Fréttablaðið - 22.11.2006, Side 25

Fréttablaðið - 22.11.2006, Side 25
Smáauglýsingasími 550 5000 Auglýsingasími Allt 550 5880 Þú getur pantað smáauglýsingar á visir.is Benedikt Axelsson hefur starfað sem leikhústæknimaður síðan 1991. Sam- hliða vinnunni lærir hann nú lýsingar- fræði í Iðnskólanum í Reykjavík. Lýsingarfræði er nýtt þrjátíu eininga fjar- nám í Iðnskólanum sem gefur nemendum um allt land færi á að stunda námið samhliða vinnu og Benedikt segir að flestir þeir sem eru með honum í lýsingarfræði taki hana annaðhvort með vinnu eða öðru námi. „All- flestir sem eru í náminu eru styrktir til þess af fyrirtækjunum sem þeir vinna hjá en þetta á að skila sér aftur inn í þau,“ segir hann. Benedikt segir að lýsingarfræði sé gríðar- lega umfangsmikið nám. „Lýsingarfræði spannar innanhússlýsingu, arkitektúrlýs- ingu, ráðgjöf á lýsingarbúnaði, sviðslýsingu og lýsingu á listasöfnum og öðru slíku. Lýs- ingarfræðin í Iðnskólanum tekur tvær annir eða einn vetur og markmiðið er síðan að bjóða upp á framhaldsnám í lýsingarhönnun.“ Lýsingarfræðinámið í Iðnskólanum er mjög gott nám að sögn Benedikts. „Ég er svo- lítið búinn að vera á höttunum eftir svona námi en það hefur hvergi verið í boði nema erlendis og skemmtilegt framtak hjá Iðnskól- anum að bjóða upp á þetta. Ég hef verið að sækja eitt og eitt námskeið hjá Dramatisk Institutet í Stokkhólmi en það var lengi vel eini leikhústækniskólinn á háskólastigi hér á Norðurlöndunum.“ Benedikt hefur starfað sem leikhústækni- maður í fjölda ára og hefur því töluverða reynslu á þessu sviði. „Síðustu árin hef ég verið tæknistjóri hjá Íslenska dansflokknum en ég er búinn að vera víðast hvar, í Borgar- leikhúsinu, Þjóðleikhúsinu og Íslensku óper- unni. Ég hef verið að sjá um lýsingu, hanna ljós og yfirleitt sjá um allt sem viðkemur tækni í leikhúsinu.“ Þó að hann hafi gaman af starfi sínu er hann samt að hugsa um að fara aðeins að breyta til. „Ég er að hugsa um að fara að færa mig aðeins út úr leikhúsunum og inn í arkitektúrlýsingu og utanhússlýsingu og slíkt, því það heillar mig líka.“ Lýsir upp umhverfið MAZDA TRIBUTE Traustur fjölskyldubíll
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.