Fréttablaðið - 15.11.2006, Síða 36
MARKAÐURINN 15. NÓVEMBER 2006 MIÐVIKUDAGUR4
F R É T T I R
Eggert Þór Aðalsteinsson
skrifar
Árvakur, útgáfufélag Morgunblaðsins, tapaði 187
milljónum króna í fyrra samanborið við 358 millj-
óna króna hagnað árið áður. Þetta er í þriðja
skipti á síðustu fimm rekstrar-
árum sem tap verður á rekstri
fyrirtækisins.
Rekstrartekjur félagsins námu
3.262 milljónum króna og drógust
saman um 7,5 prósent á milli ára.
Mestu munar um að árið 2004
féll til söluhagnaður af fasteign
við Kringlu. Að öðru leyti jukust
tekjur Árvakurs af hefðbundinni
starfsemi, svo sem áskriftar- og
auglýsingasölu, prentun og dreif-
ingu. Lausasala blaðsins dróst hins vegar saman
um átta prósent.
Rekstargjöld námu 3.329 milljónum króna
og hækkuðu um 8,6 prósent frá fyrra ári.
Launakostnaður, sem er vel rúmur helmingur af
útgjöldum, hækkaði um
fimm prósent.
Rekstrartap fyrir afskrift-
ir (EBITDA) nam 66 milljón-
um króna samanborið við
tæplega 462 milljóna króna
rekstarhagnað árið 2004.
Eignir Árvakurs stóðu
í rúmum 3,7 milljörðum
króna í árslok og hækkuðu
um tæpt prósent.
Meðal eigna er helm-
ingshlutur í Ár og degi,
útgáfufélagi Blaðsins,
sem var bókfærður á 115
milljónir króna. Hluturinn
var keyptur í árslok 2005
en samkvæmt skilmálum
í kaupsamningi getur
kaupverðið orðið allt að
250 milljónir króna til
ársins 2008.
Eigið fé félagsins var
1.232 milljónir króna í
lok árs 2005 og dróst
saman um 9,5 prósent.
Eiginfjárhlutfall var því yfir 33 prósent.
Í lok árs var Útgáfufélagið Valtýr stærsti hlut-
hafinn með 21 prósents hlut en nokkrar breyt-
ingar hafa orðið á eigendahópi Árvakurs í ár.
Meðal annars hafa stærstu hluthafarnir, Valtýr og
félög í eigu Ólafs Jóhanns Ólafssonar og Straums-
Burðaráss, styrkt stöðu sína. Þá keypti Ólafsfell,
félag Björgólfs Guðmundssonar, átta prósenta hlut
í Árvakri á dögunum.
Árvakur tapaði í þriðja
skipti á fimm árum
Hálfs milljarðs breyting til hins verra á rekstri útgáfufélags
Morgunblaðsins frá 2004 til 2005. Rekstrartap fyrir afskriftir
(EBITDA) nam 66 milljónum króna.
400
300
200
100
0
-100
-200
-300
-400
R E K S T R A R A F K O M A Á R V A K U R S 2 0 0 1 - 2 0 0 5
Afkoma í
milljónum króna
-57
-303
-187
49
358
2001 2002 2003 2004 2005
H
im
in
n
o
g
h
af
–
S
ÍA
Hlutabréfasjóðir
75%
Skuldabréfasjóðir
25%
Sparnaður eftir
þínum nótum
Ávöxtunarsafnið –21,70% ávöxtun
Nafnávöxtun á ársgrundvelli frá 01.01. 2006 til 01.11. 2006.
Vatnsvirkinn hf. hefur keypt allt
hlutafé í fyrirtækinu Vatni og
hita ehf. af Sævari Stefánssyni
og Valtý Sævarssyni. Fyrirtækið
hefur selt lagnaefni til pípulagn-
ingamanna frá árinu 1998.
Nýir eigendur hafa þegar tekið
við rekstri Vatns og hita, en stefnt
er að sameiningu fyrirtækj-
anna undir nafni Vatnsvirkjans.
Kaupverðið fæst ekki gefið upp,
en áætluð samanlögð velta fyrir-
tækjanna í ár er sögð vera nærri
einn milljarður króna.
„Með kaupunum er
Vatnsvirkinn að renna frekari
stoðum undir meginstarfsemi
sína, sem er sala á lagnaefni
fyrir pípulagningamenn. Vatn og
hiti er þekkt nafn á markaðnum
og markmiðið er að reka fyrir-
tækið með sama fyrirkomulagi
og hefur verið gert með góðum
árangri undanfarin ár,“ segir
Hjalti Ólafsson, framkvæmda-
stjóri Vatnsvirkjans.
Vatnsvirkinn rekur þrjá versl-
anir, á Smiðjuvegi í Kópavogi,
í Dalshrauni í Hafnarfirði og
í Ármúla í Reykjavík þar sem
einnig er starfrækt hreinlætis-
tækjaverslun. Hjá fyrirtækinu
starfa 25 manns. - óká
Vatnsvirkinn kaupir
Vatn og hita
Reksturinn verður sameinaður undir heiti
Vatnsvirkjans. Kaupverð er trúnaðarmál.
Olíu- og gasleitarfyrirtækið
Tanganyika tapaði rúmum fjór-
um milljónum Bandaríkjadala,
eða 290 milljónum króna, á
þriðja ársfjórðungi. Tap félags-
ins nam um 540 milljónum króna
fyrir fyrstu níu mánuði ársins.
Tekjur félagsins voru um
7,4 milljónir króna á þriðja árs-
fjórðungi og hækkuðu um tæp
fjörutíu prósent á milli ára.
Straumur-Burðarás heldur
utan um tæplega þrettán pró-
senta hlut í Tanganyika sem
metinn var á 5,3 milljarða króna
við lok þriðja ársfjórðungs. - eþa
Tanganyika
tapar Mikil uppbygging verslunarhús-næðis á sér stað í Kauptúninu í
Garðabæ þar sem IKEA opnaði
tuttugu þúsund fermetra verslun
í október.
Hagar hafa skrifað undir
samning um opnun 1.200 fer-
metra Bónusverslunar á næsta
ári sem verður í sama húsnæði
og Max, stærsta raftækjaverslun
landsins, sem opnar í lok vik-
unnar. Hagar reka þá verslun í
félagi við Sjónvarpsmiðstöðina
og nemur stærð hennar 3.500
fermetrum.
Þá hefur BYKO boðað opnun
tólf þúsund fermetra stórversl-
unar á næsta ári og eins stefnir
Leikbær að því að hefja rekstur
stórverslunar með leikföng. - eþa
Stórverslanir opna í Kauptúni
Stærsta raftækjaverslun landsins
opnar í nýju verslunarhúsnæði
við Kauptún 1 í Garðabæ klukkan
ellefu árdegis núna á laugardag-
inn. Verslunin ber heitið MAX og
lofa forsvarsmenn hennar miklu
vöruúrvali og lágmarksverði
sem ýta muni undir samkeppni
á markaðnum. Á sama stað er ný
verslun IKEA.
Við hönnun verslunarinnar
voru meðal annars fengnir ítalsk-
ir hönnuðir til að skapa henni
„áhugaverða umgjörð eftir nýj-
ustu straumum“, líkt og segir
í tilkynningu, þar sem einnig
kemur fram að í versluninni
verði sértilboð á vörum í tilefni
af opnuninni. - óká
Stærsta raftækjaversl-
unin opnar um helgina
F j á r m á l a e f t i r l i t i ð
hefur gert dómssátt í
máli sem það höfðaði
til ógildingar á úrskurði
Kærunefndar. Varðaði
það mál niðurstöðu
Kærunefndar um að
útgefanda bæri ekki að
tilkynna viðskipti með
eigin bréf til birtingar í
Kauphöll eins og kveður
á um í lögum um verð-
bréfaviðskipti. Fjármálaeftirlitið
taldi niðurstöðu Kærunefndar
ekki standast lög og leitaði því
til dómstóla. Þar varð það sam-
eiginlegur skilningur málsaðila
að úrskurðurinn væri byggður á
röngum lagaforsend-
um og var málinu því
lokið með dómssátt
þar sem fallist var á
dómskröfu FME um
ógildingu úrskurðar
Kærunefndar.
„Þessi niðurstaða er
afar mikilvæg fyrir
gegnsæi og heil-
brigði markaðarins
og þess vegna ber að
fagna því að þessum undarlega
úrskurði Kærunefndar hafi verið
hnekkt og hann standi ekki sem
fordæmi,“ er haft eftir Jónasi
Fr. Jónssyni, forstjóra FME, í
fréttatilkynningu. - hhs
Gera dómssátt