Fréttablaðið - 15.11.2006, Blaðsíða 27
Land Rover Discovery breytt-
ist mikið með tilkomu þriðju
kynslóðar bílsins. Til að kynna
þessar breytingar breytti B&L
út af vananum og í stað þess
að senda út auglýsingabækl-
inga var fólki einfaldlega boðið
að prófa Discovery við alvöru
aðstæður.
Tölvur og flókinn tækjabúnaður
skipa æ stærri sess í bílum og eru
jeppar þar engin undantekning.
Tæknin er oft flókin og mikilvægt
að notkunarviðmót hennar sé
þannig að hún nýtist ökumönnum
við raunverulegar aðstæður. Þetta
var haft að sjónarmiði við hönnun
þriðju kynslóðar Land Rover Dis-
covery.
„Okkur langaði að kynna breyt-
ingarnar sem hafa orðið á Discov-
ery sérstaklega af því að þær eru
svo umfangsmiklar,“ segir Helga
Guðrún Jónasdóttir, kynningar-
stjóri B&L. „Discovery var áður
fyrr ekki þekktur fyrir lúxusbíla-
eiginleika en hann er orðinn lúx-
usbíll núna.“
Bíllinn er svo sannarlega mikið
breyttur frá fyrri kynslóðum og
búið er að bæta torfæru- og akst-
urseiginleikana töluvert með
bættum tæknibúnaði. Í stað þess
að hafa óteljandi takka og rofa
sem stöðugt þarf að stilla út frá
aðstæðum hverju sinni er viðmót-
ið einfalt. Discovery er nefnilega
ætlað að vera bæði góður fjöl-
skyldubíll sem einfalt er að keyra,
og jeppi með mikla torfærugetu.
Discovery er einnig búinn svo-
kölluðu Terrain Responce kerfi
sem gerir ökumanni kleift að stilla
drif, vél, gírkassa og fjöðrun með
einum takka. Stillingarnar á kerf-
inu eru fimm og stillir ökumaður
kerfið eftir aðstæðum og undir-
lagi hverju sinni. Kerfið er einfalt
í notkun og meira að segja óvitar í
jeppafræðum, eins og undirritað-
ur, eiga ekki í vandræðum með að
læra á það og nota það rétt.
Til að kynna þessar nýjungar
bauð B&L ýmsum aðilum að prófa
jeppann í stuttum ferðum. Í einni
slíkri ferð fékk blaðamaður að
fljóta með. Farin var svokölluð Þús-
undvatnaleið en hana er að finna á
Hellisheiðinni. Farið var upp bratt-
ar brekkur í mikilli lausamöl, yfir
ár og upp bakka, allt að sjálfsögðu
á slóða. Þrátt fyrir nokkurt óöryggi
í byrjun var blaðamaður fljótur að
ná tökum á jeppanum og til marks
um hversu fljótt traust til bílsins og
kerfisins myndaðist var heimferð-
in um fjórum sinnum fljótfarnari
en útleiðin.
Flókin tækni í einfaldri framsetningu