Fréttablaðið - 15.11.2006, Blaðsíða 102
Ekki er heiglum hent að vera ást-
fanginn og eiga hrekkjalóma fyrir
vini en því kynntist Elvar Freyr
Helgason. Í smáuglýsingu í Frétta-
blaðinu sem birtist á mánudag lýstu
þrír vinir eftir Elvari og segja hann
hafa tapað sér í sambandssýki. Vilja
félagarnir endilega að fólk láti vita
ef það heyrir í honum. „Því við
gerum það ekki,“ stendur í auglýs-
ingunni sem birtist undir flokknum
„Tapað-
fundið“.
„Þetta
var bara
sakleysislegur hrekkur,“ segir Guð-
mundur Auðunsson, forsprakki
vinahópsins sem ábyrgur er fyrir
þessari skemmtilegu auglýsingu.
„Við höfðum bara ekki séð hann svo
lengi að við ákváðum að lýsa eftir
honum,“ bætir Guðmundur við og
hlær. „Við hittumst um helgina og
Elvar átti að mæta en þegar hann
mætti ekki reyndum við að hringja.
Við náðum engu sambandi og ákváð-
um að gera þetta í flýti,“ útskýrir
Guðmundur og segir að þeir hafi
vandað sig vel við að velja verstu
myndina sem þeir ættu af félaga
sínum.
Vinirnir gættu þess þó
að öruggt væri að fólk mis-
skildi ekki auglýsinguna og
færi að halda að Elvar væri
í vanda staddur, hann hefði
bara ekki sést meðal vina. „Mér
skilst að það hafi mikið verið hringt
í hann, meðal annars amma hans og
afi og foreldrarnir sem hlógu mikið
að þessum grikk,“ segir Guðmund-
ur sem bjóst alls ekki við að auglýs-
ingin yrði birt, hvað þá að hún myndi
vekja svona mikla athygli.
Að sögn Guðmundar fór Elvar
strax heim úr vinnunni og tékkaði á
auglýsingunni þegar símtölunum
linnti ekki. „Hann áttaði sig strax
á því hverjir þetta væru, hringdi
í mig og skellti upp úr, tók þessu
ákaflega létt,“ segir Guð-
mundur. Hann tekur hins vegar
skýrt fram að þessum litla hrekk sé
ekki beint gegn kærustu Elvars,
hún sé yndisleg stelpa. „Smáauglýs-
ingin virkaði hins vegar því við
erum búnir að ákveða að hittast
sem fyrst,“ segir Guðmundur.
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
„Þetta er ekki minn stíll. Sigurður
Kári myndi aldrei fá svona mót-
tökur hér og ég hálfskammast mín
fyrir þetta,“ segir Sævar Karl Óla-
son kaupmaður um sjónvarpsþátt-
inn Tekinn, sem sýndur var á Sirk-
us á mánudagskvöld.
Í þættinum var Sigurður Kári
Kristjánsson alþingismaður boð-
aður í herrafataverslun Sævars
Karls í Bankastræti til að gera
kjarakaup. Það runnu hins vegar
tvær grímur á þingmanninn þegar
hann sat uppi með himinháan
reikning og ekki bætti úr skák að
„afgreiðslukonan“ var hinn dóna-
legasta. Þegar Sigurður var við
það að storma út í fússi birtist
Auðunn Blöndal, umsjónarmaður
þáttarins, og gerði gott úr öllu
saman.
Sævar Karl segir að þótt mörg-
um finnist hrekkurinn eflaust fynd-
inn hafi hann ekki fallið í kramið
hjá sér. „Auðunn er grallari og tekur
upp á ýmsu. Ég er líka grallari en
mitt grín er öðruvísi. Sjálfum fannst
mér verið að niðurlægja Sigurð
Kára, sem við myndum aldrei gera,
hvorki við hann né aðra. Við reyn-
um að veita öllum persónulega
þjónustu, enda kemur hingað fólk
úr öllum stéttum.“ Sævar segist ótt-
ast að uppátækið eigi eftir að skaða
sig frekar en hitt, en er þó ekki
ósáttur við Auðun. „Þetta er hvort
eð er búið og gert.“
Sjálfur kveðst Auðunn hafa
útskýrt hrekkinn fyrir Sævari.
„Hann virtist bara taka þessu sem
góðu gríni og eftir þáttinn voru
allir sáttir. Sigurður kom líka vel
út úr þessu,“ segir hann og telur
ástæðulaust fyrir Sævar að hafa
áhyggjur. „Ég held að allir viti að
svona er búðin ekki.“
Sævar Karl ósáttur við Tekinn
… Kjartan Halldórsson,
eigandi Sægreifans, fyrir að
matreiða humarsúpu svo
bragðgóða að hún var lofuð á
síðum The New York Times.
Óvenjumikil endurnýjun hefur
verið í stétt veðurfréttamanna
að undanförnu. Tvö ný andlit
hafa birst á sjónvarpsskjám
landsmanna sem heyrir til tíð-
inda þar á bæ. Báðir nýliðarnir
eru 29 ára gamlir, þau Soffía
Sveinsdóttir á Stöð 2 og Hálfdán
Ágústsson í Sjónvarpinu.
„Ég get viðurkennt það að ég
hefði ekki trúað því fyrir tveim-
ur mánuðum að ég ætti eftir að
lesa veðurfréttir í sjónvarpinu,“
segir Soffía sem kann vel við sig
í nýja starfinu. Hún er efnafræð-
ingur að mennt og starfar sem
kennari í Menntaskólanum við
Hamrahlíð. Soffía birtist fyrst á
sjónvarpsskjánum í hádegis-
fréttum fyrir þremur vikum en
um síðustu helgi steig hún skref-
ið til fulls og las veðurfréttir í
kvöldfréttatímanum.
„Já, ég hef áhuga á veður-
fræði og hann fer vaxandi nú
þegar maður fer að garfast í
þessu. Bakgrunnur minn úr nám-
inu nýtist líka ágætlega,“ segir
Soffía sem er einhleyp og barn-
laus. Hún segist alveg vera til í
að starfa áfram sem veðurfrétta-
maður. „Þetta er nú bara auka-
vinna enn sem komið er en það
er aldrei að vita.“
„Ég held að þetta hafi bara
gengið ágætlega. Ég var búinn
að æfa mig aðeins en var samt
pínu stressaður. Þetta kemur
væntanlega með æfingunni,“
segir Hálfdán Ágústsson, nýlið-
inn á RÚV, sem birtist lands-
mönnum á skjánum í fyrsta
skipti síðasta föstudagskvöld.
Hálfdán er í doktorsnámi í veð-
urfræði, í læri hjá sjálfum Har-
aldi Ólafssyni, og rannsakar
vindhviður í fjalllendi. „Þetta er
skemmtilegt nám. Við erum samt
ekkert margir í doktorsnáminu,
kannski tveir eða þrír,“ segir
hinn lofaði og 29 ára gamli Hálf-
dán. Hann gerir sér vel grein
fyrir því að Íslendingar eru afar
áhugasamir um veður og veður-
fregnir og hafa skoðanir á mál-
unum. „Við erum greinilega milli
tannanna á fólki. Það sést vel
þegar tónlistarmenn eru farnir
að semja lög um okkur,“ segir
Hálfdán og vísar í nýlegt lag
Bogomil Font og Flísar, Veður-
fræðingar ljúga. „Það hafa allir
skoðun á þessu,“ segir Hálfdán.
Lýstu eftir horfnum félaga í tapað-fundið
Nánar á www.expressferdir.is eða í síma 5 900 100
PAKKAFERÐIR
VIÐ ALLRA HÆFI
Öll verð miðast við að tveir séu saman í herbergi.
Tottenham–Wigan
58.900 kr.24.–27. nóv.
27.–29. nóv.
George Michael
69.900 kr.
Berlín í jólaundirbúningi
51.900 kr.24.–27. nóv.
Aðventuferð til Trier
59.900 kr.8.–11. des.
Sheraton Real de Faula
Verð frá 59.180 kr.Valfrjálst
Arsenal–Man. City
54.900 kr.30.–31. jan.
Chelsea–Arsenal
69.900 kr.9.–11. des.
Arsenal–Portsmouth
59.900 kr.15.–17. des.
Óli Palli og The Pogues
59.900 kr.16.–18. des.
Liverpool–Everton
84.900 kr.2.–4. feb.
Nú verða læti á Anfield Road því að Everton
mætir á svæðið að þessu sinni. Þetta er leikur
sem allir stuðningsmenn beggja liða bíða eftir
með mikilli eftirvæntingu. Innifalið: Flug með
sköttum, hótel í 2 nætur með morgunverði og
miði á leikinn.
Aðventuferð til Berlínar, helgarferð. Tilvalið að
skoða borgina, fara tónleika, borða góðan
mat, kíkja á jólamarkaðina og klára jóla-
gjafirnar! Innifalið: Flug með sköttum, gisting
á 4 stjörnu hóteli og akstur til og frá flugvelli.