Fréttablaðið - 22.11.2006, Qupperneq 104
Sonur hennar Sillu frænku minn-ar er umsvifamikill verktaki,
þéttur á velli og enn þéttari í lund,
hlær hátt og er með eindæmum
hjartahlýr náungi. Hann kom til
mín í gær bað mig að tala um fyrir
móður sinni sem nú hefði tekið
þann pól í hæðina að afneita sér.
Hún vildi ekki sjá hann í heimsókn
og sendi óðara til baka allar blóma-
og kökusendingar.
þegar ég spurði um ástæðu
fyrir þessum kólnandi móðurkær-
leika hjá Sillu sagði hann mér að
þetta væri út af Laugaveginum.
Fyrirtækið hans væri komið með
góðan „díl“ hjá borgaryfirvöldum
um að fá að rífa þar nokkur gömul
hús. Það væri búið að gefa skot-
leyfi á 46. Ekkert virtist hamla því
að þar væri komið verk upp á stór-
gróða. Þeir hjá fyrirtækinu komn-
ir í stellingar til niðurrifs. – Byrjar
þá ekki hasarinn!
hans Sigurlaug Guð-
mundsdóttir hafði komið sér í einn
lopapeysufélagsskapinn enn.
eru það endurnýjuð Torfu-
samtök sem eru að gera allt vit-
laust í verktakabransanum. Vilja
hindra niðurrif á gömlum hálf-
hrundum húsum við Laugaveginn.
Segja að við eigum að bera virð-
ingu fyrir fortíðinni, sýna þessum
smáhýsum sem standa á fokdýr-
um lóðum virðingu. Hægt yrði að
gera þessi hús upp, þá yrðu þau
krúttleg og mikið augnayndi fyrir
erlenda ferðamenn.
brá við skjótt, keypti kringlur
og skeiðaði með týnda soninn til
móður hans. Hún spurði mig strax,
hvort ég vildi ekki losa mig við
þennan hvítflibba sem ég væri
með í eftirdragi.
– sagði verktakinn,
aumur – „vertu ekki svona vond við
mig, ég þarf að reka fyrirtæki – ég
þarf að sjá fyrir minni fjölskyldu.“
það þitt fyrirtæki sem byggði
þennan forljóta húskumbalda á
Stjörnubíósreitnum?“ spurði
gamla konan ískaldri röddu.
„Kannski,“ sagði sonurinn aumur.
„En slíkt gerum við aldrei aftur,
við ætlum aðeins að byggja falleg
hús við Laugaveginn.“ „Jæja,“
sagði véfréttin og dýfði kringlu í
kaffið. „Komdu þá og kysstu mig,
og lappaðu svo upp á gömlu húsin
og þið munuð stórgræða á því.“
ég horfði á breiðan rass-
inn á verktakanum þar sem hann
beygði sig til kossa hugsaði ég:
„Skyldi Silla frænka vera búin að
bjarga Laugaveginum? “
Mömmur og
verktakar
www.toyota.is
RAV4 - með glæsilegum aukahlutapakka
RAV4 boðar breyttar áherslur í lífi þínu. Ríkulega búinn staðalbúnaði
dregur hann þig út á vegina og þú upplifir nýtt land á nýjum bíl.
Alveg nýr heimur
RAV4 sameinar kosti borgarbílsins og fjölhæfni og kraft jeppans. Hvort
sem menn eru að sinna erindum sínum í bænum eða utan hans þá er
RAV4 bíllinn sem fer alla leið.
Nú bjóðum við RAV4 með veglegum aukahlutapakka, vetrardekkjum,
dráttarbeisli, mottu í skott og filmum í rúður, að verðmæti 214.000 kr.
Verð frá 2.880.000. kr.
Toyota Kópavogi
Nýbýlavegi 4
Kópavogur
Sími: 570-5070
Toyota Akureyri
Baldursnesi 1
Akureyri
Sími: 460-4300
Toyota Reykjanesbæ
Njarðarbraut 19
Reykjanesbær
Sími: 420-6600
Toyota Selfossi
Fossnesi 14
Selfoss
Sími: 480-8000
Toyota Austurlandi
Miðási 2
Egilsstaðir
Sími: 470-5070
Allt sem þú ætlaðir að gera í fyrra
gerirðu tvisvar í vetur
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/T
O
Y
3
49
74
1
1/
06
Aukahlutapakki að verðmæti 214.000 kr.
Dráttarbeisli
Gólfmotta í skottVetrardekk
Skyggðar rúður
AUGL†SINGASÍMI
550 5000