Fréttablaðið - 10.01.2007, Page 6

Fréttablaðið - 10.01.2007, Page 6
Vilt þú að fleiri öryggismynda- vélar verði settar upp á götum? Hefur þú stundað fjárhættuspil á netinu? Sæludagar framundan Veldu létt og mundu eftir ostinum! H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA Á síðustu tveimur árum hefur því fólki fjölgað gífurlega sem spilar fjárhættuspil á netinu, segir Júlíus Þór Júlíusson, for- maður Samtaka áhugafólks um spilafíkn (SÁS). Hann vill loka landinu fyrir erlendum fjárhættu- spilasíðum, en um 60 til 70 pró- sent þeirra sem leita til samtak- anna spila fjárhættuspil á netinu. „Í síðustu viku hringdi í mig maður og sagði mér að konan hans væri búin að eyða á þriðju milljón króna í fjárhættuspil á netinu á nokkrum dögum,“ segir Júlíus. Að sögn Júlíusar var konan alltaf að spila í spilakössunum, en byrjaði svo að spila á netinu. „Spilafíklar flýja inn á heimili sín og spila í einrúmi svo þeir verði síður stimplaðir,“ segir Júlíus, og bætir því við að hann viti um að minnsta kosti fjóra spilafíkla sem frömdu sjálfsvíg árið 2006. Júlíus segir að einn ungur maður, sem hafði samband við samtökin í nóvember í fyrra, hafi eytt 2,7 milljónum króna á 10 dögum í fjárhættuspil á netinu og notaði hann meðal annars kredit- kort annars fólks. Þeim sem spila fjárhættu- spil á netinu líður oft verr og eru einangraðri en þeir sem spila í spilakössunum, segir Karen Eiríksdóttir, fjölskyldu- og hjóna- bandsráðgjafi hjá Samtökum áhugafólks um spilafíkn. Hún segir suma spilafíklana hafa verið í sjálfsvígshugleiðingum. Júlíus segist hafa fundað með Birni Bjarnasyni dómsmálaráð- herra fyrir jól og ræddu þeir hvernig hægt væri að stemma stigu við því að fólk eyði háum upphæðum í fjárhættuspil á net- inu. Björn vill ekki tjá sig um fund- inn með Júlíusi. Hann segir þó að það hafi verið nefnt við sig hvort hægt sé að veita heimild til að reka fjárhættuspil á Íslandi til að spilaféð renni ekki úr landi, því þau fjárhættuspil sem eru vinsæl- ust séu ólögleg hér á Íslandi. Björn segir að markmið slíkra aðgerða væri einnig að takmarka fjárhagslega áhættu þeirra sem spila á netinu. Að sögn Júlíusar undirbúa SÁS nú greinargerð, sem verður send til dóms- og kirkjumálaráðuneyt- isins, um hvernig hægt sé að koma í veg fyrir að fólk tapi milljónum í fjárhættuspilum á netinu. Inntak- ið í greinargerð SÁS verður að leggja til að landinu verði lokað fyrir erlendum fjárhættuspilasíð- um. „Ef þetta verður gert geta Íslendingar ekki lengur notað kreditkortin sín til að spila fjár- hættuspil á erlendum heimasíð- um,“ segir Júlíus. Tapa milljónum á netinu Formaður áhugasamtaka um spilafíkn vill loka landinu fyrir erlendum spilasíðum. Sumir sem spila á net- inu íhuga sjálfsvíg. Dómsmálaráðherra nefnir aðgerðir til að koma í veg fyrir að spilafé renni úr landi og til að takmarka fjárhagslega áhættu þeirra sem stunda fjárhættuspil á netinu. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri vill koma á framfæri leiðréttingu vegna umræðu um uppsetningu spilasalar í verslunarmiðstöðinni í Mjódd í fjölmiðlum undanfarna daga. „Þau mistök voru gerð við samanburð spilakassa árið 2004 og 2006 að borinn var saman fjöldi spilakassa í Reykjavík árið 2004 og á landinu öllu árið 2006. Árið 2004 voru samkvæmt upplýsingum frá dóms- og kirkjumálaráðuneytinu fjöldi spilakassa í Reykjavík 492. Á þeim tíma var heildarfjöldi á landinu 933. Í lok ársins 2006 var heildar- fjöldi spilakassa kominn í 970 (fjölgað hjá HHÍ um 40 síðastliðin tvö ár). Ekki er vitað hvað fyrirhugað er að setja upp marga spilakassa í Mjóddinni. Um leið og beðist er velvirðingar á þessum tölulegu mistökum er dapurlegt til þess að hugsa að 970 spilakassar séu í gangi dag hvern í landinu.“ Fjölgun kassa um 4 prósent ekki hundrað Steve Jobs, forstjóri tölvu- fyrirtækisins Apple, tilkynnti inn- reið Apple á farsímamarkaðinn í gær. Símtækið iPhone er GSM- sími, tónlistar- og myndbandsspil- ari með breiðskjá, lófatölva með þráðlausri nettengingu og mynda- vél. Tækinu er stjórnað með snerti- skjá, en engir hefðbundnir takkar eru á því. Skjárinn, sem er 3,5 tommur á stærð, hefur hærri upp- lausn en þekkst hefur hingað til. Tveggja megapixla myndavél er einnig í tækinu, sem er tæpir tólf millimetrar á þykkt. Fjögurra eða átta gígabæta geymslupláss er til staðar, allt eftir útgáfum. Til sam- anburðar er hægt að geyma um það bil eitt þúsund lög á fjögurra gígabæta minniskubbi. iPhone mun kosta fimm til sex hundruð dollara í Bandaríkjun- um, en hann verður fyrst seldur í júní. Evrópubúar þurfa að bíða lengur eftir tækinu, en Apple- menn segja iPhone koma til Evr- ópu í lok þessa árs. Auk iPhone var tilkynnt um breytingu á nafni fyrirtækisins úr Apple Computers Inc. í Apple Inc. Einnig var aukin samvinna Google og Apple rædd. Hlutabréf í Apple ruku upp um sjö prósent við fréttir af tækinu nýja. Apple heldur á farsímamarkað Lögreglan á Akur- eyri leitar manns sem hefur reynt að tæla þrjá drengi upp í bíl til sín í grennd við Síðuskóla. Drengirnir eru átta og níu ára. Ólafur B. Thoroddsen, skóla- stjóri Síðuskóla, segist fyrst hafa heyrt af málinu á mánudaginn en þá hafi móðir eins drengjanna haft samband við hann. Drengurinn hafði sagt móður sinni frá því að á meðan hann var að leik á leikvelli skólans eftir að kennslu lauk hafi maður komið og reynt að lokka hann inn í bíl til sín. Á eftir til- kynnti móðirin um málið til lög- reglunnar og segir Ólafur þá hafa komið í ljós að sömu ábendingar hefðu þegar verið tilkynntar. Enginn drengjanna þáði boð mannsins og gátu þeir gefið lög- reglu góðar upplýsingar um útlit bílsins sem hann ók en lýsing á manninum sjálfum var ekki eins greinileg. Foreldrar barna við skólann hafa verið beðnir um að brýna fyrir börnum sínum að fara ekki upp í bíla hjá ókunnugum og láta vita ef þau fá slík boð. „Það eru heilagar reglur. Við erum öll mjög uggandi yfir þessu og erfitt að vita af svona máli,“ segir Helga Þórey Sverrisdóttir, foreldri drengs við skólann. „Þetta má ekki fara út í múgsefjun en auðvitað eru allir hræddir, ekki síst börnin. Þetta er mjög óhugnanlegt mál og vonandi finnst þessi maður hið snarasta.“ Foreldrar og börn óttaslegin Lögreglan í Reykja- vík leitar manns sem braust inn í íbúð á jarðhæð við Leifsgötu í gær. Þegar konan sem býr í íbúðinni kom heim sá hún mann standa fyrir utan með fartölvuna hennar í hendinni. Hann var að ræða í síma og heyrði hún hann segja. „Nú get ég borgað þér.“ Auk fartölvunar hafði þjófur- inn vegabréf og greiðslukort á brott. Samkvæmt lýsingu var maðurinn um þrítugt, klæddur í svarta úlpu með hvítum loðkraga, dökkhærður og stuttklipptur. Lögreglan segist hafa góðkunn- ingja grunaðann um verknaðinn. Þjófur upptek- inn í farsíma

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.