Fréttablaðið - 10.01.2007, Síða 13
Barnaverndaryfirvöld
hafa sívaxandi áhyggjur af ofbeldi
sem börn verða fyrir í gegnum
síma eða tölvur, að sögn Halldóru
Gunnarsdóttur, framkvæmdastjóra
Barnaverndarnefndar Reykjavík-
ur. Tilkynningum til nefndarinnar
um mál af þessum toga hefur farið
fjölgandi. Sama máli gegnir um
aðrar tegundir ofbeldis gegn börn-
um undir 18 ára aldri.
Ofbeldisverk í samfélaginu eru
sívaxandi áhyggjuefni. Skammt er
um liðið síðan þrír drengir gengu í
skrokk á tveimur öðrum sem á vegi
þeirra urðu og slösuðu þá, annan
lífshættulega. Tvær ungar stúlkur
réðust á hina þriðju með hafna-
boltakylfu og misþyrmingum. Allir
eru þessir einstaklingar yngri en
18 ára og heyra undir barnavernd-
arnefnd.
„Ofbeldi sem stundað er í gegn-
um tölvur og síma er nýtt fyrir
okkur,“ segir Halldóra. „Það er
verið að lokka og tæla og villa á sér
heimildir. Það er verið að hræða
börn og hóta þeim, jafnvel af öðrum
börnum. Þarna sjáum við ljót ein-
eltismál. Þarna eru krakkar að
dreifa myndum af jafnöldrum
sínum, sem vilja það ekki. Og svo
eru það eldri strákar eða karlmenn
sem þykjast vera á sama aldri og
stelpurnar sem þeir eru að spjalla
við til að reyna að lokka þær til lags
við sig. Þetta fer fram með síma-
skilaboðum og á spjallsíðum, blogg-
síðum og öðrum samskiptasvæðum
í tölvunum.“
Halldóra segir að alvarlegum
ofbeldisverkum af hendi einstakl-
inga undir 18 ára hafi ekki farið
fjölgandi á síðari árum, samkvæmt
tilkynningum til barnaverndar-
nefndar. Þrjú síðastliðin ár hafi til-
kynningar af þeim toga verið í
kringum 75 á ári að meðaltali. Öðru
máli gegni um tilkynningar vegna
barna sem beitt séu ofbeldi. Árið
2005 hafi þær verið alls 446 vegna
barna búsettra í Reykjavík, en vel
yfir 500 á nýliðnu ári samkvæmt
bráðabirgðatölum. Í þessum hóp
séu börn sem hafi verið beitt kyn-
ferðislegu, líkamlegu, tilfinninga-
legu og sálrænu ofbeldi. Stærsti
hópurinn hafi verið beittur líkam-
legu ofbeldi.
„Ég hef tilfinningu fyrir því að
við séum með fleiri börn í dag sem
eru í afskaplega góðum málum,“
segir Halldóra. „En sá hópur sem
er ekki að fóta sig, en er í miklum
erfiðleikum, stendur svo margfalt
verr. Það virðist því vera að skap-
ast breitt bil þarna á milli, það er að
segja alls þorra barna sem gengur
vel í lífinu og svo þessa hóps, sem í
eru einhver prósent af hverjum
árgangi.“
Gróft ofbeldi gegn
börnum vaxandi
Börn eru lokkuð og tæld með aðstoð tölva eða farsíma. Þeim er hótað og þau
eru hrædd. Þar sjást ljót eineltismál, segir Halldóra Gunnarsdóttir, framkvæmda-
stjóri Barnaverndarnefndar. Tilkynningum um ofbeldi gegn börnum fjölgar.
Ítalska olíufyrirtæk-
ið Eni hefur borað niður á gjöfula
olíulind á Golíat-leitarsvæðinu
undan strönd Norður-Noregs.
Norska olíumálaráðuneytið
greindi frá þessu í gær.
Golíat-svæðið er í um 85 km
fjarlægð frá nyrsta bæ Noregs,
Hammerfest, og um 50 km suður
af Mjallhvítarsvæðinu, þaðan
sem útflutningur á jarðgasi hefst
síðar á þessu ári. Tilraunaboranir
hófust á Golíatsvæðinu í fyrra.
Nýja borholan var orðin 1950 m
djúp þegar komið var niður á olíu-
lindina.
Olíumálaráðuneytið greindi
einnig frá því í gær að kanadíska
fyrirtækið Talisman Energy Inc.
hefði óskað eftir heimild til að
hefja á ný olíuvinnslu á Yme-
svæðinu undan Suður-Noregi, en
Statoil hætti olíuvinnslu þar árið
2001. Kanadíska fyrirtækið telur
sig geta gert olíuvinnslu þar aftur
arðbæra vegna hás olíuverðs og
nýrrar tækni, sem gerir mögu-
legt að ná meiri olíu upp úr göml-
um lindum sem fyllast af sjó.
Noregur er þriðji stærsti olíu-
útflytjandi heims, eftir Sádi-
Arabíu og Rússlandi.
Borað niður á nýja
lind á Golíatsvæði