Fréttablaðið - 22.11.2006, Blaðsíða 88
Myndlistarmennirnir Helga Ósk-
arsdóttir og Kristinn Már Pálma-
son opnuðu sýningar í Kling og
Bang gallerí um síðustu helgi. Á
jarðhæð er að finna sýningu Helgu
sem ber yfirskriftina „Myndlist-
ardreifing“ en í kjallara sýnir
Kristinn Már „Krimp og Kling og
Bang og Slang - Félagslega mál-
verkið“. Segja má að báðir lista-
mennirnir hafa virkjað áhorfend-
ur og gesti sem þáttakendur í
sýningunum, þó á ólíkan hátt.
Helga Óskarsdóttir laðaðist
fyrir löngu að alls kyns dóti sem
hún rak augun í á göngum sínum
um Amsterdam og Lundúnir þar
sem hún sótti listaskóla. Stundum
lét hún sér nægja að raða nokkr-
um hlutum saman og skilja þá
eftir á götunni þar sem aðrir gætu
séð þá og kannski farið að velta
fyrir sér samsetningunni en stund-
um hefur hún líka safnað þeim
saman og sett fram sem verk á
sýningu, líkt og útstillingu á forn-
gripa- eða náttúrusafni. Þannig
hefur hún orðið eins og náttúru-
eða fornleifafræðingur í samtíma
sínum, safnar ýmsu og miðlar því
síðan aftur til okkar hinna svo við
getum hugsanlega haft af því ein-
hver not eða innblástur.
Á sýningu sinni „Myndlistar-
dreifing“ fá sýningargestir gul-
máluð fræ að gjöf frá Helgu sem
bera tilganginn ekki utan á sér.
Formið fer reyndar vel í hendi og
hlutirnir eru þægilega massífir og
fastir í sér, eins og gott verkfæri,
gerðarlegir, en þótt Helga velti
upp ýmsum notkunarmöguleikum
fylgir þeim engin klár forskrift,
engin fyrirfram gefin merking.
Kristinn Már hefur gert marg-
víslegar tilraunir í málverki og
unnið jöfnum höndum að þróun
myndmáls og aðferða innan
ramma hins hefðbundna tvívíða
flatar ogútvíkkun málverks í tíma-
efnis-, og rýmistengdu samhengi.
Í kjallara Kling og Bang gallerí er
sýning sem er hljóð og málverka-
innsetning sem er hugsuð sem
samvinnuverkefni milli lista-
mannsins og listnjótandans og þar
með töldum aðstandendum Kling
& Bang gallerís. Innsetningin er
meðal annars í formi álfleka sem
er eitt stykki samsett úr 32 eining-
um er raðast eftir reglum lista-
mannsins inn í kjallararými gall-
erísins. Þessu verki fylgir hilla úr
krossviði fyrir úðabrúsa og túss-
liti, gestir sýningarinnar mála eða
skrifa sjálfir verkið en undir
hljómar afar innblásið ástarljóð
byggt upp af listamanninum sjálf-
um. Hljóðverkið er tímatengt
uppábrot og mikilvæg andstæða í
heildarinnsetningunni. Félagslega
málverkið er margslungið og til-
finningaþrungið borgarlandslags-
verk.
Kling og Bang gallerí er opið
fimmtudaga til sunnudaga frá
klukkan 14-18. Sýningin stendur
til 10. desember.
Listræn þátttaka
Ungur ljósmyndari í New York fær
það verkefni að mynda miðaldra
ekkju þekkts ljósmyndara. Ljós-
myndarinn býr með fyrirsætu en
þegar hann hittir ekkjuna verður
það ást við fyrstu sýn af beggja
hálfu. Sagan fjallar síðan um sam-
drátt þeirra með tilheyrandi upp-
gjöri ljósmyndarans við fyrirsæt-
una (með stórum
afbrýðisemisköstum) – og allmik-
illi tregðu af hálfu ekkjunnar
(vegna aldursmunar). Ævi ekkj-
unnar er rifjuð upp, ekki ljósmynd-
arans. Lesandinn fær lítið um hann
að vita utan það sem er að gerast í
núi sögunnar. Ævi ekkjunnar nær
frá Íslandi til Frakklands og þaðan
til New York og lesandinn fær að
vita að hún hefur einnig dvalið á
Ítalíu með eiginmanninum heitn-
um.
Saga ljósmyndarans og ekkj-
unnar hefst í Bandaríkjunum, berst
síðan til Napólí, þaðan til Reykja-
víkur og aftur til Bandaríkjanna.
Feimnismál er nokkuð stefnu-
ráfandi saga. Í henni er að finna
dálítið mörg samtöl um ljósmynd-
un, sum þannig að það er eins og að
lesa sýningarskrá á ljósmyndasýn-
ingu. Einnig eiga staðarlýsingar til
að nálgast lýsingar í bæklingum
fyrir ferðamenn. Kveður býsna
rammt að þessu þegar sagan berst
til Napólí og heldur síðan áfram á
Íslandi. Í sögunni eru einnig all-
margar máltíðir og þeim lýst af
nákvæmni. Það er ekki alltaf ljóst
hvort hér er um að ræða kynningu
fyrir ferðamenn, matgæðinga eða
áhugamenn um ljósmyndun.
Umhverfislýsingar eru miklar og
nokkuð nákvæmar af upplýsingum
sem ekki verður í fljótu bragði séð
að komi sögunni við. Dæmi: “ Í
hinu horninu voru hillur með ljós-
myndabókum, möppum og kössum,
stórt hátt borð og á því myndir,
filmur, myndavélar og græjur sem
hún kunni engin skil á.” (bls.121-
122).
Sjálf sagan, fortíð ekkjunnar og
samskipti hennar við ljósmyndar-
ans tvinnast síðan í kringum lýs-
ingarnar en virka fyrir bragðið
eins og aukaatriði. Það er líka dálít-
ið ótrúverðugt að þau skuli ekki
átta sig á því fyrr en í miðri sögu
að þau eru bæði íslensk. Helsti
veikleiki sögunnar er persónusköp-
un. Jón ljósmyndari, Edda ekkja,
(aðalpersónurnar) Lisa fyrirsæta,
Tony vinur þeirra allra (helstu
aukapersónur) eru mjög keimlíkar.
Það er lítið í málfari, stíl og lýsingu
sem greinir þær að. Fyrir utan
almenna umræðu um ljósmyndun
og listir eru samtöl innihaldsrýr.
Samtöl Jóns og Lisu eru öll í átaka-
stíl, samtöl Jóns og ekkkjunnar eru
nánast öll um rök hans fyrir því að
samband þeirra geti gengið, mót-
mæli hennar um að það sé útilokað.
Samtöl eru því melódramatísk og í
þeim heldur mikil endurtekning.
Það eru líka nokkur lýti á textanum
hversu oft orð eins og „rosalega“,
„gasalega“, „æðislega“, o.s.frv. eru
notuð. Þau eru einfaldlega trufl-
andi í ritmáli.
Í Feimnismálum er stundum
vísað í Þúsund og eina nótt og talað
um allar aukasögurnar í sögunum
þar. Það er líklegt að höfundurinn
sé að leika sér að því formi en það
skortir nokkuð upp á skáldskapinn
til þess að það gangi upp.
Ekkjan og ljósmyndarinn
Bandaríski kvikmyndaleikstjór-
inn Robert Altman er látinn, 81
árs að aldri. Altman var einn
áhrifamesti kvikmyndaleikstjóri
20. aldar og þótti hafa afar sér-
stakan stíl. Eftir hann liggja verk
á borð við M-A-S-H, Nashville,
The Player, Gosford Park og nú
síðast A Prairie Home Companion,
sem kom út fyrr á árinu.
Altman lést á spítala í Los Ang-
eles á mánudagskvöld en þegar
blaðið fór í prentun hafði bana-
mein hans ekki verið gefið upp.
Hann var fimm sinnum tilnefndur
til Óskarsverðlauna sem besti
leikstjóri, síðast árið 2001 fyrir
Gosford Park, og í ár hlaut hann
heiðuróskarinn fyrir framlag sitt
til kvikmyndalistarinnar.
Meðal stíleinkenna Altmans er
að oftar en ekki notaðist hann við
stóran leikhóp, sem hann lét stund-
um spinna heilu og hálfu atriðin á
staðnum og myndavélin er yfir-
leitt á stöðugri hreyfingu. Ferill
hans hófst í byrjun sjötta áratug-
arins en hann sló fyrst í gegn með
háðsádeilunni M-A-S-H árið 1970.
Altman
látinn
Draumasmiðjan
og
Hafnarfjarðarleikhúsið
VIÐTALIÐ
Sýnt í Hafnarfjarðarleikhúsinu
23. nóvember kl. 20:00
SÍÐASTA SÝNING
Miðapantanir: 555 2222
(símsvari) eða á midi.is