Fréttablaðið - 15.11.2006, Side 56
14
„Fyrir tuttugu árum byrjuðum við
hjónin að smíða útileiktæki því
okkur fannst að vantaði svolítið af
leiktækjum úr tré,“ útskýrir Elín sem
starfaði á þessum tíma sem leik-
skólakennari og fannst úrval leik-
tækja ekki nógu gott. Maður Elínar,
Hrafn, er vélstjóri og þau ákváðu að
samnýta krafta sína og stofna fyrir-
tæki í bílskúrnum heima. „Svo þró-
aðist þetta þannig að við keyptum
fyrstu hundrað og svo tvö hundr-
uð fermetra, nú erum við komin í
Grafarvoginn í þúsund fermetra
hús,“ segir Elín en í dag starfa allt
að fjórtán manns í Barnasmiðjunni.
„Við erum um átta til fjórtán eftir
árstíðum, fæst á veturna,“ útskýrir
hún.
Hrafn hefur útfært öll tækniat-
riði og sér alfarið um hönnunina
í dag. Þau hjónin leggja áherslu á
leikmöguleika og öryggi leiktækj-
anna sem búin eru til úr tré en
styrkt með járni. Þá eru þau máluð
með eiturefnalausri málningu og
lökkuð til að auðveldara sé að þrífa
af þeim krot.
Elín sér um rekstrarhlið Barna-
smiðjunnar og allan innflutning en
þau hjónin hafa einnig rekið leik-
fangaverslun frá árinu 1993 þar
sem seld eru þroskandi leikföng
auk þess sem þau flytja inn mikið
af námsgögnum fyrir leikskóla og
skóla.
Elín segir róðurinn hafa verið
harðan til að byrja með. Þau hafi
byrjað með tvær hendur tómar,
samkeppnin á markaðnum sé
töluverð enda mikið flutt inn af
leiktækjum. „Okkur hefur hins
vegar verið mjög vel tekið og við
horfum alltaf fram á við,“ segir
Elín kankvís.
Byrjuðu að smíða í bíl-
skúrnum heima
Elín Ágústsdóttir og maður hennar Hrafn Ingimundarson stofnuðu Barnasmiðjuna
fyrir tuttugu árum. Þau hanna og smíða útileiktæki og barnahúsgögn undir vöru-
merkinu KRUMMA-GULL.
{ Íslenskur iðnaður }
á vorönn
Innritun
2007
I ‹ N S K Ó L I N N Í R E Y K J A V Í K
Almennar bóklegar greinar eru hluti af námi á öllum
brautum skólans. Allt almenna námið er matshæft
á milli skóla eftir því sem við á. Einnig er hægt að
stunda nám í almennum greinum í eina til fjórar
annir. Stúdentspróf af list- og starfsnámsbraut.
Á rafiðnasviði eru eftirtaldar brautir:
Grunnnám rafiðna • Rafvirkjun • Rafeinda-
virkjun • Rafvélavirkjun • Rafveituvirkjun
Símsmíði. Stúdentspróf af list- og starfsnámsbraut.
Á byggingasviði eru fimm iðnbrautir í framhaldi
af grunnnámi bygginga- og mannvirkjagreina:
Húsasmíði • Húsgagnasmíði • Múrsmíði
• Málun • Veggfóðrun og dúklagningar.
Stúdentspróf af list- og starfsnámsbraut.
Á tölvusviði er ein braut: Tölvubraut sem býður
upp á sérhæfingu í forritun og netkerfum.
Stúdentspróf af list- og starfsnámsbraut.
Á sérdeildarsviði eru tvær brautir:
Starfsdeild • Nýbúabraut. Auk þess er
endurhæfingarnám Janusar (rekið í tengslum
við skólann). Stúdentspróf af list- og
starfsnámsbraut.
Á hönnunarsviði eru fjórar brautir: Listnámsbraut
(almenn hönnun og keramik) • Hársnyrting
• Fataiðnabraut (klæðskurður og kjólasaumur)
• Gull- og silfursmíði. Stúdentspróf af list- og
starfsnámsbraut.
Á upplýsinga- og margmiðlunarsviði eru
þrjár brautir: Upplýsinga- og fjölmiðlabraut
• Tækniteiknun • Margmiðlunarskólinn.
Stúdentspróf af list- og starfsnámsbraut.
Fjarnám er áhugaverður kostur fyrir þá sem ekki geta
nýtt sér staðbundið nám, t.d. vegna vinnu eða
búsetu. Í fjarnáminu er boðið upp á fjölbreytt
námsúrval í bóklegum og fagbóklegum
greinum ásamt ýmsum greinum meistaranámsins.
Skólavörðuholti I 101 Reykjavík
Sími 522 6500 I Fax 522 6501
www.ir.is I ir@ir.is
alm
ennt svið
h
önnunars
vi
ð
rafiðnasv
ið
fjarnám
sérdeild
a
sv
ið
by
ggingasvið
tö
lvusviðu
pp
lý
si
n
ga
- o
g
m
ar
g
m
ið
lun
arsvið
Innritun í dagskóla á vorönn 2007
er hafin. Tekið er við umsóknum
á skrifstofu skólans.
Aðstoð við innritun verður í skólanum
dagana 21. og 22. nóvember kl. 12–16.
Námsráðgjafar og sviðsstjórar leiðbeina
þá um námsval og brautir skólans.
Innritun í fjarnám og kvöldskóla hefst
á vef skólans 17. nóvember.
Allar nánari upplýsingar á www.ir.is
og á skrifstofu skólans, sími 522 6500.