Fréttablaðið - 20.12.2006, Qupperneq 90
Tilkynning frá Kirkjugörðum Reykjavíkurprófastsdæma
Jólaþjónusta starfsfólks
Jól í görðunum
Á jólum kemur fjöldi fólks í Fossvogs-
kirkjugarð, Gufuneskirkjugarð og
Hólavallagarð við Suðurgötu til þess að
huga að leiðum ástvina sinna. Við munum
leitast við að leiðbeina ykkur eftir bestu
getu. Hægt er að nálgast upplýsingar um
staðsetningu leiða á vefnum gardur.is
Þjónustusímar
585 2700 og 585 2770
Aðalskrifstofan í Fossvogi, sími 585 2700
og skrifstofan í Gufunesi, sími 585 2770,
eru opnar alla virka daga frá
kl. 8.30 til 16.00.
Skrifstofurnar eru opnar á Þorláksmessu
og aðfangadag frá kl. 9.00 til kl.15.00.
Þar veitum við upplýsingar, gefum leiðbein-
ingar um aðhlynningu leiða og afhendum
ratkort ef þörf krefur.
Þjónusta á Þorláksmessu
og aðfangadag
Á Þorláksmessu og aðfangadag, milli
kl. 10.00 og 15.00, verða Fossvogskirkja
og þjónustuhús í Gufuneskirkjugarði opin
fyrir þá sem vilja staldra við í dagsins önn.
Á aðfangadag munu prestar verða til
staðar í Fossvogskirkju. Starfsmenn
Kirkjugarðanna verða á vettvangi í
görðunum báða þessa daga og taka á móti
ykkur og leiðbeina frá kl. 9.00 til 15.00.
Gleðilega jólahátíð
Kirkjugarðar
Reykjavíkurprófastsdæma
www.kirkjugardar.is
kl. 11.00
Rúna (Sigrún Guðjónsdóttir)
sýnir í Hafnarborg. Á sýning-
unni Ofið úr þögninni sýnir
Rúna verk unnin á pappír með
akryl, olíukrít, pastel og bleki;
einnig eru þar myndir unnar á
steinleir. Sýningin stendur til 30.
desember.
Norðanmenn fá notið ljúfrar tón-
listar á morgun en þá verða blús-
tónleikar í Ketilhúsinu. Blúskomp-
aníið var stofnað af Magnúsi
Eiríkssyni, einum fremsta blús-
manni landsins, fyrir rúmum
þremur áratugum og hefur starf-
að með hléum síðan þá og notið
mikilla vinsælda. Yngsti liðsmað-
ur þeirra, söngkonan Hrund Ósk
Árnadóttir, hefur vakið mikla
hrifningu með glæsilegri frammi-
stöðu sinni og er skemmst að
minnast söngsigurs hennar á
tónlistarhátíðinni AIM Festival á
Akureyri fyrr á árinu. Auk Magn-
úsar og Hrundar Óskar er Blús-
kompaníið skipað þeim Pálma
Gunnarssyni, söngvara og bassa-
leikara, Agnari Má Magnússyni,
hammond- og píanóleikara, og
Gunnlaugi Briem trommuleikara.
Hljómsveitin Park Projekt er
skipuð þeim Pálma, Agnari Má,
Kristjáni Edelstein og Gunnlaugi
Briem. Sveitin hefur vakið
athygli fyrir skemmtilega og
ferska músík en hún hefur leikið
á mörgum tónleikum innan lands
sem utan.
Tónleikarnir hefjast kl. 21
annað kvöld.
Ekta Akureyrarblús
Úthlutað var úr styrktar-
sjóðnum Gjöf Jóns Sigurðs-
sonar á dögunum en sjóður
sá styrkir fræði- og vísinda-
menn til útgáfu.
Sjóðurinn Gjöf Jóns Sigurðssonar
var stofnaður samkvæmt erfða-
skrá Ingibjargar Einarsdóttur,
ekkju Jóns Sigurðssonar forseta.
Sjóðurinn veitti um skeið all-
mörgum fræði- og vísindamönn-
um viðurkenningu fyrir vel samin
rit og styrkti útgáfu þeirra og
merkra heimildarrita. Síðar varð
sjóðurinn sakir verðbólgu lítils
megnugur. Hinn 29. apríl 1974
ákvað Alþingi að efla hann með
árlegu framlagi og er nú veitt til
hans á fjárlögum jafngildi árs-
launa prófessors við Háskóla
Íslands. Í reglum frá 1881 er
kveðið á um að fé úr sjóðnum
megi veita „1. til verðlauna fyrir
vel samin vísindaleg rit, 2. til að
styrkja útgáfur slíkra rita annars
kostar og 3. til þess að styrkja
útgáfur merkilegra heimildar-
rita.“ Enn fremur segir: „Öll
skulu rit þessi lúta að sögu
Íslands, bókmenntum þess,
lögum, stjórn eða framförum.“ Á
árinu 1974 var bætt við ákvæði
þess efnis „að þegar sérstök
ástæða þyki til, megi verja fé til
viðurkenningar á viðfangsefnum
og störfum höfunda, sem hafa
vísindarit í smíðum.“
Styrkir eru auglýstir og hefur
þeim undanfarin ár verið úthlut-
að á tveggja ára fresti. Lokið er
úthlutun úr sjóðnum Gjöf Jóns
Sigurðssonar, að þessu sinni voru
veittar 16 viðurkenningar, sam-
tals 7.000.000 kr. Skiptast þær
milli útgefinna rita og verka í
vinnslu: Birgir Hermannsson
fékk 500 þúsund vegna verksins
Understanding Nationalism;
Björn Hróarsson 700 þúsund
vegna ritsins Hraunhellar á
Íslandi; Guðjón Friðriksson og
Guðmundur Magnússon 500 þús-
und hvor fyrir ævisögu Hannesar
Hafstein og Thorsararanna; Jón
Hjaltason það sama fyrir Sögu
Akureyrar; Jón Þ. Þór 700 þúsund
vegna rita sinna: Nýsköpunaröld.
Saga sjávarútvegs á Íslandi, III.
bindi og Saga Bolungarvíkur; Sig-
urður Gylfi Magnússon 500 þús-
und vegna Fortíðardrauma og
Sjálfssagna; Stefán Snævarr 200
þúsund vegna Ástarspektar;
Steinunn Kristjánsdóttir og
Sverrir Jakobsson 500 þúsund
hvort vegna The Awakening of
Christianity og Veröldin og við;
Trausti Valsson 300 þúsund vegna
How the World will change – with
Global Warming; Viðar Hreins-
son: 400 þúsund fyrir Gæfuleit og
Þorvaldur Gylfason 300 þúsund
fyrir Tvo heima.
Þrír höfundar voru styrktir til
skrifa á nýjum verkum: Eysteinn
Þorvaldsson vinnur að verki um
íslenska kvæðagerð í Vestur-
heimi, Jón Viðar Jónsson er að
vinna verk um leikritun og leik-
húsafskipti Halldórs Laxness og
áhrif erlendra skálda á verk hans.
Þá er Þorleifur Hauksson að
vinna við Sverris-sögu.
Verðlaunanefnd Gjafar Jóns
Sigurðssonar er kosin af Alþingi.
Í henni eiga nú sæti Jón G. Frið-
jónsson, Ólafía Ingólfsdóttir og
Ragnheiður Sigurjónsdóttir.
Bóksala eykst í Danmörku
!
Netverslun með því óvenjulega
nafni Haraldur íkorni var form-
lega opnuð í nóvembermánuði.
Stofnandi og umsjónarmaður vefj-
arins, Ösp Viggósdóttir, er í óða
önn að uppfæra gagnagrunninn en
markmið hennar er að setja þar
inn allar þær bækur sem eru í
prentun á Íslandi.
Hún kveðst hafa fengið hug-
myndina fyrir nokkrum árum en
fyrirmyndin er vefurinn Amazon,
stærsti bóksöluvefur heims. Ösp
er menntaður bókasafnsfræðing-
ur en hefur einnig komið að
útgáfumálum, í fyrra gaf hún til
dæmis út skáldsöguna Hjarta-
hreinir ævidagar Úlfs. „Ég fékk
smá reynslu af bókamarkaðnum
þá og sá hvernig hlutirnir ganga
fyrir sig hér á landi,“ segir hún en
útskýrir að hún hafi ekki haft
neina sérstaka reynslu af netvið-
skiptum en rekið sitt eigið örfyrir-
tæki á sviði útgáfumála.
Ösp leitaði til forlaganna og
selur nú bækur þeirra flestra, hún
er bæði með nýjar og notaðar
bækur en nýbreytni er að hægt sé
að kaupa notaðar bækur gegnum
vefverslanir hér á landi. „Ég sendi
síðan hvert á land sem er og um
allar jarðir. Hér á landi hefur
landsbyggðin til dæmis tekið
þessu mjög fagnandi,“ segir Ösp.
Nú er hún með um 8.000 notaðar
bækur á lager og hefur skráð inn
um þúsund, hennar bíður því tölu-
vert verkefni við að uppfæra
gagnagrunninn og þá áætlar hún
einnig að setja inn bækur for-
laganna. „Hjá Haraldi íkorna verð-
ur hægt að nálgast allt sem er í
prentun á Íslandi,“ útskýrir Ösp.
Viðtökurnar hafa verið rólegar
það sem af er sem er ekkert skrít-
ið að sögn Aspar enda hefur hún
ekki auglýst þessa þjónustu mikið.
„Ég hef varið orkunni í að byggja
upp kerfið. Eins og allir vita er
bóksala langhlaup en ekki sprett-
hlaup.“
Notendur vefverslunarinnar
geta síðan keypt inn með kredit-
korti eða millifært greiðslur sínar
í heimabanka en á síðunni má gera
góð kaup bæði í notuðum og nýjum
bókum en bækur útgefnar árið
2006 fást þar með að minnsta kosti
tuttugu prósenta afslætti. „Þegar
ég var að prófa mig áfram með
kerfið komst ég að því að margir
vildu losna við kreditkortarukkan-
irnar og geta staðgreitt,“ segir
Ösp. Skáldsögurnar og stórvirkin
eru vinsælust hjá henni núna enda
mikill gjafatími fram undan.
„Margir eru líka að lauma með
einni og einni notaðri bók handa
sér líka,“ bætir hún við.
Nafngiftin vekur nokkra furðu
og útskýrir bóksalinn að langt sé
síðan það kom til. „Nafnið er feng-
ið úr víðfrægu jóladagatali Sjón-
varpsins sem sýnt var fyrir nokkr-
um árum og fjallaði um Klæng
sniðuga og Harald íkorna. Ég hélt
að enginn myndi taka mark á fyr-
irtæki sem héti Klængur sniðugi
en leist vel á Harald íkorna.“
Síðuna má finna á slóðinni
www.haraldur.is
Bókelskur íkorni í langhlaupi