Fréttablaðið - 20.12.2006, Qupperneq 86
Tilkynningar um merkis-
atburði, stórafmæli og
útfarir í smáletursdálkinn
hér til hliðar má senda á
netfangið timamot@fret-
tabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma
550 5000.
Allir líta á Guð sem mann,
þið getið ekki gert að því.
Jólasveinninn var maður og
þess vegna hlýtur Guð að
vera maður.“
Elvis kvaddur í herinn
Leikkonan Sunna Borg er sextug í dag.
Hún er búsett á Akureyri, en er nú
stödd í höfuðborginni. „Ég og fjöl-
skyldan förum til blómaeyjunnar Ten-
erife á fimmtudag, við ætlum að prófa
að vera þar yfir jólin,“ sagði Sunna,
sem hafði ekki hugsað sér að halda
upp á sextugsafmælið. „En fyrst við
förum út 21. desember og ekki í dag
spurði dóttir mín hvort ég myndi nú
ekki vilja hitta vini mína. Öll mín fjöl-
skylda og mikið af vinum er nefnilega
í Reykjavík,“ sagði Sunna, sem mun
því blása til veislu í dag. Hún verður á
leiklistarslóðum á afmælisdeginum,
því veisluhöldin fara fram í Iðnó, þar
sem Sunna tók sín fyrstu skref í leik-
listinni. „Við komum með sýningu
þangað frá Akureyri, og hún varð eig-
inlega til þess að ég ákvað að leggja
þetta fyrir mig,“ sagði hún.
Sunna er þó ekki á því að hún standi
á tímamótum. „Mér finnst miklu nær
að ég sé fjörutíu og sex ára, en ekki
fædd 1946. Mér finnst bara alveg ótrú-
legt að ég sé að verða sextug,“ sagði
hún hlæjandi. „Aftur á móti finnst
mér að hver tugur hafi sinn sjarma.
Manni fannst maður orðinn eldgamall
þegar maður varð þrítugur, en svo
finnst mér ég bara yngjast með árun-
um,“ bætti hún við. „Ég hef líka alltaf
haft nóg fyrir stafni. Það gefur lífinu
gildi,“ sagði hún.
Sunna hefur verið óhrædd við að
breyta til í gegnum tíðina. Hún sagði
það aldrei hafa hvarflað að sér að
verða leikkona, þó að föðurfjölskylda
hennar hafi mikið verið viðriðin leik-
list. Amma Sunnu, Stefanía Guð-
mundsdóttir var til dæmis fyrsti for-
maður Leikfélags Reykjavíkur.
Flutningurinn til Akureyrar átti held-
ur ekki að verða endanlegur. „Ég flutti
til Akureyrar 1979 og ætlaði að vera
þar í eitt ár,“ sagði Sunna, en henni
líkar mjög vel fyrir norðan. „Bærinn
er í uppsveiflu. Menningarhús verður
vígt 2008, það er kvenbæjarstjóri og
ýmislegt gott að gerast, svo ekki sé
minnst á blómstrandi leikfélagið,“
sagði hún.
Eftir fjöldamörg ár á sviði söðlaði
Sunna alfarið um fyrir fjórum árum
og lagði stund á nám í hómópatíu, sem
hún vinnur við í dag. „Hómópatían er
alltaf að verða vinsælli,“ sagði Sunna.
„Þetta er mjög gefandi starf og það er
mikið að gera hjá mér,“ bætti hún við.
Sunna hefur þó ekki yfirgefið leiklist-
ina alfarið. „Ég held mér við með því
að halda námskeið í leiklist og leik-
stýra hjá áhugafélögum,“ sagði Sunna,
sem útilokar ekki að hún snúi aftur á
svið. „Maður veit aldrei hvað næsti
dagur ber í skauti sér,“ sagði hún.
„Fólki fannst ég nú vera að gera vit-
leysu lífs míns þegar ég hætti í leik-
listinni, en það kemur alltaf eitthvað
annað í staðinn, þannig er þetta líf
bara.“
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
Þórunn Ágústsdóttir
lést á dvalarheimilinu Hlíð mánudagsmorguninn
18. desember. Jarðarförin auglýst síðar.
Hulda Eggertsdóttir Ingólfur Jónsson
Guðrún Eggertsdóttir Klemenz Gunnlaugsson
Dýrleif Eggertsdóttir
ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubörn.
Elsku hjartans mamma okkar,
Marlaug Einarsdóttir
Hjallabraut 43, Hafnarfirði,
lést á St. Jósefsspítala sunnudaginn 17. desember.
Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn
22. desember kl. 13.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigríður Þórsdóttir og Rósa Guðný Þórsdóttir
Elskuleg systir mín, mágkona, frænka
okkar og vinkona,
Jóhanna Margrét Árnadóttir
Blesugróf 29,
lést á heimili sínu laugardaginn 16. desember.
Útförin fer fram frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 21.
desember kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast
afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hennar er bent
á Styrktarfélag vangefinna.
Helgi H. Árnason Bryndís Þorsteinsdóttir
systkinabörn
og heimilisfólkið Blesugróf 29.
Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur
hlýhug og samúð við andlát og jarðarför
sonar míns, vinar, bróður, mágs og frænda,
Ásgeirs Hilmars Jónssonar
Bræðraborgarstíg 32, Reykjavík.
Björgunarsveitum, lögreglu og öllum þeim sem tóku
þátt í leitinni í Hvalfirði færum við okkar bestu þakkir.
Þorbjörg Eiríksdóttir
Bára Bryndís Sigmarsdóttir
Jón Guðmundsson Guðný Ragnarsdóttir
Jóna Halldórsdóttir Svanur Pálsson
Guðgeir Björnsson
Ragnhildur Þórólfsdóttir
og systkinabörn.
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Þegar andlát ber að
Alhliða útfararþjónusta í 16 ár
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • utfarir@utfarir.is
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Stúdentar við Háskólann í
Reykjavík gáfu nýlega út
Háskólablaðið en ritstjórn
blaðsins lagði upp með það
að flytja einungis jákvæðar
fréttir. „Heimurinn er ekki
að farast og lífsskilyrði
mannkynsins í heild eru að
batna,“ segir Gunnar Egill
Egilsson, einn ritstjóra
Háskólablaðsins.
„Við birtum meðal annars
viðtal við Björn Lomborg þar
sem hann fullyrðir að kostn-
aður við Kyoto-bókunina í
eitt ár sé samsvarandi upp-
hæð og það kosti að tryggja
öllum jarðarbúum varanleg-
an aðgang að drykkjarvatni,“
segir Gunnar og bendir á að
lítið hafi verið fjallað um for-
gangsröðun vandamála í
íslenskum fjölmiðlum. „Það
er tímabært að umræða
skapist um hvernig við
getum gert hlutina sem best
með takmarkað fjármagn til
að leysa vandamálin.“
Meðal annars efnis í blað-
inu er umfjöllun um jákvæð
áhrif innflytjenda á íslenska
menningu og efnahagslíf,
grein Hildar Sverrisdóttur
um jákvæða þróun í meðferð
kynferðisbrotamála. Þá eru
dregin saman nokkur sér-
atkvæði Jóns Steinars Gunn-
laugssonar í Hæstarétti og
ræddir möguleikar láglauna-
fólks og þeirra sem eiga að
baki stutta skólagöngu til
þess að auka tækifæri sín.
Stúdentar segja góðar fréttir