Fréttablaðið - 21.12.2006, Page 93

Fréttablaðið - 21.12.2006, Page 93
Hvað gerist þegar fullorðinn maður sest upp á hjól? Jú, gamall vani tekur sig upp og áfram hjólar hann. Jón Björnsson leit upp frá skrifborði sínu í Ráðhúsi Reykja- víkur, horfði yfir gráa Tjörnina og hugsaði: Á ég að sitja hér til sjötugs? Nú er hann sjálfs sín herra, lausamaður á ekrum drott- ins og á að baki mörg þúsund mílur og tvær ferðasögur skráðar á hjólferðum um Evrópu. Seinni bókin rekur för hans í tveimur rykkjum eftir rafleiðinni svokölluðu frá gömlu Danzig til Miklagarðs. Lesandinn gæti ímyndað sér margt: lifði maður- inn af, slæmir vegir, erfitt tungu- málaástand í sveitum þar austur frá, glæpamenn á hverju strái höldum við, illur kostur. Allt þetta rennur gegnum hugann en Jón segir frá ferð um rík lönd og fátæk, stöðnuð og þefandi að nýja- brumi kapítalismans: Pólland, Slóvakía, Ungó, Króatía, Serbía, Búlgaría og loks fyrirheitna land- ið Tyrkland. Sýnilega hefur höfundurinn lagst í langan lestrarvetur áður en lagt var af stað á vori, jafnvel fleiri en einn. Stór hluti verksins er ríkulegar lýsingar á sögu þeirra staða sem hann líður hjá og hver maður með miðskólapróf eða meira skammast sín hálfpartinn fyrir að vera svo yfirgengilega illa að sér í sögu austurhluta Evrópu. Allar frásagnir litar höfundurinn með blæbrigðarík- um og skjótum stíl. Jón er víða fyndinn í lýsingum sínum. Hann er hallur undir konur með myndar- legan barm sem er svo sem allt í lagi fyrir menn á hans aldri – það hefur löngum verið stílbragð ferðasöguhöfunda að lítast um eftir kvenpeningi á fjarlægum slóðum en holdrisa er erfið á hjólhesti. Ferðasagan lifir býsna góðu lífi víða um lönd. Hún byggist alltaf á góðri innsýn í aðstæður annarra, forvitni um hvernig skaparinn kom hlutunum fyrir í framrás tímans. Og þeirri forvitni svalar Jón af mikilli mælsku. Bókin er prentuð í Slóvakíu og illa skekkt örk er í mínu eintaki. Myndir eru margar ekki vel fókuseraðar en kort, nafnaskrár og heimildaskrá fylgir og er útgáf- an öll vel úr garði gerð. Svo er bara að vona að Jón haldi áfram á hjólinu sínu og deili upplifun sinni með þeim sem heima sitja. Sálfræðingur á hjóli Höfundur Krókaleiða hefur ekk- ert að fela; orð skáldsins er miðill í ranglátum heimi þar sem lista- maðurinn ber samfélagslega ábyrgð, ekki sjálfstæð höfuð- skepna. Höfundur á ekkert dul- rænt (ljóðrænt?) erindi við les- anda sinn – boðorð hans og ætlunarverk er morgunljóst: koma pólitísku ákalli til skila og finna sjálfum sér stað í frumlaginu. Ég er upphaf og endir allra ljóða, allr- ar viðræðu við lesandann: ég er, ég skil, ég get, ég veit. Maðurinn er sekur – mikill er Ég. „Margir sjá ekki / ég sé“ (59). Auga alviskunnar, ljóðmælandinn. Skil- ur jafnvel það sem Einstein skildi ekki (41). Það er enginn guð, ekkert lögmál ofar efninu sem bæði maður og náttúra eru óaðskiljanlegur jafn- rétthár hluti af: dýra-, jurta- og steinaríkið er eitt; ekkert öðru fremra, allir jafngildir. Frum- kristni án fyrsta boðorðsins (ég er ekki drottinn). Maðurinn í sögu og samtíma er sjálfskipaður and- stæðingur náttúrunnar og yfir- gangur hans glæpur gegn náttúru- legum lögum sköpunarverksins. Ég (fremur en skáldið) er sjáandinn, hið vökula auga sem veit af glæpnum og víkur sér ekki undan þeirri skyldu samviskunn- ar (sem er sáttmáli manns og alls sem er) að kveða upp dóm og kalla bót og betrun yfir sökudólginn. Auðmýkt gegn græðgi. Það gerir höfundur þó ekki með aðferð viðkvæmrar náttúru – sem „hvíslar lágt: Líttu þér nær“ (68). Þvert á móti beitir hann storm- svipu trúboðans, berorði þess sem veit betur, fullvissu þess sem víða hefur ratað – í raun hinn hávi maður, hálfguð gegn almætti þess óskilvitlega, þess óskiljanlega, þess sem er „handan við skynsem- ina“ (51). Sjónarvottur sem boðar æði á undan orði: „menn og nátt- úra eiga að fallast í faðma, ávallt“, púnktur, „Bagdad... Maó... Mah- mud ... Dresden Hirósíma Vukovar Rúanda eða var það Darfur í Súdan?“ (7 8 13 17). Æpandi aug- ljóst sprengjuregn. Ljóðið barið til hlýðni ... jafnvel við „Árna leikara Tryggvason“ alsaklausan „á lífs- ins sjó“ (47). List í þágu málstaðar, vopnað ljóð. Efnistök eru annars heilsteypt og merking víðast augljós. Ljóða- smíðin áferðarsnotur en ófrum- leg, höfundur rembist ekkert umfram takmörk sín. Og inn á milli stórræða/stólræða skín víða fallegur hógvær ljóðstafur – dæmi bls. 24 og 51. Og þá ekki síst í ljóð- um lokakaflans – einkum bls. 63- 65 67-69 og 76 (sem endar þó í óþarfri ofskýringu). Hið frumlega í þessari ljóðabók snýr að efnistökum: sýn raunvísindamannsins á helga jörð. Þar liggur styrkur bókarinnar og – ef (til) vill – opinberun. Hámark- ið er ljóð á bls. 43 þar sem höfund- ur færir jarðvísindaleg rök fyrir eilífð sálarinnar í guðlausum buska. Ekkert smá mál! Ágalli bókarinnar er jafn augljós: skort- ur á samboðnum tilþrifum í ljóða- gerð. Einsog eldgos á korti. Aðall góðra ljóða með brýnan boð- skap er að spyrja, leita svars og finna – án þess að grípa fram í fyrir lesandanum, án þess að svara í beru orði. Hægara sagt en ort. Fjögurra stjarna bók (og ekki síðri að magni en gæðum) en tveggja stjörnu ljóðabók af því hreppa- pólitík – („jarðgöng á jaðarsvæð- um“ 48) – er skelfilegur stuðull í ljóði sem trúir á eilífð í innbjúgum buska. Samverkur okkar allra Opið kl. 10–18 á Laugavegi og Kletthálsi 11 Sími 590 5760 Ta km ar ka ð m ag n! Aðeins 18.880 kr. á mánuði. M.v. 70.000 kr. útborgun og bílasamning SP til 84 mánaða. Mi tsu bi sh i L an ce r sjá lfs ki pt ir ár g. 2 00 5 No ta ði r b íla r í to pp sta nd i H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA - 7 99 6
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.