Fréttablaðið - 22.11.2006, Page 93

Fréttablaðið - 22.11.2006, Page 93
Peter Jackson hefur til- kynnt að hann muni ekki leikstýra kvikmyndaútgáfu af Hobbitanum, forsögu Hringadrottinssögu. Nýsjálenski leikstjórinn lýsti þessu yfir í pósti til heimasíðunnar TheOneRing.net en aðdáendur J. R.R. Tolkien og Hringadrottinssögu hafa lengið bundið vonir við að Jackson myndi færa þetta meist- arastykki á hvíta tjaldið. Tolkien skrifaði Hobbitann árið 1937 og lýsir bókin því hvernig hringurinn kemst í hendur Bilbo Baggins. Bókin er því forleikur fyrir Hringa- drottinssögurnar þrjár og þykir mörgum hún jafnvel betri en hinar bækurnar þrjár. Leikstjórinn skrifaði í pósti sínum að fulltrúar New Line Cinema hefðu krafist þess að hann felldi niður málsókn sem hann hefur hafið vegna fyrstu Hringadrottinskvik- myndarinnar ef hann vildi gera myndina. „Við höfum alltaf reiknað með að gera tvær myndir á sama hátt og við gerðum Hringadrottins- sögu,“ skrifar Jackson til aðdáenda sinna. „Við trúðum því að málsóknin yrði til lykta leidd og þannig gæti ferlið farið af stað með tilheyrandi látum,“ heldur hann áfram. Jackson greinir frá því að fundur hafi verið ákveðinn með stjórn- endum fyrirtækisins en þeir hafi afboðað komu sína og skömmu síðar hafi umboðsmaður hans fengið hringingu frá New Line Cinema. „Þar var okkur tjáð að þjónustu okkar væri ekki lengur óskað fyrir Hobbitann og framhaldsmyndina,“ skrifar Jackson. „Fyrirtækið hefur ákveðið að fá annan mann til að gera þessar myndir vegna þess að þeir segjast ekki hafa endalausan tíma.“ Chris Perotta, einn af stofnend- um heimasíðunnar TheOneRing. net, sagði að aðdáendur Tolkiens og Jacksons hefðu brugðist illa við þessum fréttum. „Við höfum fengið póst þar sem fólk hótar að snið- ganga kvikmyndir New Line Cinema,“ sagði Perotta í samtali við Reuters-fréttastofuna en frá þessu er greint á fréttasíðu BBC. www.haskolabio.is HAGATORGI • S. 530 1919 Munið afsláttinn / ÁLFABAKKA / KEFLAVÍK/ KRINGLUNNI / AKUREYRI THE DEPARTED kl. 8 - 10:10 B.i.16 JÓNAS M/- Ísl tal. kl. 6 Leyfð ADRIFT kl. 8 - 10:10 B.i.12 THE LAST KISS kl. 8 B.i.12 BÆJARHLAÐIÐ M/- Ísl tal. kl. 6 Leyfð MATERIAL GIRLS kl. 6 Leyfð THE DEPARTED kl. 7:30 - 10:30 B.i.16 THE LAST KISS kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i.12 BÆJARHLAÐIÐ M/- Ísl tal. kl. 3:40 Leyfð JACKASS NUMBER TWO kl. 4 B.i.12 ÓBYGGÐIRNAR M/- Ísl tal. kl. 3:50 Leyfð CASINO ROYALE kl. 4:30 – 7:30 – 10:30 B.i.14 CASINO ROYALE VIP kl. 4:30 – 7:30 – 10:30 JÓNAS M/- Ísl tal. kl. 4 - 5:45 Leyfð FLY BOYS kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.12 ADRIFT kl. 5:45 - 8 - 10:10 B.i.12 VEGGIE TALES M/- Ísl tal. kl. 6 Leyfð THE DEPARTED kl 8 B.i.12 BÖRN kl 6 - 8 B.i.12 CASINO ROYALE kl. 7 - 10 B.i. 12 BORAT kl. 8 - 10 B.i. 16 THE DEPARTED kl. 10:10 B.i. 16 THE QUEEN kl. 6 B.i. 12 BÖRN kl. 6 - 8 B.i.12 SCANNER DARKLY kl. 6 - 8 - 10:10 B.i.16 MÝRIN kl. 7 - 9 B.i. 12 FLY BOYS kl. 6 - 9 B.i.12 „...Loksins fundinn Leikari sem fyllir skarð Connerys. Hann Hefur mýkt og Hörku, drottnandi útgeislun og er ámóta karlmannlegur á velli og skotinn.” -SV MBL Sýnd í í SAMbíóunum Kringlunni EMPIRE ALLAR SÖGUR EIGA SÉR UPPHAF (síðastikossinn) ( ( ( (HINIRRÁFÖLLNUF(flugstrákar) (ROFIN PERSÓNUVERND) - Ítölsk kvikmyndahátíð - dagana 23. nóv - 3. des. í Háskólabíói Varðveitt líf mitt fyrir ógnum óvinarins KVIKMYND EFTIR BALTASAR KORMÁK 20% AFSLÁTTUR FYFIR VIÐSKIPTAVINI Í GULLVILD OG PLATINÍUM GLITNIS MEÐ GREIÐSLUKORTI FRÁ GLITNI Mu ið afsláttinn Tónlistarmaðurinn Helgi Rafn fagnar útkomu fyrstu sólóplötu sinnar, Personal Belongings, með útgáfutónleikum á stóra sviði Borgarleikhússins í kvöld. Hvergi verður slegið af til að gera tónleikana sem glæsilegasta og með Helga Rafni á sviðinu verð- ur einvalalið tónlistarmanna. Gestasöngvarar á tónleikunum verða þær Halla Vilhjálmsdóttir og Védís Hervör, sem syngja báðar dúetta með Helga Rafni á plötunni. Miðasala er í fullum gangi á frostid. is og í verslunum Skífunnar. Útgáfutónleikar Friðriks Ómars verða haldnir á Nasa á miðviku- dagskvöld. Þar mun Friðrik syngja lög af sinni fyrstu sólóplötu, Annan dag. Auk Friðriks Ómars og hljóm- sveitar koma fram sem gesta- söngvarar þau Páll Óskar, Reg- ína Ósk, Heiða Ólafsdóttir og Margrét Eir. Húsið opnar klukkan 20.00 og hefjast tónleikarnir klukkutíma síðar. Forsala fer fram á midi.is. Friðrik með tónleika Helgi fagnar sólóplötu Hljómsveitin Í svörtum fötum tók sér frí á síðasta ári frá jólaútgáf- unni á meðan forsprakkinn Jónsi gaf út sína fyrstu sólóplötu. Var hún bæði róleg og persónuleg sem er nokkuð sem þeir Í svörtum fötum hafa ekki verið þekktir fyrir á sínum ferli. Hjá þeim er stuðið ávallt í fyrirrúmi eins og sannast á þessari fjórðu plötu þeirra. Eins og búast mátti við er plat- an fyrirsjáanleg enda kannski ekki við öðru að ætlast af hljómsveit sem hefur lifibrauð sitt af því að spila um hverja helgi fyrir skemmtanaglaða Íslendinga sem heimta stuðskammtinn sinn. Það þarf þó ekki að þýða að plat- an sé slæm. Hérna eru nokkur fín lög, þar á meðal hið grípandi „Ekk- ert mál“ og hið poppaða „Þessa nótt“, þar sem írsk þjóðlagaáhrif í anda Papanna eru ríkjandi. „Par- adís“ er síðan ágætis ballaða þar sem kröftug rödd Jónsa fær að njóta sín. Rokkslagarinn Ég brenn, er líka góður, auk þess sem „Betri tíð“ á góða spretti. Aðalmínusinn við plötuna eru samt formúlukennd lögin auk þess sem textarnir eru ástarvellur sem skilja lítið eftir sig. Setningar eins og „lamaður af ótta, „lostafullar varir“, og „ég hef fundið það sem ég leitaði að“, eru dæmi um það. Þessi plata sannar það að Í svörtum fötum er alls ekki af baki dottin þrátt fyrir að hafa tekið sér pásu á síðasta ári. Sveitin kann ennþá að semja grípandi lög sem er vitaskuld lykilatriði til að hún geti viðhaldið ferskleika sínum og vinsældum. Stuðið heldur áfram Leikkonan unga Lindsay Lohan hefr verið valin andlit tískuhússins fræga MiuMiu. Hún verður and- lit fyrirtækisins í auglýsingaher- ferð næsta sumar. Lohan fetar þar í fótspor stjarna á borð við Drew Barrymore, Chloe Sevigny og Maggie Gyllen- haal en allar hafa þær verið andlit MiuMiu. Það má þvi segja að þessi unga leikkona klifri hratt upp stjörnu- stigann í Hollywood og tískuheim- inum í senn. Andlit MiuMiu A A A SEN DU SMS JA BOND Á 190 0 OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ! VINNINGAR ER U: GSM SÍMAR 007 DVD SAFN IÐ BÍÓMIÐAR DVD MYNDIR OG MARGT FLEIRA ! 9 hver vinnur!Vinningar verða afhendir hjá BT Smáralind. Kópavogi. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 99 kr/skeytið.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.