónustar jafnt fyrirtækja sem umsækjendur. Ráðningarþjónustan var sett á fót árið 1995 en María Jónasdóttir, núverandi eigandi fyrirtækisins, tók við því í apríl árið 2005. Hjá þjónustunni vinna, auk Maríu, fjórir ráðgjafar og túlkar vegna erlends vinnuafls. Pólsku túlkur- inn er án alls vafa sá sem mest hefur að gera, enda eru, eins og allir vita, Pólverjar orðnir umtalsverður hluti íslensku þjóð- arinnar. Meðal þeirra tækja sem Ráðningarstofan notar til að velja hæfasta einstaklinginn í vissa stöðu er persónumat frá Insight Learning and Development sem víða er notað á ráðningarstof- um eða í um þrjátíu löndum. Það er notað sem valmöguleiki á lokastigum ráðninga og gefst þá nokkrum af hæfustu umsækj- endunum kostur á að taka þetta próf sem byggist á hundrað spurningum og 7.200 fullyrðing- um sem liggja þar að baki. Þetta segir María ótrúlega áhrifaríka leið og útkoman sé nánast lýs- ing á manneskju eins og ein- hver hefði fylgst með henni frá blautu barnsbeini. „Ég hef gert þetta sjálf og mig rak í rogastans þegar ég las þetta, svo nákvæm lýsing var á mínum persónuein- kennum í skýrslunni.“ ÍSLENDINGAR VINNA EKKI SUM STÖRF Ráðningarþjónustan sér um allar gerðir ráðninga, allt frá almennu starfsfólki til sérhæfðra stjórn- enda. Hún hefur þar að auki sér- hæft sig sérstaklega í ráðningu á erlendu vinnuafli. María segir ekki vanþörf á, enda sé gríðar- legur skortur á hæfu starfsfólki í hin ýmsu störf og nær ógern- ingur að finna Íslendinga sem fást til að taka þau að sér. Hún segir ekkert til í því að atvinnu- rekendur leiti til þeirra í því miði að geta borgað lægri laun. Þeir séu einfaldlega að leita leiða til að manna ákveðnar stöður og borgi útlendingunum sömu laun og Íslendingar fengju greidd. Sem dæmi um störf sem skortir starfsfólk í nefnir hún umönn- un, leikskólakennslu, ræstingar, bifvélavirkjun, smíðar, bygging- arvinnu, forritun, vélvirkjun, rafvirkjun, hin ýmsu tæknistörf sem og ófaglærð störf af ýmsum toga. ÞARF AÐ TAKAST FAGLEGA Á VIÐ BREYTINGARNAR Til þess að komast í kynni við gott starfsf ólk hefur Ráðningarþjónustan komið á sam- starfi við erlendar vinnumiðlanir sem, að Maríu sögn, hafa reynst vel. „Okkur er mikið í mun að farið sé eftir lögum og reglum gagnvart því fólki sem við útveg- um vinnu og tryggjum það með því að vinna með góðum fyrir- tækjum,“ segir hún og bætir við að það fólk sem Ráðningarstofan hafi útvegað vinnu hér á landi hafi nær undantekningalaust reynst vel, það sé vinnusamt enda fyrst og fremst komið hing- að til lands til að vinna. Hún telur íslenskukennslu vera grundvöll þess að þeir sem áfram búi á Íslandi aðlagist landi og þjóð en mikið sé einnig um tímabund- ið vinnuafl. María ber beyg í brjósti vegna umræðu undanfar- inna daga um erlent vinnuafl. Henni þurfi að lyfta á hærra plan og fara málefnalega og fag- lega í málefni nýbúa og erlends vinnuafls á Íslandi. „Það er sjálf- sagt að skoða allar hliðar á þeim breytingum sem orðið hafa, kosti þeirra og galla. En við verðum að bera virðingu fyrir fólki og til- finningum þeirra. Við eigum að skoða hvernig við myndum vilja láta taka á móti okkur. Þar sem þjóðfélagið samþykkti að opna landið fyrir öðrum þjóðum þá ber okkur skylda til að koma vel fram, sýna virðingu og ábyrgð og takast faglega á við þær breyt- ingar sem eru að eiga sér stað.“ 15. NÓVEMBER 2006 MIÐVIKUDAGUR16 H É Ð A N O G Þ A Ð A N Ys og þys á markaði með vinnuafl
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.