Fréttablaðið - 20.12.2006, Page 74
1 1.000 0,8B A N K A H Ó L F I Ð
Ein vinsælasta íþróttagreinin
sem nýríkir íslenskir athafna-
menn stunda af miklum krafti
er vínsöfnun og heyrast sögur af
því að vel efnaðir einstaklingar
leggi mikið upp úr því að útbúa
vínkjallara þegar verið er að
hreinsa út úr einbýlishúsunum.
Forstjóri eins fjármálafyrir-
tækis ku eiga 700 flöskur af
eðalvíni sem metið er á yfir tíu
milljónir eða tíu kúlur.
Ólíkt bílasöfnuninni þá er
þetta sport stundað neðanjarðar
þannig að sauðsvartur almúginn
verður einskis var.
Neðanjarðar-
sport
„Auðveldara en ég hélt“
Me› flátttöku á E*TRADE í gegnum Landsbankann b‡›st einstaklingum möguleiki á
a› n‡ta sér beint og millili›alaust áhugaver› fjárfestingartækifæri.
Kynntu flér máli› á landsbanki.is e›a hringdu í síma 410 4000.
Barist um
Porschinn
Desember er eins og allir vita
stærsti mánuðurinn í versl-
un og stendur og fellur rekst-
ur margra verslana á þessum
tíma. Kaupmenn gera ýmislegt
til að hvetja starfsmenn sína
til dáða. Sagan segir að Jón
Ásgeir Jóhannesson, forstjóri
Baugs, hafi sett upp keppni
milli verslunarstjóra Hagkaupa
í Kringlunni og Smáralind fyrir
jólin í fyrra. Hún var á þá leið
að sem sá myndi selja meira í
desember fengi afnot af Porsce-
jeppanum hans í nokkra daga.
Færðust menn allir í aukana;
nú skyldi sko selja. Lengi vel
leit út fyrir að sá sem fór fyrir
Smáralindarbúðinni hreppti
gripinn góða en á Þorláksmessu
skreið Kringlubúðin fram úr.
Danir eru sterk verslunarþjóð
og eiga langa sögu sem slík,
enda þótt við teljum okkur auð-
vitað þeim fremri á öllum svið-
um nema í fótbolta.
Dönsk vörumerki seljast víða
um heim, án þess að fólk almennt
geri sér grein fyrir að þau séu
þaðan sprottin. Þannig eru und-
irfatamerking Change, Femilet
og Fleur, dönsk og þessi fyrir-
tæki gleðjast um þessar mund-
ir þar sem afkoman hefur tvö-
faldast frá fyrra ári. Alþjóðleg
dönsk fyrirtæki fengu skell
eftir teikningar Jyllandsposten
og voru sniðgengin víða í Mið-
Austurlöndum. Þessir framleið-
endur finna greinilega lítið fyrir
slíku og spurning hvort ekki sé
líka óhætt að klæðast dönskum
undirfötum sem ekki er beinlínis
flaggað á opinberum vettvangi á
þeim slóðum.
Uppgangur
innan klæða