Fréttablaðið - 10.01.2007, Blaðsíða 24
Ciara Margrét Eyberg Hudson
er sex ára nemandi í Lækjar-
skóla í Hafnarfirði.
Ciöru finnst mjög gaman í skólan-
um. „Við erum alltaf að leika
okkur úti og læra að lesa og fáum
alltaf nýja bók til að lesa. Ég á eina
vinkonu sem er besta vinkona mín
og heitir Rósa María,“ segir Ciara
og bætir því við að þegar hún sé
ekki í skólanum finnist henni
skemmtilegast að fara út að leika
sér með vinkonu sinni.
Töluvert hefur verið að gerast
hjá Ciöru síðustu mánuði því auk
þess að hafa byrjað í skóla síðasta
haust eignaðist hún litla systur í
sumar. „Hún er sjö mánaða að
verða átta mánaða og heitir Áróra.
Mér fannst gaman að eignast syst-
ur en ég á bara eina og svo einn
fósturbróður sem heitir Sveinn
Andri.“
Þegar Ciara var sjálf svona lítil
eins og litla systir átti hún heima í
Þýskalandi. „Ég man samt ekkert
eftir því, ég fæddist í útlöndum og
svo flutti ég til Íslands,“ segir
hún.
Ciara segir að litla systir henn-
ar sé með mömmu hennar og
pabba í herbergi en hún á sjálf
sérherbergi. „Herbergið mitt er
mjög flott. Ég á fullorðinsrúm,
það er ekki svona feitt, bara mjótt.
Ragnhildur frænka mín gaf mér
það því einn strákurinn hennar
sem er orðinn unglingur átti það
en ég fékk það.“
Dýr eru í miklu uppáhaldi hjá
Ciöru og hún á einn dverghamstur.
„Hún heitir Katla. Hún þvær sér
alltaf eitthvað svona,“ segir Ciara
og nuddar nefið á sér með báðum
höndum og hlær. „Hún hleypur
svo um í búrinu og stundum tek ég
hana úr því. Samt er hún með
beittar tennur og ef maður verður
eitthvað vondur við hana þá bítur
hún. Hún beit mig einu sinni því
ég var ekki búin að halda á henni
nógu lengi. Ég hef oft leikið við
hamsturinn minn og ég er alltaf að
gefa henni að borða eitthvað en
hún borðar það aldrei því henni
finnst bara laufabrauð gott. Mig
langar líka rosalega mikið í kött
eða hvolp eða eitthvað.“
Ciara segir að jólin hafi verið
mjög góð hjá henni og skemmti-
leg. „Ég fékk svona playstation-
tölvu og Bratz-leikinn í jólagjöf,“
segir hún og brosir út að eyrum.
„Ég fékk líka Barbie og Playmo í
jólagjöf og svo fékk ég góðan mat,
kjöt og eitthvað svona gott að
borða.“
Þegar Ciara verður stór ætlar
hún að verða hljómsveitarkona.
„Mamma var einu sinni í hljóm-
sveit og ég ætla bara að vera með
henni í hljómsveit. Hún var að
spila og þá var ég lítil.“ Ciara er
ákveðin í því að hún ætli sjálf að
spila á flautu í hljómsveitinni en
þegar hún er spurð að því hvað
mamma hennar eigi að spila á
hugsar hún sig aðeins um og segir
svo: „Ég ætla bara að láta hana
vera lækni og svo stundum í
hljómsveitinni.“
Í hljómsveit með mömmu
Fjöldi barna slasast árlega við
að falla úr innkaupakerrum.
Mikilvægt er að foreldrar séu sér
meðvitandi um það að aldrei má
líta af börnum sem sitja í inn-
kaupakerrum og hafi ákveðin
atriði í huga.
Ef belti er í kerrunni á að nota
það. Þó að barnið sé spennt þýðir
það þó ekki að líta megi af því.
Börn eiga ekki að vera laus í
vöruhluta kerrunnar. Þau eru
mun lausari þar en í sætinu og
geta steypt sér fram úr kerrunni
á andartaki.
Ekki á að leyfa börnunum að
hanga utan á kerrunni eða leika
sér með hana því það getur einnig
verið hættulegt fyrir þau.
Eldri börn eiga ekki að ýta
kerrum með yngri systkinum
sínum eða leika sér í eða á kerr-
um sem þau sitja í.
Aðgát við innkaupin
Bútasaum-
ur í barna-
herberginu
Fátt er fallegra að breiða
yfir barnarúmið en litríkt
bútasaumsteppi.
Bútasaumsteppi þarf ekki að
vera flókið að búa til og jafnvel
hægt að gera þau án þess að
nokkuð þurfi að sauma saman.
Ef klipptir eru niður rétthyrnd-
ir bútar úr mismunandi litu
flísefni og klippt aðeins upp í
brúnirnar á þeim er auðveld-
lega hægt að binda þá saman og
búa til fínasta bútasaumsteppi.
Börnin geta
meira að segja
bundið teppið
saman sjálf
ef þau fá
aðstoð við
að klippa
bútana
niður.
- kvef
- ofnæmi
- eyrnabólga
- ennis og
kinnholusýking
Fæst í apótekum
Ég nota Sterimar, það hjálpar
Stæsta bloggsamfélagið á Íslandi
Viltu sei’eikkað?
Ný útlit · Myndaalbúm · Símablogg
Bloggaðu með
símanum!
Hvar sem er og
hvenær sem er!
Vasta hux’eikkað?
Ný útlit · Myndaalbúm · Símablogg