Fréttablaðið - 15.11.2006, Blaðsíða 63
H A U S
MARKAÐURINN 11MIÐVIKUDAGUR 15. NÓVEMBER 2006
við og áreiðanleikakannanir gáfu til kynna.
„Þetta var magapínuyfirtaka, því þetta hefði
getað sett okkur á hliðina,“ segir Jón Ásgeir.
„Ég skil ekki hvernig okkur datt þetta í hug,“
segir Jón Ásgeir og hlær. Gunnar er ekki
alveg á sama máli. „Eins og við teiknuðum
þetta upp, þá leit þetta vel út. Það byggðist á
því að Booker sem er stærsta gripið og greitt-
keðjan í Bretlandi væri með sjóðstreymi sem
undir réttri stjórn myndi skila miklu. Við
stilltum Iceland upp á móti sem viðsnúnings-
verkefni. Sem hefur reynst miklu betur en
við þorðum að vona. Þegar við lögðum af stað
þá var þetta allt mjög skynsamlegt.“
Jón segir að menn hafi teygt sig langt í
verkefninu. „Þetta er alveg rosalega óþægi-
legur tími í yfirtökum frá því að maður skrif-
ar undir og ekki er aftur snúið og þangað til
maður fær lyklana. Það eru tveir mánuðir.
Þetta er hræðilega langur tími. Stjórnendur í
lausu lofti. Þeir eru að vinna fyrir fyrri eig-
endur og geta ekki farið að vinna fyrir okkur.
Það kemur losarabragur á allan mannskapinn
og reksturinn. Booker seldi í gær fyrir 1,9
milljarða króna. Ef menn fara að tapa fimm
til sex prósentum af veltunni í einhverju
rugli, þá er það fljótt að safnast upp.“
STAÐAN MIKLU VERRI
Booker reyndist í miklu verra ástandi en
búist var við. Staðan hjá Big Food var þannig
að af 36 milljarða yfirdráttarheimild var
svigrúmið 130 þúsund krónur. „Þar við bætt-
ist að teygt hafði verið á öllum skuldum við
birgja,“ segir Gunnar. „Ég held að það sé ekki
djúpt í árinni tekið að segja að félagið hefði
lent í verulegum vandræðum ef við hefðum
ekki tekið það yfir.“
Baugur hafði átt hlut í félaginu um skeið
og gagnrýnt stefnuna. Planið var að skipta
upp félögunum og ná bættum rekstri með
réttum stjórnendum. „Stjórnendur eru lyk-
ilatriði í þessu,“ segir Jón Ásgeir. „Smásala
er flókin. Þeir sem kunna þetta skila árangri,
alveg sama hvort veðrið er heitt eða kalt eða
vextir háir eða lágir.“
Iceland-verslunakeðjan var líka í verri
málum. Þar tók við stjórninni stofnandi keðj-
unnar, Malcolm Walker. Ástandið var verra
en búist var við, en Gunnar segir Malcolm
hafa verið vissan um að allt gengi vel þegar
hann steig inn fyrir dyrnar. Hann hafi strax
séð hvað gera þurfti. Einkenni rekstursins
hjá Big Food var gríðarleg yfirbygging og
stjórnunarkostnaður. „Á aðalaskrifstofum
fyrirtækisins er búið að fækka fólki um yfir
þúsund manns. Það var skýrsla ofan á skýrslu
og það fóru tveir milljarðar í kaup á ráðgjöf
á ári,“ segur Jón. Hann segir þarna koma
fram veikleika sem gjarnan birtist í skráðum
félögum að menn forðist áhættu og varpi frá
sér ábyrgð yfir til ráðgjafa. „Það var rosaleg
óráðsía þarna inni,“ segir Gunnar.
ICELAND Á FLUGI
Gunnar segir að í skráðum félögum í smásölu
séu menn of mikið metnir út frá söluaukningu
og refsað ef hún dregst saman, jafnvel þótt
hagnaður aukist. „Hjá Iceland voru menn
á því að frystivara væri á undanhaldi og
kældar matvörur í vexti. Menn fóru af stað
að breyta búðum í verslanir með hærra þjón-
ustustig, en áttu ekki séns í sambærilegar
verslanir stærri matvörukeðja. Þeir urðu
fangar strategíunnar. Þeir fengu aukningu
í skamman tíma við breytingu á búðum,
þannig að þeir urðu að halda áfram til að
sýna söluaukningu. Ef þeir hefðu viðurkennt
að þeir væru á rangri leið og snúið aftur til
upphafsins, þá hefði hlutabréfaverðið fallið.“
Eftir yfirtökuna var blaðinu snúið við og
farið aftur til upphafsins með þeim árangri
að þegar er búið að endurfjármagna félagið
einu sinni og greiða fjárfestum það sem þeir
lögðu í fyrirtækið í upphafi. Reksturinn er
á þeirri siglingu að önnur endurfjármögnun
væri möguleg á næsta ári. „Iceland hefur
gengið frábærlega.“
Með sterkum meðfjárfestum og árangri
í fyrri fjárfestingum vex geta Baugs til að
ráðast í stærri verkefni. Jón Ásgeir segir
að þetta þýði að stærð verkefna sem hægt
sé að ráðast í sé allt að milljarði punda eða
130 milljarðar króna. „Það fer reyndar eftir
strúktúrnum, Hversu mikið af fasteignum
er í félögunum. Það er fullt af félögum hér
í Bretlandi sem eru rík af eignum. Marks og
Spencer, Morrison og Sainsburys eru félög
sem eru rík af eignum. Fasteignirnar eru
verðmætari en félögin sjálf. Síðan er spurn-
ingin hvort reksturinn gæti borið leiguna ef
fasteignirnar eru seldar út.“
Marks og Spencer er dálítið stór biti eða 10
milljarða punda virði. Undir forystu Stuarts
Rose hefur félagið náð að rétta úr kútnum.
„Þetta er frábær árangur hjá Stuart Rose,
Félagið er að sýna afkomutölur sem við
reiknuðum með hjá þeim árið 2009,“ segir
Jón Ásgeir. Hann segir mikið hafa verið
fjárfest í búðunum. „Það er dýrt að halda
því uppi. Markaðssetning þeirra hefur verið
brilljant. Vöruúrvalið hjá þeim hefur lagast
aðeins, en fyrst og fremst hafa þeir náð að
búa til sterkari ímynd.“ Philip Green gengur
ekki eins vel í augnablikinu með Arcadia og
Debenhams. „Philip er frábær í að ná niður
kostnaði og semja við birgja. Honum hefur
hins vegar ekki gengið jafn vel í að láta fyrir-
tækin vaxa,“ segir Jón Ásgeir og bendir á að
Green hafi misst frá sér góða stjórnendur þar
sem hann sé of mikið að skipta sér af þeim.
„Maður fær ekki gott fólk ef maður treystir
því ekki. Þá bara fer það annað.“
NÆSTU MÁLTÍÐIR
Baugur hefur að undanförnu byggt upp eign-
arhluti í Woolworths og French Connection.
Bæði þessi félög eru líkleg til að verða að
yfirtökuverkefnum. Jón Ásgeir segir örvænt-
ingu gæta í rekstrinum. „Ætli við eigum
ekki einhvern tímann eftir að svitna yfir
Woolworths,“ segir hann. Woolworths á alveg
séns. Það er svipað og Big Food. Það þarf
að brjóta það upp og
fókusera. Það eru
fínar einingar þarna
innan um. Þannig að
þarna eru tækifæri.
Þeir eru orðnir dálít-
ið ráðalausir. Þeir
eyða peningum í búð-
irnar því þeir fá smá
skammtímaaukningu
við það.“
Stofnandi og
aðaleigandi French
Connections hefur
ekki viljað selja.
„Það var haft eftir
honum um daginn
að hann ætlaði sér
ekki að verða elsti
stjórnarmaðurinn
í tískubransanum.
Við lítum á það sem
jákvæðar fréttir.“
SÁ STÓRI
Áhættan af Big Food-
kaupunum var gríð-
arleg. „Maður lagði
kofann undir,“ segir
Jón Ásgeir. Gunnar
bætir því við að ef
eitthvað færi úrskeiðis í House of Frasier, þá
myndi það ekki setja fyrirtækið í hættu. „Það
væri vissulega ekki gott fyrir okkur, en ef það
hefði gerst í Big Food
þá hefði farið illa. Jón
hringdi í mig þegar
við vorum að klára
þetta og við vorum
að meta hvað gerð-
ist ef það væri fjár-
þörf í fyrirtækinu.
Þá sagði Jón: „Ef að
þetta „beast“ byrjar
að garga á peninga,
þá verða skjóðurnar
tómar fljótt.“ Og það
er rétt því bara ef
birgjar hefðu breytt
greiðsluskilmálum
þá hefði það kostað
mikið því veltutöl-
urnar eru svo háar.“
Það er greini-
legt að áhættan var
gríðarleg í Big Food
Group og spurning
hvort menn væru til-
búnir í slíka áhættu á
ný. Jón Ásgeir verð-
ur hugsi og greini-
legt að honum hrýs
hugur við að end-
urtaka leikinn. „Við
eigum eftir að taka
þann stóra,“ segir
hann og brosir.
Hver er sá stóri?
Gunnar grípur fram í til að tryggja að ekkert
fari á sveim sem ekki á að vera þar. „Það
verður að koma í ljós.“
m stóra
ð kaupum á Big Food Group.
esson og bætir við að mis-
g Gunnar Sigurðsson, fram-
„Ef að þetta „beast“ byrjar
að garga á peninga, þá verða
skjóðurnar tómar fljótt“