Fréttablaðið - 10.01.2007, Side 22

Fréttablaðið - 10.01.2007, Side 22
Varp er heiti á nýrri miðlunar- deild Reykjavíkurakademí- unnar sem í ár fagnar tíu ára starfsafmæli sínu. Markmiðið er að bjóða upp á nýstárlega fræðslu og miðla þeim hafsjó þekkingar sem er að finna inn- an veggja akademíunnar. Hjá Reykjavíkurakademíunni eru starfandi um áttatíu fræðimenn og -konur á ýmsum sviðum, þar með taldir nemendur í framhaldsnámi. Flest á sviði félags- og hugvísinda. Akademían býður upp á sam- eiginlega vinnuaðstöðu fyrir sjálf- stætt starfandi fræðimenn, stuðl- ar að þverfaglegu og alþjóðlegu samstarfi sem og þekkingarmiðl- un. „Í hefðbundnu háskólaum- hverfi er hver grein oft útaf fyrir sig og fræðimenn sitja því oft einir. Akademían er sameiginleg- ur vettvangur sem getur verið spennandi tækifæri til að endur- skoða viðhorf sín og aðferðir,“ segir Viðar Hreinsson, fram- kvæmdastjóri akademíunnar. Nafnið Varp er engin tilviljun og segir allt sem þarf um starf- semi deildarinnar. „Varp táknar í senn fæðingu nýrra hugmynda, að verpa, og miðlun þeirra, að varpa,“ segir Viðar. Starfsemi deildarinn- ar er í þróun og leitað verður ýmissa leiða í fræðslustarfinu. „Við munum bjóða upp á málþing, námskeið, ráðstefnur og fyrir- lestra sem verða sniðnir að þörf- um mismunandi hópa, svo sem skóla, fyrirtækja og almennings,“ segir Ólöf Gerður Sigfúsdóttir, mannfræðingur og varaformaður akademíunnar, sem er í forsvari fyrir miðlunardeildina. Að sögn Viðars og Ólafar er eitt af markmiðunum að fjalla um van- rækt svið sem akademían hefur þekkingu á og sem dæmi nefnir Viðar nýrri menningarsögu Íslands. „Við ætlum ekki að spyrja hvað fólk langar að læra, við ætlum frekar að miðla því sem við kunnum og koma á óvart,“ segir Viðar. Sjá nánari upplýsingar um miðl- unardeildina Varp: www.akademia. is Ætlum að koma á óvart FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Lestrarskóli Helgu Sigurjóns- dóttur hefst laugardaginn 13. janúar. Að þessu sinni býður skólinn upp á tvö námskeið. Annars vegar Að kenna lestur, en það verður haldið laugardaginn 13. janúar milli 10 og 15. Námskeiðsgjald er 15.000 kr. og eru námsgögn innifalin. Hins vegar er lestrarnámskeið ætlað börnum fjögurra til fimm ára og þeim sem borið hafa upp á sker í lestri. Námskeiðið er kennt hálftíma í senn, fjórum sinnum í viku, í tveimur hópum milli 8.00 og 8.30 og 8.30 og 9.00. Námskeið- ið kostar 25.000 kr. og eru náms- gögn innifalin. Lært að lesa Skráning stendur yfir í byrj- enda- og framhalds- námskeið. Bridgeskólinn hefur starfað í 30 ár og því býr nokkur reynsla að baki kennslunni. Öll árin hefur skólinn boðið upp á námskeið fyrir byrjendur og lengra komna og engin undan- tekning er þar á í ár. Námskeið fyrir byrjendur hefst 22. janúar og fyrir lengra komna 24. janúar. Nám- skeiðin eru tíu kvöld- stundir frá kl. 20 til 23, byrjendur á mánu- dögum og lengra komnir á miðviku- dögum. Upplýsingar er hægt að nálgast á netinu á bridge.is og í síma 564 4247. Skráning fer fram símleiðis daglega milli 13 og 18. Námskeið í bridge Rope Yoga stúdíó Ármúla 44 Skráning í gangi Kennari: Emma Bjarnadóttir Uppl.: s. 860 2173 - info@egER.is - www.egER.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.