Fréttablaðið - 15.11.2006, Blaðsíða 4
Valgerður Sverris-
dóttir utanríkisráðherra afhenti
Miryam Shomrat, sendiherra
Ísraels, formleg mótmæli
íslenskra stjórnvalda vegna árás-
ar Ísraelshers á íbúðahverfi í
Beit Hanoun á Gaza fyrir viku á
fundi þeirra í utanríkisráðuneyt-
inu í gær. Átján óbreyttir borgar-
ar féllu í árásinni og þar af tíu
börn. Félagið Ísland – Palestína
stóð fyrir mótmælum vegna
fundar Valgerðar og sendiherr-
ans og tóku á annað hundrað
manns þátt í mótmælastöðunni
sem fór friðsamlega fram.
Valgerður sagði eftir fundinn
að hún hefði komið á framfæri
við sendiherrann þeirri skoðun
íslenskra stjórnvalda að þau virði
rétt Ísraels til að verjast eins og
annarra þjóða samkvæmt
alþjóðalögum, en aðgerðir þeirra
í Beit Hanoun hafi eingöngu verið
til þess að hella olíu á eldinn og
gera ástandið á svæðinu enn
verra en verið hefur að undan-
förnu. Valgerður segir að sendi-
herrann ætli að koma bréfi
stjórnvalda til Tzipi Livni, utan-
ríkisráðherra Ísraels, og ítrekaði
afstöðu ísraelskra stjórnvalda
um að atvikið í Beit Hanoun hafi
ekki verið að yfirlögðu ráði held-
ur hafi verið gerð tæknileg mis-
tök. Aðspurð um þessa skýringu
sendiherrans á atvikinu sagði
Valgerður. „Ég sagði henni að
mér þætti erfitt að tala um svo
alvarlega hluti sem tæknileg mis-
tök en ég get ekki neitað því að
hún fari þar með rétt mál. Mér
finnst það ekki afsökun en þetta
getur verið útskýring.“
Félagið Ísland – Palestína hugð-
ist afhenda sendiherra Ísraels
mótmælabréf en þar sem Shomrat
kom til fundarins fyrr en áætlað
var og yfirgaf utanríkisráðuneyt-
ið eftir fundinn bakdyramegin
gafst Sveini Rúnari Haukssyni,
formanni félagsins, ekki tækifæri
til þess. Í stuttu ávarpi Sveins
Rúnars, sem byggt var á bréfinu
sem afhenda átti sendiherranum,
kom fram að félagið fordæmir
fjöldamorðin í Beit Hanoun og að
„hópmorð á stórri fjölskyldu, þar
sem 18 manns létu lífið, þar af
flest konur og börn“, kalli ofbeld-
ismennirnir „tæknileg mistök“. Í
ávarpi sínu minnti Sveinn Rúnar á
að atvikið komi í framhaldi af
mörgum af svipuðum toga og að
hernám Ísraels á Gaza birtist í
aftökum fólks, eyðileggingu heim-
ila og möguleika fólks til lífs-
bjargar.
Ofbeldi Ísraelshers í
Palestínu fordæmt
Utanríkisráðherra afhenti í gær sendiherra Ísraels mótmæli vegna árása hers
landsins á íbúðahverfi í síðustu viku. Tæknileg mistök segja ísraelsk stjórnvöld.
Fjölmenn mótmæli voru fyrir utan utanríkisráðuneytið vegna fundarins.
Þjónustu- og rekstrar-
svið Reykjavíkurborgar hefur
efnt til tilraunaverkefnis í
nágrannavörslu í samvinnu við
lögregluna. Borgarbúar taka að
sér að gæta húsa nágranna sinna
og stuðla þannig að öryggi eigna
sinna og sporna gegn innbrotum
og eignatjóni.
Tilraunaverkefnið fer fram við
sex götur í Reykjavík og stendur í
eitt ár. Gengið verður í eina götu í
hverju hverfi og fólk boðað á
fund. Íbúarnir sammælast þar um
að gæta húsa nágranna sinna.
Tilraunaverkefnið er hafið við
Dverghamra í Grafarvogi og
hefur Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
borgarstjóri sett þar upp skilti í
forvarnarskyni.
Nágrannavarsla
við sex götur
Jólagjöfin á Íslandi
árið 2006 er ávaxta- og grænmet-
ispressa, en varan er talin njóta
vinsælda meðal allra aldurshópa í
landinu. Þetta er niðurstaða fjög-
urra manna dómnefndar, sem
skipuð er sérfræðingum á sviði
verslunar og þjónustu, sem greint
var frá á fundi í húsakynnum Sam-
taka verslunar og þjónustu í gær.
Á fundinum kynnti Emil B.
Karlsson, forstöðumaður Rann-
sóknarseturs verslunarinnar, upp-
lýsingar um jólaverslunina 2006.
Emil segir að landsmenn muni
eyða níu prósent meira fé í jóla-
gjafir í nóvember og desember en
í fyrra.
„Jólaverslunin er eitt af sam-
eiginlegum áhugamálum Íslend-
inga og þeim finnst gaman að tala
um hana. En hún er líka mikilvæg
fyrir verslunarfólk því um tuttugu
prósent af smásöluversluninni á
landinu fer fram fyrir jólin,“ segir
Emil.
Á fundinum vitnaði Emil til
rannsóknar um að hver Íslending-
ur ætli að eyða 26 til 50 þúsund
krónum í jólagjafir í ár. Í rann-
sókninni kom einnig fram að um
og yfir 65 prósent landsmanna geri
jólainnkaupin á Íslandi og byrji
ekki á þeim fyrr en í desember.
Samkvæmt þessari spá munu
Íslendingar drekka mikið af
ávaxta- og grænmetissafa árið
2007, og miðað við áætlaða eyðsl-
una munu fáir fara í jólaköttinn
alræmda.
Níu prósenta hækkun milli ára
Jón H.B. Snorrason,
yfirmaður efnahagsbrotadeildar
Ríkislögreglustjóra, segir
rannsókn á meintum skattalaga-
brotum fjölda einstaklinga
tengdum Baugi í eðlilegum
farvegi. „Skattrannsóknarstjóri
kærði árið 2004 ætluð refsiverð
skattalagabrot einstaklinga og
fyrirtækja er tengdust Baugi til
Ríkislögreglustjóra og við höfum
þau til rannsóknar.
Þau brot tengjast ekki því máli
sem er til meðferðar fyrir dómi né
heldur þeim málefnum hjá
yfirskattanefnd. Margir hafa
réttarstöðu sakbornings í málinu
sem er til rannsóknar.“
Rannsókn sögð
í réttum farvegi