Fréttablaðið - 22.11.2006, Side 40
MARKAÐURINN
Jón Aðalsteinn Bergsveinsson
skrifar
Bandaríski hlutabréfamarkaðurinn Nasdaq gerði
yfirtökutilboð í kauphöll Lundúna í Bretlandi, LSE,
á mánudag. Tilboðið hljóðaði upp á 2,7 milljarða
punda eða 357 milljarða íslenskra króna. Þetta var í
annað sinn á árinu sem Nasdaq-markaðurinn gerir
tilboð í LSE. Síðar sama dag ákvað stjórn LSE að
taka tilboðinu ekki.
Nokkrir hlutabréfamarkaðir jafnt vestanhafs
sem og á meginlandi Evrópu hafa horft til þess
að ganga í eina sæng með LSE síðan í desember
í hittifyrra. Þar á meðal eru þýska kauphöllin í
Frankfurt, Deutsche Börse, ástralski fjárfestingar-
bankinn Macquarie og samevrópski hlutabréfa-
markaðurinn Euronext.
Tilraunir markaðanna til yfirtöku hafa haft mikil
áhrif á gengi bréfa í LSE en það hefur hækkað um
124 prósent síðan yfirtökutilraunir hófust fyrir
tæpum tveimur árum.
Nasdaq gerði fyrst yfirtökutilboð í LSE í mars
síðastliðnum en það hljóðaði upp á 2,4 milljarða
punda eða rúma 313 milljarða íslenskra króna.
Stjórn LSE felldi tilboðið og festi Nasdaq sér um
þriðjungshlut í markaðnum í kjölfarið. Samfara
yfirtökutilboðinu nú hefur Nasdaq sömuleiðis keypt
sjö milljónir hluta í LSE til viðbótar og aukið hlut
sinn í 28,75 prósent.
Síðdegis á mánudag barst svo tilkynning frá LSE
þar sem fram kemur að Clara Furse, forstjóri LSE,
telji tilboðið of lágt, það endurspegli ekki mikinn
vöxt og framtíðarhorfur LSE.
Haft hefur verið eftir Robert Greifeld, for-
stjóra Nasdaq, að verði af kaupum á LSE stefni
markaðurinn á skráningu bæði vestanhafs og
í Evrópu. Nasdaq mun hins vegar ekki hafa í
hyggju að endurskoða yfirtökutilboð sitt nema
annar markaður bjóði í LSE, að hans sögn.
22. NÓVEMBER 2006 MIÐVIKUDAGUR6
Ú T L Ö N D
LSE hryggbraut
Nasdaq í annað sinn
Stjórn Nasdaq gerði yfirtökutilboð í LSE í annað sinn á
mánudag. Því var hafnað.
Breska gervihnattasjónvarps-
stöðin BSkyB keypti í síðustu
viku 17,9 prósenta hlut í ITV, einu
stærsta einkarekna sjónvarps-
félagi Bretlands. Kaupverð
nemur 940 milljónum punda
eða 124,3 milljörðum íslenskra
króna.
Eigandi BSkyB, sem eftir
kaupin á 19,9 prósenta hlut í ITV,
er fjölmiðlakóngurinn Rupert
Murdoch en sonur hans, James
Murdoch, er forstjóri BSkyB.
Skoska dagblaðið The Scotsman
segir kaupin mikilvæg fyrir
Murdoch en bætir við að BSkyB
hafi ekki í hyggju að gera
yfirtökutilboð í félagið og líti á
kaupin sem langtímafjárfestingu.
Kaup BSkyB hafa hins vegar
reitt breska afþreyingar- og
fjarskiptakónginn Richard
Branson til reiði en kapalstöðin
NTL sem Branson á rúman
tíunda hlut í, í gegnum félag
sitt Virgin Group, hefur átt í
samrunaviðræðum við ITV.
Við bætist að BSkyB er stór
hluthafi í NTL en Branson hefur
farið fram á að fjarskiptaeftirlit
Bretlands skeri úr um hvort
kaupin séu lögmæt.
Þrátt fyrir þetta eru kaup
BSkyB sögð vörn Breta gegn yfir-
töku þýsku sjónvarpsstöðvarinnar
RTL, sem sögð er íhuga að gera
fimm milljarða punda, eða ríflega
660 milljarða króna, yfirtökutilboð
í ITV, sem rekið hefur verið án
forstjóra síðan í ágúst. - jab
Bretar berjast um
sjónvarpsstöð
Danir ættu nú að geta glaðst yfir
velgengni sinni í viðskiptalífinu
því danski fjárfestingarbankinn
Saxo Bank var í síðustu viku valinn
besti banki í heimi.
Tæplega 4.200 lesendur breska
viðskiptatímaritsins FX Week
Magazine völdu bankann í þetta
virðingarverða sæti í alþjóðlegri
könnun.
Þá lenti bankinn sömuleiðis í
fyrsta sæti sem besti gjaldeyris-
banki Norðurlandanna auk þess
að vera með besta netbankann. Í
umsögn blaðsins segir meðal ann-
ars að erlendum fjárfestum hugn-
ist bankinn einkar vel.
Stjórnendur bankans geta vel
við unað því fjögur þúsund bank-
ar víða um heim kepptu um sæti
á lista FX Week Magazine, sem
meðal annars flaggar risabönk-
um á borð við Citigroup, HSBC,
Barclays Capital og JP Morgan í
tíu efstu sætunum.
Eric Frydenlund Michelsen,
forstjóri bankans, segir verðlaunin
einkar ánægjuleg, sérstaklega þar
sem bankinn hafi borið sigur úr
býtum í samkeppni við stóra og
rótgróna banka sem hafi verið
lengi við lýði.
Þá sagði Michelsen enn fremur
að viðurkenningin sé fyrirtaks
auglýsing sem muni laða að fleiri
viðskiptavini auk þess sem verð-
launin komi til með að nýtast við
frekari útrás bankans. - jab
Heimsins besti
banki í Danmörku
Gerald Grinstein, for-
stjóri bandaríska flug-
félagsins Delta og aðrir
stjórnendur þess, unnu að
því hörðum höndum í lok
síðustu viku að sannfæra
hluthafa í flugfélaginu
um að hafna óvinveittu
yfirtökutilboði landa
þeirra og samkeppnis-
aðila hjá flugfélaginu US
Airways, sem lagt var
fram á miðvikudag.
Bandaríska dagblaðið Wall
Street Journal segir
stjórnina reyna að vinna
stuðning lánardrottna,
því þörf sé á stífri hag-
ræðingu í rekstri flug-
félagsins til að forða því
frá gjaldþroti.
US Airways er sjö-
unda stærsta flugfélag
Bandaríkjanna en hjá
því starfa 35.000 manns.
Delta er hins vegar
þriðja stærsta flugfélag landsins
með 47.000 starfsmenn. - jab
Delta berst gegn
samruna flugfélaga Stjórn þýska bílaframleiðandans Porsche hefur aukið við hlut sinn
í bílasmiðjum Volkswagen.
Porsche keypti 21,2 prósenta
hlut í Volkswagen á síðasta ári
en Wendelin Wiedeking, forstjóri
Porsche, sagði skömmu síðar að
fyrirtækið ætlaði ekki að verða
sem þögull farþegi í aftursætinu
og jók hlutinn fyrir skömmu í
27,4 prósent.
Þá hefur forstjórinn gefið í
skyn að fyrirtækið muni auka
hlutinn enn frekar á næstunni
og fara í 29,9 prósent. Fari
hluturinn í 30 prósent verður
Porsche að gera yfirtökutilboð í
Volkswagen, samkvæmt þýskum
reglum.
Porsche getur hins vegar
seint eignast allan hlut í
Volkswagen því 50 ára þýsk lög,
sem nefnd hafa verið VW-lögin,
kveða á um að héraðsstjórnin í
Neðra-Saxlandi hafi 20 prósent
atkvæðaréttar í Volkswagen, til
að tryggja framleiðslu á bílum
og störf í héraðinu.
Framkvæmdastjórn Evrópu-
sambandsins hefur sett sig upp
á móti lögunum enda telur hún
lögin hamla heilbrigðri sam-
keppni og mun í næsta mánuði
ákveða hvort lögin verða afnumin
þrátt fyrir mikinn stuðning við
þau í Neðra-Saxlandi. Verði sú
raunin fær Porsche tækifæri til
að auka enn frekar við stjórnina
hjá Volkswagen. - jab
Porsche eykur við í Volkswagen
Milljarðamæringurinn Warren
Buffett, sem gjarnan hefur
verið nefndur „vitringurinn frá
Omaha“ vegna hæfileika sinna á
fjármálasviðinu, er í þann mund
að slá í gegn sem teiknimynda-
persóna í þáttunum „Leynilegi
milljóneraklúbburinn“ (e. The
Secret Millionaire´s Club).
Bandaríska fyrirtækið DIC
Entertainment ætlar að gera
þrettán þátta teiknimyndaseríu
um Buffett og ráð hans, en mark-
miðið er að kenna börnum á aldr-
inum fimm til tólf ára að höndla
fjármuni.
Andrew Heyward, stjórnar-
formaður og forstjóri DIC
Entertainment, segir fyrirtækið
vart geta hafa fengið betri mann
í hlutverkið enda hlusti margir
eftir hverju því sem Buffett
segi.
Í þáttunum er Warren Buffett
góðhjartaður ráðgjafi sem nokkur
börn, sem búsett eru í Omaha í
Nebraska í Bandaríkjunum, leita
til einu sinni í viku þegar þau
þurfa á ráðum að halda til að
bjarga tómstundaheimili sínu úr
klóm samviskulauss verktaka,
sem hefur keypt það og ætlar
að rífa.
Samstarf DIC Entertainment
og Buffetts er ekki nýtt af nálinni
en fyrirtækið hefur gert stuttar
teiknimyndir, sem sýndar hafa
verið á hluthafafundum Berkshire
Hathaway, fjárfestingarsjóði
Warrens Buffetts. - jab
Buffett fræðir börn um fjárfestingar