Fréttablaðið - 21.12.2006, Side 6
Þyrlur Landhelgisgæsl-
unnar komu fjórum mönnum um
borð í kýpverska flutningaskipið
Wilson Muuga upp úr klukkan tvö
í gær. Mennirnir kynntu sér
aðstæður og unnu frumrannsókn á
því hvernig hægt verði að standa
að dælingu úr skipinu og koma
búnaði um borð í skipið á morgun
eða næstu daga. Veðurútlit er ekki
gott.
Sjötíu tonn af olíu eru í botn-
tönkum og fimmtíu tonn í hliðar-
tönkum ofar í skipinu auk sautján
tonna af dísilolíu. Kristján Geirs-
son, fagstjóri hjá Umhverfisstofn-
un, segir stefnt að því að ná fyrst
olíunni upp úr hliðartönkunum og
síðan úr botntönkunum. Líklega
verði reynt að sjúga olíuna upp úr
botntönkunum gegnum átta metra
langt loftrör.
„Það er vaxandi straumur og
fer vaxandi fram á Þorláksmessu
eða aðfangadag. Ofan á þetta er
stuttur birtutími sem leiðir til þess
að aðgerðir eru erfiðar. Það er fátt
sem vinnur með okkur,“ segir
hann.
Tankar skipsins eru allir rifnir,
olía hefur komist í lestar skipsins
en ekki lekið út í sjó. Svartolían er
seigari en hráolían og kemur
þrennt til greina: dæla beint með
sérstökum dælum, hita olíuna
þannig að hún verði auðveldari
viðureignar eða að blanda dísilolíu
saman við hana og dæla síðan.
„Við gerum ráð fyrir að einhver
olía fari í sjóinn. Ef það gerist þá
förum við í aðgerðir til að hreinsa
olíu úr sjó og af fjörum. Sem stend-
ur eru engar slíkar aðgerðir mögu-
legar. Veður og öldugangur er slík-
ur að engin tæki virka á þessum
tímapunkti,“ segir hann.
Kristján segir ölduganginn
ekki endilega slæman. „Sjórinn og
klettaströndin þeyta olíuna, gera
hana vatnsleysanlegri og dreifa
henni út þannig að ekki er víst að
við stöndum frammi fyrir stórum
vandamálum. Við getum haft
hreinsunarbúnaðinn handhægan
ef olía sést og veður lægir. Þangað
til fylgjumst við með.“
Hátt í áttatíu menn voru á
strandstað í gær. Búið var að gera
góða vinnuaðstöðu, veg og athafna-
svæði fyrir hreinsun. Allur búnað-
ur var kominn á staðinn.
Jónína Bjartmarz umhverfis-
ráðherra flaug yfir strandstað í
gær. Vakt verður á staðnum í nótt.
Viðræður eiga sér stað um það
hvort tryggingafélagið tekur yfir
hreinsun og aðgerðir á vettvangi.
Smiðjuvegi 5
200 Kópavogur
www.skola. is
Sími 585 0500
Opið virka daga 9-18
og laugardaga 10-14
8.590kr.
O
D
D
I H
Ö
N
N
U
N
V
O
_C
70
32
Tilvalin jólagjöf
100 dokkur af árórugarni í gjafakassa.
Fyrir hannyrðakonuna og
fl uguhnýtingamanninn.
Gert ráð fyrir að
olía fari í sjóinn
Tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar komu mönnum um borð í Wilson Muuga í
Hvalsnesfjöru í gær. Mennirnir skoðuðu aðstæður í skipinu. Umhverfisstofnun
gerir ráð fyrir að einhver olía fari í sjóinn.
Gríðarleg verðmæti
eru í hættu ef olía lekur úr kýp-
verska flutningaskipinu Wilson
Muuga sem strandaði í Hvals-
nesfjöru í Sandgerði í fyrradag.
Friðuð fuglasvæði eru í nágrenni
við strandstaðinn auk þess sem
olía getur borist í kirkjugarðinn
við Hvalsneskirkju ef veður er
vont og sjógangur mikill. Þá eru
fjörurnar mjög lífmiklar.
Sveinn Kári Valdimarsson,
forstöðumaður Náttúrustofu
Suðurnesja, segir að ekki bara
lífríkið sé í húfi heldur verðmæti
líka. „Olían brotnar niður á ein-
hverjum tíma en þarna eru
menningarverðmæti í nágrenn-
inu, til dæmis kirkjugarðurinn í
Hvalsnesi. Ef veðrið helst jafn
slæmt þá getur olía spýst yfir
hann en auðvitað fer það eftir
ölduróti og veðri. Við vonum það
besta.“
Lítið er vitað um lífríkið á
svæðinu en það er þó vitað að allt
svæðið er friðað vegna lífríkis.
Sveinn Kári segir að á þessu
svæði sé dýrmætt vetrarfugla-
svæði við Ósa í Sandgerði, stór
hluti straumandarstofnsins á
Íslandi hafi þar veturstöðvar og
eitt stærsta æðarvarp landsins
sé í Norðurkoti og Fuglavík
nærri Hvalsnesfjöru.
Náttúrustofan er að fara af
stað með verkefni í samvinnu við
Náttúrufræðistofnun. Strend-
urnar á Reykjanessvæðinu verða
kortlagðar og búsvæðaflokkaðar
vegna laga um mengunarvarnir
hafs og stranda.
Kirkjugarðurinn í hættu
Ólafur Ragnar Grímsson,
forseti Íslands, sendi í gær
Margréti Danadrottningu
samúðarkveðju vegna fráfalls
skipverja á danska varðskipinu
Triton.
Jan Nordskov Larsen, 25 ára
sjóliði frá Kaupmannahöfn,
drukknaði skammt frá strand-
stað flutningaskipsins Wilson
Muuga skammt frá bænum
Hvalsnesi í nágrenni Sandgerðis.
„Ég votta yðar hátign og
dönsku þjóðinni einlæga samúð
vegna hins sviplega fráfalls Jans
Nordskov Larsen sjóliðsforingja
sem drukknaði við björgunar-
störf undan ströndum Íslands.
Hugur Íslendinga er með
fjölskyldu hans og vinum og við
biðjum yðar hátign að flytja
þeim einlægar samúðarkveðjur,“
segir í bréfi Ólafs Ragnar
Grímssonar.
Forsetinn sendi
samúðarkveðju
Flakið af þýskum
kafbát, sem liggur á hafsbotni
undan vesturströnd Noregs, ætti
að hylja með fargi af sandi og
steypu til að hindra að kvikasilf-
ursfarmur bátsins leki út og
valdi ómældum náttúruspjöllum.
Að þessari niðurstöðu komst
sérfræðinganefnd, sem falið var
að rannsaka til hvaða bragða
ráðlegast væri að taka til að
bregðast við mengunarhættunni.
Kafbátnum, U-864, var sökkt í
febrúar 1945, lestaður 65
tonnum af kvikasilfri sem ætlað
var til hergagnaframleiðslu í
Japan. Flakið fannst árið 2003.
Hætta á kvika-
silfursmengun
Olía úr flutningaskipinu
Wilson Muugo, sem strandaði úti
fyrir Hvalsnesi í fyrradag, getur
kæft lífríki fjörunnar með því að
leggjast yfir plöntur og dýr. Olíu-
blautir fuglar eru alvarleg meng-
un en minna sýnileg áhrif á gróður
og dýralíf eru ekki síður alvarleg.
Jörundur Svavarsson, prófess-
or í sjávarlíffræði við Háskóla
Íslands, telur að erfitt sé að spá
um það hvernig fari fyrir dýralífi
og umhverfi ef olía mengar fjör-
una við Sandgerði. Það fari eftir
aðstæðum, veðurlagi og því hversu
mikið magnið verður.
Jörundur segir fugla þola olíu
illa. Fiður þeirra makist út í olí-
unni og olían berist ofan í melting-
arveg þeirra. Hægt sé að hreinsa
þá en það sé mikið verk.
Jörundur segir að fyrr eða
síðar muni olían sökkva en best sé
að losna alfarið við hana.
Olían getur
kæft lífríkið
Á að fara fram lögreglurann-
sókn á málefnum Byrgisins?
Ertu búin(n) að kaupa allar
jólagjafir?