Fréttablaðið - 15.11.2006, Side 68
MARKAÐURINN
Hólmfríður Helga Sigurðardóttir
skrifar
Á Krókhálsinum í Reykjavík
er Ráðningarþjónustan starf-
rækt sem, eins og nafnið gefur
glögglega til kynna, er sérhæfð
í ráðningum og þjónustar jafnt
fyrirtækja sem umsækjendur.
Ráðningarþjónustan var sett á fót
árið 1995 en María Jónasdóttir,
núverandi eigandi fyrirtækisins,
tók við því í apríl árið 2005. Hjá
þjónustunni vinna, auk Maríu,
fjórir ráðgjafar og túlkar vegna
erlends vinnuafls. Pólsku túlkur-
inn er án alls vafa sá sem mest
hefur að gera, enda eru, eins
og allir vita, Pólverjar orðnir
umtalsverður hluti íslensku þjóð-
arinnar.
Meðal þeirra tækja sem
Ráðningarstofan notar til að velja
hæfasta einstaklinginn í vissa
stöðu er persónumat frá Insight
Learning and Development sem
víða er notað á ráðningarstof-
um eða í um þrjátíu löndum.
Það er notað sem valmöguleiki
á lokastigum ráðninga og gefst
þá nokkrum af hæfustu umsækj-
endunum kostur á að taka þetta
próf sem byggist á hundrað
spurningum og 7.200 fullyrðing-
um sem liggja þar að baki. Þetta
segir María ótrúlega áhrifaríka
leið og útkoman sé nánast lýs-
ing á manneskju eins og ein-
hver hefði fylgst með henni frá
blautu barnsbeini. „Ég hef gert
þetta sjálf og mig rak í rogastans
þegar ég las þetta, svo nákvæm
lýsing var á mínum persónuein-
kennum í skýrslunni.“
ÍSLENDINGAR VINNA EKKI SUM
STÖRF
Ráðningarþjónustan sér um allar
gerðir ráðninga, allt frá almennu
starfsfólki til sérhæfðra stjórn-
enda. Hún hefur þar að auki sér-
hæft sig sérstaklega í ráðningu
á erlendu vinnuafli. María segir
ekki vanþörf á, enda sé gríðar-
legur skortur á hæfu starfsfólki
í hin ýmsu störf og nær ógern-
ingur að finna Íslendinga sem
fást til að taka þau að sér. Hún
segir ekkert til í því að atvinnu-
rekendur leiti til þeirra í því
miði að geta borgað lægri laun.
Þeir séu einfaldlega að leita leiða
til að manna ákveðnar stöður og
borgi útlendingunum sömu laun
og Íslendingar fengju greidd.
Sem dæmi um störf sem skortir
starfsfólk í nefnir hún umönn-
un, leikskólakennslu, ræstingar,
bifvélavirkjun, smíðar, bygging-
arvinnu, forritun, vélvirkjun,
rafvirkjun, hin ýmsu tæknistörf
sem og ófaglærð störf af ýmsum
toga.
ÞARF AÐ TAKAST FAGLEGA Á VIÐ
BREYTINGARNAR
Til þess að komast í kynni
við gott starfsf ólk hefur
Ráðningarþjónustan komið á sam-
starfi við erlendar vinnumiðlanir
sem, að Maríu sögn, hafa reynst
vel. „Okkur er mikið í mun að
farið sé eftir lögum og reglum
gagnvart því fólki sem við útveg-
um vinnu og tryggjum það með
því að vinna með góðum fyrir-
tækjum,“ segir hún og bætir við
að það fólk sem Ráðningarstofan
hafi útvegað vinnu hér á landi
hafi nær undantekningalaust
reynst vel, það sé vinnusamt
enda fyrst og fremst komið hing-
að til lands til að vinna. Hún telur
íslenskukennslu vera grundvöll
þess að þeir sem áfram búi á
Íslandi aðlagist landi og þjóð en
mikið sé einnig um tímabund-
ið vinnuafl. María ber beyg í
brjósti vegna umræðu undanfar-
inna daga um erlent vinnuafl.
Henni þurfi að lyfta á hærra
plan og fara málefnalega og fag-
lega í málefni nýbúa og erlends
vinnuafls á Íslandi. „Það er sjálf-
sagt að skoða allar hliðar á þeim
breytingum sem orðið hafa, kosti
þeirra og galla. En við verðum að
bera virðingu fyrir fólki og til-
finningum þeirra. Við eigum að
skoða hvernig við myndum vilja
láta taka á móti okkur. Þar sem
þjóðfélagið samþykkti að opna
landið fyrir öðrum þjóðum þá
ber okkur skylda til að koma vel
fram, sýna virðingu og ábyrgð og
takast faglega á við þær breyt-
ingar sem eru að eiga sér stað.“
15. NÓVEMBER 2006 MIÐVIKUDAGUR16
H É Ð A N O G Þ A Ð A N
Ys og þys á markaði með vinnuafl