Fréttablaðið - 15.11.2006, Side 60
18
„Viðbrögðin voru ekki góð í upphafi
á þeim forsendum að allir vissu að
þetta myndi aldrei ganga, að þetta
væri einfaldlega alltof stór stofa og
ekki væri til nógu stór markaður,“
útskýrir Anna María Jónsdóttir,
snyrtifræðingur og annar eigandi
Lauga Spa, sem svo sannarlega
hefur sýnt þessum neikvæðnirödd-
um í tvo heimana. Anna hefur verið
lengi í snyrtistofubransanum þar
sem hún byrjaði smátt og vann sig
síðan upp.
Laugar Spa hefur verið á
stöðugri uppleið frá því að stofan
opnaði fyrir um þremur árum síðan
en núna hefur stofan einfaldlega
sprengt utan af sér. Fátt annað
kemur því til greina en að stofan
stækki eins og reyndar öll Lauga
líkamsræktarstöðin. „Við þurfum
einfaldlega að stækka til þess að
sinna okkar viðskiptavinum.“
Anna finnur sérstaklega fyrir því
að karlmenn eru farnir að streyma í
auknum mæli inn á stofuna henn-
ar. Brátt verður meðal annars boðið
upp sérstaka meðferð sem er ein-
göngu fyrir karlmenn, hönnuð af
karlmönnum. „Í nútímaþjóðfélagi
þá eru kröfurnar orðnar allt aðrar
en þær voru hér áður fyrr. Karl-
menn vilja hafa mjúka, hreina húð
og að hún sé ungleg, alveg eins við
konurnar.“
En þarf þá ekki karlmenn inn í
starfsstéttina? „Við erum einmitt að
fá fyrsta karlmanninn í nám núna
á næstunni,“ útskýrir Anna María
glöð í bragði. Hún segir jafnframt
að það sé alveg jafn mikilvægt fyrir
snyrtifræðinga að hafa karlmenn
innan stéttarinnar og það er fyrir til
dæmis hárgreiðslufólk. „Við erum í
raun og veru eina landið í heiminum
í dag sem er ekki komið með karl-
menn.“ Anna María telur að þessum
þætti verði að breyta hérlendis en til
þess þurfi hugarfarsbreytingu. „Við
ætlum að gera Ísland að alþjóðlegri
heilsulind heimsins og til þess þurf-
um við karlmenn.“
Markaðurinn
alltaf að stækka
Stærsta snyrtistofa landsins, Laugar Spa í Laugardalnum,
hefur gengið vonum framar enda hefur allur heilsugeir-
inn verið á mikilli uppleið. Fleiri karlmenn vantar þó í
snyrtigeirann.
{ Íslenskur iðnaður }