Fréttablaðið - 15.11.2006, Page 52
10
Fyrir ellefu árum hóf Héraðsprent
útgáfu á Dagskránni á Austurlandi
sem er langöflugasti auglýsinga- og
upplýsingamiðill Austurlands enda
er henni dreift ókeypis inn á heim-
ilin. Þannig kemur fyrirtækið, sem
er í eigu Gunnhildar Ingvarsdóttur
prentsmiðs og Þráins Skarphéðins-
sonar prentara, við sögu í lífi fólks
á hverjum degi á Austurlandi.
Fyrirtækið var stofnað árið
1972 og eru starfsmenn níu talsins.
Tækjakostur er mjög góður og var
nýverið fjárfest í Heidelberg Supra-
setter-plötuskrifara, auk þess sem
Héraðsprent á fjögurra lita Roland-
prentvél. Með þessum fjárfestingum
er Héraðsprent tæknilegasta prent-
smiðjan utan höfuðborgarsvæðisins
og eina prentsmiðjan á Austurlandi
með þessa tækni.
„Tækjakostur er endurnýjaður
reglulega og yfirfarinn til að fylgja
straumum og stefnum í iðnaðinum.
Við bjóðum einnig upp á hæðar-
prent (gamla blýið) ef þannig verk-
efni koma inn fyrir dyr. Starfsfólk
Héraðsprents ber mikla virðingu
fyrir gömlum hefðum og viðheldur
notkun Eickhoff-hæðarprentvélar-
innar,“ segir Gunnhildur og bætir
við að starfsfólk prentsmiðjunnar
sé mjög duglegt við að búa til ný
verkefni og skapa nýjar leiðir fyrir
fyrirtækið. „Að lokum má segja
frá því að Héraðsprent flytur inn
handgerðan pappír frá Japan sem
notið hefur gífurlegra vinsælda í
alls konar föndur og hönnunar-
gripi. Einnig framleiðir starfsmaður
Héraðsprents, Ingunn Þráinsdótt-
ir, handgerðar bækur úr japönsk-
um pappír, ull og hrosshári,“ segir
Gunnhildur.
Góður tækjakostur
Héraðsprent snertir líf fólks á Austurlandi á hverjum degi
en fyrirtækið gefur út Dagskrána. Jafnframt er það ein
tæknilegasta prentsmiðjan utan höfuðborgarsvæðisins.
{ Íslenskur iðnaður }
60% MARKAÐSHLUTDEILD Á ÍSLANDI ÁRIÐ 2004
MANITOU skotbómulyftarar - Þarfur þjónn, sem uppfyllir ströngustu gæði og væntingar þeirra kröfuhörðustu.
HANN ER GRIMMUR!
MANITOU MLT 634 TURBO INTERCOOLER
- VIÐURKENND VARAHLUTAÞJÓNUSTA í 44 ár
- Útvegum notaða skotbómulyftara
- Úrval notaðra lyftara á lager
Fjórhjóladrifinn
Fjórhjólastýrður
Lyftigeta: 3.400 KG
Lyftihæð: 6.050 MM
Gafflar: 1.200 MM
Vél: Perkins Turbo intercooler, 123 HÖ
LOAD SENSING!! Samtímis glussahreyfingar
án aukins snúningshraða vélar.
SKOTBÓMULYFTARI
PON PÉTUR O. NIKULÁSSON ehf.
Melabraut 23 • 220 Hafnarfjörður
Símar 552 2650 & 552 0110 • FAX: 552 1588 • e-maiL: pon@pon.is