Fréttablaðið - 16.11.2006, Blaðsíða 88
Á morgun heldur Landslið mat-
reiðslumanna í heimsmeistara-
keppnina í Lúxemborg, en hún
stendur yfir 18. til 22. nóvember.
Liðið er skipað átta úrvalskokk-
um, og gegna þeir Ragnar Ómars-
son, yfirmatreiðslumaður á Salti,
og Bjarni Gunnar Kristinsson,
yfirmatreiðslumaður á Grillinu,
stöðum spilandi þjálfara.
Annars vegar er keppt í heitu
eldhúsi, og hefur liðið þá fimm
klukkutíma til að snara fram
þriggja rétta matseðli fyrir 115
manns, og hins vegar í köldu borði.
„Í heita matnum eigum við að vera
með fisk eða skelfisk í forrétt, kjöt
í aðalrétt og svo eftirrétt, en það er
undir hverju landi komið hvað þeir
gera. Við verðum með humar og
bleikju í forrétt og lamb í aðalrétt.
Við höfum verið með lambið í mörg
ár og dómararnir hlakka alltaf til
að fá það,“ sagði Ragnar.
Stífur undirbúningur bíður liðs-
ins í Lúxemborg. „Við fáum hótel-
eldhúsið lánað. Það er náttúrlega í
notkun á daginn en við vinnum
bara vel á nóttunni og sofum í törn-
um,“ sagði Ragnar. Íslenska liðið
hefur staðið sig frábærlega undan-
farin ár, en í ár stefnir liðið að því
að halda stöðu sinni á topp tíu-list-
anum. „Það er nóg af þjóðum á
hælum okkar,“ sagði Ragnar.
Landsliðið til Lúxemborgar
… að uppþvottalögur getur virkað
alveg jafn vel og ofurofnhreinsir.
Sprautaðu smá uppþvottalegi
blönduðum örlitlu vatni í
ofninn, hitaðu hann aðeins og
óhreinindin munu renna af.
Finnst sveppir og rækjur vondar
Víngerðarmaðurinn Aurelio
Montes heimsótti Ísland og
kynnti vínin sín. Hann er
þjóðhetja í Chile eftir að
hafa umbylt víngerð þar í
landi fyrir röskum tveimur
áratugum.
Árelíó hver, hváði vinur minn
þegar ég sagði honum að ég væri
að fara að hitta Aurelio Montes.
Eitthvað rofaði til þegar ég sagði
honum að hann væri frægasti vín-
gerðarmaður Suður-Ameríku.
„Montes, auðvitað, oft drukkið
það.“ Og hefðu margir Íslendingar
getað svarað á svipaðan máta enda
vart það mannsbarn sem yfirhöf-
uð hefur dreypt á léttvíni sem ekki
hefur smakkað vínin frá Montes.
Þau hafa verið með vinsælustu
vínum í vínbúðum allar götur frá
því þau komu fyrst á markaðinn
hér árið 1989. Samt vitum við
giska lítið um manninn á bak við
vínið. „Þótt vínin beri nafn mitt
vil ég helst vera í bakgrunninum.
Það eru vínin en ekki mennirnir
sem búa þau til sem skipta öllu
máli,” segir Aurelio Montes.
Hafi fólk á annað borð áhuga á
vínum er þó ekki hægt annað en að
forvitnast um menn á borð við
Aurelio Montes. Saga hans er sam-
tvinnuð framrásinni í víngerð í
Suður-Ameríku og breytingum á
vínneyslu á Vesturlöndum. Mont-
es var prímusmótor í þeirri
umbyltingu er varð í víngerð í
Chile fyrir röskum tveimur ára-
tugum. Sannfæring hans var að
náttúrulegar aðstæður í Chile
væru svo stórkostlegar að ómögu-
legt væri annað en að búa til vín
sem stæðust samanburð við það
sem best gerðist annars staðar.
Eldmóðurinn og skjót velgengni
hafði smitandi áhrif á kollega
hans. Öll helstu vínhús landsins
lögðu í miklar umbætur á víngerð-
inni með þeim árangri að Chile er
nú eitt helsta vínframleiðsluland
heims. Hér á landi hafa vínin frá
Montes verið í hópi mest seldu
vína.
Vínframleiðsa er orðin ein mikil-
vægasta útflutningsgrein Chile á
eftir kopar og laxeldi. Velgengni
vínanna hefur fyllt Chile-menn
miklu stolti og er Aurelio Montes
þjóðhetja þar í landi. Þessi hóg-
væri maður gefur þó lítið fyrir
eigin frægð og færir undantekn-
ingarlítið talið frá sjálfum sér og
að víngerðinni þegar hann er
spurður út í eigin hagi. Stór hluti
spjalls okkar fer í að ræða
nágrannana í Argentínu í víðu
samhengi en Montes hefur frá því
2001 byggt upp víngerð í Argent-
ínu undir nafninu Kaiken. „Nafnið
kemur úr máli mapuche-indjána.
Kaiken er gæs sem á sér híbýli
beggja vegna Andesfjallanna í
Patagóníu sem er landsvæði syðst
í Chile og Argentínu. Nafnið endur-
speglar að þetta er samvinnuverk-
efni þessara tveggja nágranna-
landa. Argentínumenn eru
skemmtilegir og það er mjög
gaman að vinna þar þótt það sé
talsvert frábrugðið því sem gerist
heima. Efnahagslífið er afar
óstöðugt en við höfum verið svo
lánsöm í Chile að búa við lang-
varandi hagsæld og stöðugleika.
Aðstæður til vínræktar eru ger-
ólíkar, meginlandsloftslag á meðan
við búum við úthafsloftslag. Afar
krefjandi umhverfi en gefandi.“
Aurelio er mikill náttúruunnandi,
hestamaður og flugmaður sem
þvælist upp og niður eftir landinu
mjóa á lítilli rellu og smellir sér
niður á túnin við hlið vínakranna.
Hendir sér síðan beint á hestbak
og æðir út á vínekrurnar. Þannig
nær hann mikilli yfirreið á skömm-
um tíma og getur það skipt sköp-
um í vínrækinni. „Ég vil vera með
puttana eins mikið í þessu sjálfur
og ég get. Tæknin hefur batnað
mikið en það eru alltaf ný við-
fangsefni, ég hef t.d. miklar
áhyggjur af loftlagsbreytingum.
Það hefur orðið gjörbreyting
þau 30 ár sem ég hef starfað í vín-
gerð og ég sólbrenn á ekrum þar
sem ég svitnaði ekki fyrir nokkr-
um áratugum. Ég gæti þurft að
færa sumar vínekrurnar af þess-
um sökum. Það er þó ekki útaf
þessu sem ég er að færa út kvíarn-
ar til annarra landa, þar ræður
ævintýraþráin og vonin um að
geta búið til vín sem eru frábær
og öðruvísi. Ég veit þó ekki hvort
ég fer að vaða út um víðan völl en
ef ég færi eitthvað þá myndi ég
vilja skoða víngerð á Spáni eða
Ástralíu frekar en önnur svæði í
Suður-Ameríku því þar eru árstíð-
irnar aðrar og uppskerutíminn
skarast ekki.“