Fréttablaðið - 15.11.2006, Blaðsíða 48
Stóriðjuskólinn er sérhæfður með
tvíþætt fagnám og starfsnám fyrir
áliðnað, annars vegar grunnnám
og hins vegar framhaldsnám. „Til-
urð skólans má rekja til þess að
framkvæmdastjórn Íslenska álfé-
lagsins hf., síðar Alcan á Íslandi
hf., taldi brýnt að efla starfsmennt-
un hjá því starfsfólki fyrirtækisins
sem hafði litla formlega menntun,“
segir Auður Þórhallsdóttir, leiðtogi
fræðslumála hjá Alcan á Íslandi hf.
„Áður höfðu starfsmenn setið ýmis
námskeið en talið var að heildstæð-
ara nám yrði markvissara og gæti
skilað fyrirtækinu og starfsfólkinu
mun betri árangri en það fyrirkomu-
lag sem áður var við lýði. Þetta var
sannarlega þarft frumkvæði þar sem
ekkert nám tengt stóriðju var í boði
í almenna skólakerfinu hér á landi,“
bætir hún við.
Námsefni og námsskrá skólans öðl-
aðist viðurkenningu menntamála-
ráðuneytisins árið 2002 sem hluti
af námsskrá framhaldsskóla og var
metið til 24 eininga. Einnig hlaut
fyrirtækið Starfsmenntaverðlaunin
árið 2000 en þau eru veitt af Starfs-
menntaráði og Mennt.
Meginmarkmið skólans eru að efla
fagþekkingu, færni og öryggi starfs-
fólksins og auka möguleika þess á
starfsþróun, jafnframt að efla sam-
keppnisstöðu fyrirtækisins í ört
harðnandi samkeppnisumhverfi.
„Hátæknilegur og flókinn búnaður
stýrir öllu framleiðsluferli Alcan á
Íslandi. Álverið er þannig hátækni-
fyrirtæki og í raun gott dæmi um
hvernig rótgrónir atvinnuvegir geta
nýtt sér það besta sem tölvu- og
tæknisamfélagið býður upp á til að
auka afköst og gæði framleiðslunn-
ar,“ segir Auður.
Í ljósi fenginnar reynslu fyrirtækisins
af grunnnámi við Stóriðjuskólann
var ákveðið að bjóða upp á fram-
haldsnám við skólann haustið 2004.
Það er fyrir stóriðjugreina og þá sem
lokið hafa iðnskólaprófi. Markmið
framhaldsnámsins er að efla færni
nemenda til að gegna lykilhlutverki
í hópstarfi og breytingaferlum og
rækta hjá þeim frumkvæði og sjálf-
stæði við mikilvæga ákvarðanatöku
innan fyrirtækisins.
Haustið 2005 var allt námið við skól-
ann endurskoðað, ásamt námsbókum
og síðan gefin út ný námsskrá með
grunn- og framhaldsnámi sem gildir
tímabilið 2005-2007. Í námsskránni
koma fram markmið og sýn skól-
ans og þær námsaðstæður og við-
fangsefni sem talin eru hæfa þessum
markmiðum best. Kennsluhættir og
kennsluaðferðir eru tilgreindar og
sama má segja um mat á námsfram-
vindu og námsárangri.
„Lögð er áhersla á mikilvægi gæða-
stjórnunar og mats á skólastarfinu
til að tryggja stöðugar umbætur á
starfseminni. Námið þarf á hverjum
tíma að taka mið af örri tækniþró-
un og síbreytilegu starfsumhverfi
Alcan á Íslandi og þörfum starfs-
manna okkar,“ segir Auður og tekur
fram að allur rekstur skólans sé
kostaður af fyrirtækinu og flestar
námsbækur gefnar út af Alcan og
sérsniðnar fyrir þau fög sem kennd
eru. „Í haust voru gefnar út nýjar
námsbækur bæði í rafgreiningar-
og steypuskálafræðum og höfundar
þeirra eru starfsmenn og kennarar
Stóriðjuskólans.“
Fyrirtækið gerði í október 2006
samning við Fræðslumiðstöð
atvinnulífsins um einingamat á nýju
námsskránni. Í samningnum mun
skólanefnd Stóriðjuskólans einn-
ig vinna almenna námsskrá fyrir
starfsfólk í stóriðju á Íslandi í sam-
starfi við FA. Þessi almenna náms-
skrá mun verða unnin með hliðsjón
af námsskrá Stóriðjuskólans og
skal uppfylla kröfur Menntamála-
ráðuneytisins vegna einingamats á
óformlegu námi.
„Aukin þekking, hæfni og jákvætt
viðhorf starfsfólksins hefur svo sann-
arlega haft sitt að segja í velgengni
okkar enda gerir forstjóri sér grein
fyrir mikilvægi þess að starfsfólkið
búi yfir sjálfstrausti og sjálfsöryggi
og veit að þannig geta einstakling-
arnir frekar tekist á við breytingar
og áskoranir. Hvatning, skilningur
og metnaður yfirmanna til skólans
hefur svo sannarlega skilað sér í
hærra menntunarstigi starfsfólksins
og eflt fyrirtækið á allan hátt,“ segir
Auður.
Stóriðjuskóli í Straumvík
Stóriðjuskólinn er orðinn hluti af þeirri lærdómsmenningu sem Alcan á Íslandi hefur
þróað með sér í gegnum árin. Hann hefur verið starfræktur í Straumsvík frá 1998 og
hefur 171 starfsmaður þegar útskrifast og 12 munu bætast í hópinn nú um áramótin.