Fréttablaðið - 22.11.2006, Blaðsíða 94
Einhver mestu viðskipti
íslenskrar íþróttasögu voru til-
kynnt í gær er Eggert Magnússon
og Björgólfur Guðmundsson
gengu frá samkomulagi í nafni
WH Holding um kaup á enska
úrvalsdeildarfélaginu West Ham.
Kaupverðið er 85 milljónir punda,
11,3 milljarðar króna, auk þess
sem skuldir upp á þrjá milljarða
eru yfirteknar.
WH Holding þarf því að reiða
fram 14,3 milljarða króna auk þess
sem Alan Pardew, knattspyrnu-
stjóra félagsins, hefur verið til-
kynnt að honum muni standa til
boða fjármunir til leikmanna-
kaupa í janúar næstkomandi. Talið
er að sú upphæð gæti numið allt
að 2,7 milljörðum króna.
„Þetta er góður klúbbur og við
værum ekki að þessu nema að við
sæum fyrir okkur að hægt væri að
reka hann með sóma,“ sagði Egg-
ert í samtali við Arnar Björnsson
á NFS í gær. „Það verður ekkert
Abramovich-snið á þessum
rekstri. Við ætlum okkur hægt og
rólega að ná okkar markmiðum.
En mjög fljótlega ætlum við að
koma liðinu í þá stöðu að það sé að
berjast um sæti í Meistaradeild-
inni á hverju ári. Þar viljum við
vera. Við viljum koma klúbbnum í
fremstu röð í Englandi og ekki síst
að viðhalda þeirri menningu að
West Ham haldi áfram að búa til
góða enska leikmenn.“
Eggert segist búast við að geng-
ið verði frá öllum pappírsmálum á
næstu tveimur vikum og hann
muni þá taka við sem stjórnarfor-
maður West Ham.
WH Holding hefur þegar tryggt
sér 83% hlutabréfa í West Ham og
mun í lok vikunnar senda tilboð í
hluta þeirra 3.500 eigenda hluta-
bréfa í félaginu sem eftir eru.
Þegar WH Holding á 90% hluta-
bréfa geta þeir farið fram á að
hlutabréf í höndum annarra eig-
enda verða yfirteknir. Þá verður
hægt að afskrá félagið úr kaup-
höllinni í Lundúnum.
Tilboðið hljómar upp á 564
krónur á hvern hlut í félaginu en
þrír stærstu hluthafarnir eiga
samtals um 70% hlutabréfa. Sá
stærsti og fráfarandi stjórnarfor-
maður, Terry Brown, verður heið-
ursvaraforseti en Björgólfur verð-
ur heiðursforseti. West Ham hefur
verið að stórum hluta í fjölskyldu-
eigu og bætist nú í hóp Chelsea,
Manchester United, Fulham og
Aston Villa auk Hearts í Skotlandi
sem eru öll í eigu aðila utan Bret-
landseyja.
Helsti keppinautur Eggerts um
kaupin var Íraninn Kia Joorabchi-
an sem mun hafa verið nálægt því
að leggja fram tilboð fyrir tveim-
ur vikum síðan. Hann hefur reynd-
ar mun lengur verið orðaður við
félagið og stóð til að mynda að því
að argentínsku landsliðsmennirn-
ir Carlos Tevez og Javier Mas-
cherano komu til félagsins í lok
ágústmánaðar. Framtíð þeirra er
því í mikilli óvissu og talið líklegt
að þeir muni fara í janúar næst-
komandi.
Eggert Magnússon og Björgólfur Guðmundsson, eigendur WH Holding, tilkynntu í gær samkomulag um
kaup á West Ham fyrir 11,3 milljarða króna auk þriggja milljarða króna yfirtöku á skuldum félagsins.
Tveir af þremur stærstu
hluthöfum í West Ham eru
Charles Warner og Martin Cearns
en þeir eru afkomendur þeirra
sem stofnuðu West Ham árið
1895. Stjórnarformaðurinn, Terry
Brown, er stærsti hluthafinn og
sagði í gær að hann treysti
Eggerti fyrir því að leiða West
Ham áfram á réttri braut.
Margir hafa áhyggjur af þeirri
þróun, að enskt samfélag er að
missa tökin á enskri knattspyrnu.
Mörg önnur félög í Englandi eru í
eigu erlendra aðila.
Að stórum hluta
í fjölskyldueign
„Ég er bæði ánægður og
heiðraður af því að Terry Brown
og samstarfsmenn hans hafa lýst
yfir stuðningi við tilboð okkar í
West Ham. Við getum nú bundið
enda á óvissu undanfarinna vikna
og fært okkur yfir á næsta stig í
þróun þessara frábæra félags,
með Alan Pardew við stjórnvölinn
á sjálfum vellinum.“
Þannig lýsti Eggert Magnússon
stuðningi sínum við knattspyrnu-
stjóra West Ham en undir hans
stjórn hefur liðið dottið úr bæði
UEFA-bikarkeppninni og deildar-
bikarkeppninni. Liðið situr í 16.
sæti ensku úrvalsdeildarinnar
eins og er.
„Ég mun halda áfram að ræða
við Alan Pardew um hans sýn á
framtíð félagsins. Þetta er hans
umráðasvæði og hann hefur mína
trú og stuðning.“
Pardew hefur verið við stjórn-
völinn hjá West Ham í rétt rúm
þrjú ár. Hann var þar áður stjóri
Reading í fimm ár.
Eggert ætlar að halda
tryggð við Pardew
Eggert Magnússon
sagðist ekki útiloka að flytja
heimavöll West Ham á Ólympíu-
leikvanginn sem verður notaður á
leikunum árið 2012. „Ef sá
möguleiki er í boði mun ég skoða
hann. Ég geri mér samt grein
fyrir að það þurfi að heiðra
frjálsíþróttir á Ólympíuleikunum
á vellinum.“
Boylen Ground í Upton Park er
núverandi heimavöllur West Ham
og hefur verið það í 102 ár. Ef
félagið flytur á leikvanginn sem
verður án efa stórglæsilegt
mannvirki verður landið sem
Boylen Ground stendur á afar
dýrmætt.
ÓL-völlur kem-
ur til greina
Vil helst ekki þurfa að selja minn hlut