Fréttablaðið - 10.01.2007, Síða 10

Fréttablaðið - 10.01.2007, Síða 10
Bandaríkjaher hefur síðan á mánudag að minnsta kosti þrisvar sinnum gert loftárásir á Sómalíu. Árásirnar hafa orðið fjölda manns að bana, þar á meðal tugum óbreyttra borgara að því er vitni fullyrða. Árásunum er beint gegn skæruliðum íslamista sem voru á flótta eftir að her bráðabirgða- stjórnar landsins hrakti þá frá höfuðborginni Mógadisjú með dyggri aðstoð frá Eþíópíuher. Bandaríkjamenn telja að meðal skæruliðanna hafi verið liðsmenn hryðjuverkasamtakanna al- Kaída, þar á meðal menn sem grunaðir eru um að hafa staðið að hryðjuverkaárásum á sendiráð Bandaríkjanna í Kenía og Tansan- íu árið 1998 Bandarísk herskip hafa verið út af ströndum Sómalíu undan- farið í þeim tilgangi að hafa uppi á hinum grunuðu, sem talið var að ætluðu að reyna að komast út úr landinu. Abdullahi Yusuf, forseti bráða- birgðastjórnarinnar, sagði frétta- mönnum í gær að Bandaríkin hafi „rétt til þess að varpa sprengjum á grunaða hryðjuverkamenn sem réðust á sendiráð þeirra í Kenía og Tansaníu“. Einnig sagði Huss- ein Aideed forsætisráðherra að Bandaríkin hefðu „fullan stuðn- ing okkar til árásanna“. Í höfuðborginni Mógadisjú sögðu þó aðrir að árásirnar myndu auka enn á andúð lands- manna gagnvart Bandaríkjunum. Íbúar Sómalíu eru að stórum meirihluta múslímar og hafa engan veginn verið sáttir við að herlið frá Eþíópíu hafi komið til að aðstoða bráðabirgðastjórnina, enda eru Eþíópíumenn flestir kristnir og hafa tvisvar átt í harð- vítugu stríði við Sómalíu, síðast árið 1977. Loftárásir Bandaríkjanna beindust meðal annars að eyjunni Badmado, sem er skammt frá bækistöðvum íslamísku skæru- liðanna í Ras Kamboni sunnan til í landinu, ekki langt frá landa- mærum Kenía. Bandaríkjamenn telja að menn tengdir Al Kaída hafi rekið þjálf- unarbúðir í Ras Kamboni og þang- að hafi liðsmenn Al Kaída komið. Þangað á líka Fazul Abdullah Mohammad, maðurinn sem talið er að hafi skipulagt árásirnar á sendiráðin 1998, að hafa flúið. Starfhæf ríkisstjórn hefur varla starfað í Sómalíu frá árinu 1991, þótt þrettán sinnum hafi verið reynt að mynda stjórn þar síðustu sex árin. Bráðabirgða- stjórnin sem nú er við völd var stofnuð árið 2004 með stuðningi Sameinuðu þjóðanna. Bandaríkin gera loftárás- ir á Sómalíu Mikið mannfall varð í hörðum loftárásum Banda- ríkjanna á skæruliða íslamista í Sómalíu. Meðal fall- inna eru tugir óbreyttra borgara. Tilgangurinn mun að hafa uppi á grunuðum hryðjuverkamönnum. „Þetta er málamiðlun, báðir þurftu að gefa eftir en ég er ánægð með niðurstöðuna,“ segir Oddný Guðbjörg Harðardóttir, bæjarstjóri Sveitarfélagsins Garðs, en fyrirhugað álver í Helgu- vík mun að mestu rísa innan landa- marka þess. Reykjanesbær, ásamt Hitaveitu Suðurnesja, hefur borið þungann af undirbúningi framkvæmda og lengst af var rætt um að álverið myndi rísa í landi Reykjanesbæj- ar. Skammt er síðan viðræður um aðkomu Garðsins að verkefninu hófust. Þeim lauk á dögunum með undirritun samkomulags sem bæj- arstjórnirnar eiga eftir að fjalla um. Í því er meðal annars kveðið á um helmingsskiptingu fasteigna- gjalda, sem geta numið allt að eitt hundrað milljónum króna á ári. Í ljósi þess að fasteignirnar munu standa í Garðinum má spyrja hvort ekki sé eðlilegt að Garðurinn njóti fasteignagjaldanna óskiptra. Oddný Guðbjörg segir að vissu- lega gildi sveitarfélagamörk sam- kvæmt lögunum en um sé að ræða samstarfsverkefni. Ekkert álver rísi ef engin eru höfnin og vegirn- ir. Þau séu í Reykjanesbæ. „Reykja- nesbæingar hefðu getað ákveðið að hafa álverið í Reykjanesbæ. Í þessu felast tækifæri fyrir okkur og það sem mestu skiptir eru atvinnutækifærin fyrir íbúana.“ Oddný Guðbjörg vill enn frem- ur halda því til haga að enn sé um fyrirhugað verkefni að ræða sem eigi eftir að ganga í gegnum langt og strangt kynningar- og umsagn- arferli. Ánægð með niðurstöðuna Gistinóttum á farfugla- heimilum fjölgaði um 12 prósent á síðasta ári frá árinu þar á undan. Gistinætur fóru nú í fyrsta sinn yfir 100 þúsund, voru tæplega 105 þúsund samkvæmt vef Ferðamála- stofu. Uppsveiflan virðist endast fram á þetta ár. Mikið er um fyrirspurnir og bókanir á farfuglaheimilum þessa dagana. Athygli vekur að gistinóttum á Farfuglaheimilinu í Reykjavík fjölgaði um 46 prósent síðustu þrjá mánuði ársins frá fyrra ári. Bretar og Þjóðverjar eru duglegastir að sækja þau 25 farfuglaheimili sem starfrækt eru hér á landi. Gistinætur um 105 þúsund
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.