Fréttablaðið - 10.01.2007, Page 30

Fréttablaðið - 10.01.2007, Page 30
MARKAÐURINN 10. JANÚAR 2007 MIÐVIKUDAGUR4 F R É T T I R Kaupþing, verðmætasta fyrir- tæki landsins og eitt fjölmennasta hlutafélagið, hefur aldrei verið metið hærra á hlutabréfamark- aði. Bankinn stóð í 905 krónum á hlut á mánudaginn og var því metinn á 670 milljarða króna, eða sem svarar vel til hálfrar árlegrar landsframleiðslu Íslands og hálfr- ar heildareignar lífeyrissjóðakerf- isins. Frá áramótum hafa bréf Kaupþings hækkað um 7,61 pró- sent. Þetta er þó ekki hæsta gengi Kaupþings frá upphafi því um miðjan febrúar fyrir rétt tæpu ári fóru bréfin hæst í gengið 999. Bankinn seldi nýtt hlutafé til erlendra fjárfesta í október og jók hlutafé sitt um tíu prósent sem gerir það að verkum að virði hans hefur aukist. - eþa Kaupþing aldrei verðmætara Verðmæti bankans er komið í 670 milljarða króna. Fjarskiptaumferð um CANTAT- 3 sæstrenginn verður stöðvuð næstkomandi föstudag og gert ráð fyrir að hann verði sam- bandslaus fram undir lok þessa mánaðar. Í tilkynningu Farice kemdur fram að áætlað sé að viðgerð- arskipið Pacific Guardian verði komið á bilunarstað CANTAT-3 sæstrengsins næsta laugardag, en viðgerð á að ljúka 22. janúar sam- kvæmt áætlun. „Vegna erfiðra aðstæðna og veðurskilyrða kunna dagsetningar þessar að breytast,“ segir í tilkynningunni. - óká Stöðva umferð á föstudaginn Hólmfríður Helga Sigurðardóttir skrifar Stefnt er að skráningu Promens innan tveggja ára. Ekki fæst upp gefið til hvaða kauphalla er helst horft til. Bækur félagsins verða jafnframt eftirleiðis gerðar upp í evrum. Þessar breytingar koma í kjölfar kaupa Promens á norska fyrirtækinu Polimoon sem gengu í gegn um áramótin. Atorka, sem á ríflega 82 prósenta hlutafjár í félaginu, hyggst eftir sem áður leika lykilhlutverk í eign- arhaldi á félaginu. Fyrir yfirtökuna var Polimoon skráð í Kauphöllinni í Ósló en nú er unnið að afskráningu þess. Það má segja að Promens hafi tekið stakkaskipt- um frá því í upphafi árs 2005 þegar félagið var með tuttugu milljónir evra í veltu. Í lok árs 2006, eftir umrædd kaup á Polimoon, var veltan komin í 710 milljónir evra á ársgrundvelli. Promens rekur nú sextíu verksmiðjur í tuttugu löndum, 5.400 starfs- menn starfa hjá félaginu og 160 þúsund tonn af plasti eru framleidd árlega. Einungis tvö prósent af umsvifum Promens eiga sér nú stað á Íslandi og félagið er orðið leiðandi í plastiðnaði á heimsvísu. Ragnhildur Geirsdóttir, forstjóri Promens, og Arne Vraalsen, forstjóri Polimoon, kynntu á mánudag hugmyndina að baki kaupunum. Í máli Ragnhildar kom fram að stjórnendur Promens sæju mikla möguleika á frekari vexti, bæði á núverandi mörkuðum, í Asíu og Austur-Evrópu. Promens var fyrir kaupin sérhæft í hverfissteypu en Polimoon er hins vegar sérhæft í framleiðslu á ýmsum tegundum umbúða, auk þess að framleiða hluti fyrir bíla- og rafeindaiðnað. „Við vorum búin að horfa á Polimoon í nokkurn tíma og sáum það sem áhugaverðan kost sem félli vel inn í okkar stefnu. Við sjáum þetta sem gullið tækifæri til að fara inn í aðra tækni en hverfissteypuna til að geta haldið áfram að vaxa og taka stærri skref. Félagið er með sterka stöðu í Evrópu og við sjáum fram á mjög áhugaverð tækifæri til að vaxa saman í framtíðinni.“ Verðið sem Promens greiddi fyrir Polimoon var 35 norskar krónur á hlut, sem samsvarar um 165 milljónum evra. Kaupin voru fjármögnuð með eigin fé og breytanlegum lánum sem eru sölutryggð af Atorku og Landsbanka Íslands, auk lánsfjármögn- unar frá norska bankanum DnB NOR. Stefnt að skráningu Promens innan tveggja ára Umsvif Promens hafa margfaldast eftir kaupin á Polimoon. Heildarvelta í lok ársins 2006 nam yfir 700 milljónum evra en var tuttugu milljónir í byrjun árs 2005. Meira framboð var á ýsu og þorski á fiskmörkuðum landsins í síðustu viku miðað við aðrar teg- undir. Meðalverðið var í hærri kantinum eða 177,28 krónur fyrir kílóið sem er 38,15 krónum yfir meðalverði síðasta árs, sem hækkaði um 24 prósent á milli ára, að því er fram kemur á vef Fiskifrétta. Líkt og fyrri vikur seldist mest af ýsu í vik- unni, eða 714 tonn, en 164,04 krónur fengust fyrir kílóið af slægðri ýsu. Þorskur var líkt og áður í öðru sæti yfir mest seldu teg- undirnar en 574 tonn seldust af þorski í vikunni og fengust 271,03 krónur fyrir kílóið af slægðum þorski. Athygli vekur að mjög lítið framboð var á öðrum tegundum og seldust einungis þrjár aðrar þeirra yfir 20 tonnum. Það voru ufsi, steinbítur og keila, sem skiptu með sér næstu þremur sætum yfir mest seldu fiskteg- undir á mörkuðunum í liðinni viku. - jab Gott framboð á ýsu og þorski Lýsing hf. og Sýr ehf. hafa und- irritað samning um fjármögnun á kaupum Sýr ehf., sem er í eigu þeirra Gunnars Hjaltalín og Þórarins Ragnarssonar, á eignum Teymis hf. Kaupverð nemur 2,3 milljörðum króna. Teymi mun eftirleiðis leigja húsnæðið til næstu tíu ára, að því er fram kemur í tilkynningu frá Lýsingu. Fasteignirnar eru hús Skýrr í Ármúla, hús Securitas í Síðumúla, atvinnuhúsnæði EJS við Grensásveg og húsnæði Kögunar á Lynghálsi. Þá var að auki undirritaður samningur um fjármögnun á Köllunarklettsvegi 2, sem er í langtímaleigu til ýmissa aðila. - jab Sýr kaupir fasteignir Teymis Samskip hefur tekið upp sam- starf við hafnaryfirvöld í í Zeebrugge í Belgíu um upp- byggingu gámamiðstöðv- ar vegna aukinna umsvifa Evrópuflutninga Samskipa í samstarfi við belgíska gáma- löndunarfyrirtækið PSA HNN. Vikulegar siglingar Samskipa á milli Zeebrugge og hafna á Írlandi hefjast í þessum mánuði en áform eru uppi um enn frekari flutninga til og frá Zeebrugge. Í tilkynningu frá Samskipum er haft eftir Ásbirni Gíslasyni, forstjóra fyrirtækisins, að Rotterdam verði eftir sem áður þungamiðja í Evrópuflutningum Samskipa en vegna aukinna umsvifa hafi orðið brýnt að hefja markvissa uppbyggingu annarra gáma- miðstöðva á meginlandinu. - jab Miðstöð Samskipa í Belgíu Olíuverð lækkaði nokkuð stöðugt undir lok síðasta árs. Verð á Brent Norðursjávarolíu stóð í 55 dölum á tunnu í gær og þykir ljóst að verðið er komið talsvert úr þeim methæðum sem það fór í um mitt síðasta ár. Greiningardeild Glitnis segir íslensku olíufyr- irtækin ekki hafa lækkað elds- neytisverð síðan 22. nóvember í fyrra en telur líkur á lækkun á næstunni. Greiningardeild Glitnis bend- ir á það í Morgunkorni sínu í gær að að lækkun á olíuverði síðustu vikurnar megi aðallega rekja til hlýinda á austurströnd Bandaríkjanna. Fjórði ársfjórð- ungur sé alla jafna sá söluhæsti á árinu en líklega megi enn búast við kuldakasti í Bandaríkjunum. Þá hafi olíubirgðir aukist þrátt fyrir að OPEC-ríkin, samtök olíu útflutningsríkja, hafi ákveðið að draga úr olíuframleiðslu um 1,2 milljónir tunna á dag frá 1. nóvember. Framleiðslan verð- ur minnkuð enn frekar í næsta mánuði til að koma í veg fyrir of miklar birgðir. Búist er við að olíuverð muni halda áfram að lækka á næstunni, að sögn grein- ingardeildar Glitnis sem bendir á að verð á Brentolíu hafi lækkað um 7 prósent síðan olíufélögin lækkuðu bensínverð í nóvem- ber en gengi krónunnar hækkað um eitt prósent á sama tíma. Neytendur eigi því von á lækk- un bensínverðs á næstunni sem muni aftur lækka verðbólguna. - jab Glitnir spáir lækkun bensínverðs Stjórn Icelandair Group Holding hefur veitt sautján stjórnendum félagsins kaup- rétti að samtals 45,3 milljón- ir hluta. Samningana, sem eru til þriggja ára, verður hægt að nýta frá og með árinu 2008 og er rétthöfum heimilt að nýta þriðjung kaupréttarins í fjórar vikur frá 3. janúar ár hvert. Samningsgengið er 27,5 krónur á hlut. Jón Karl Ólafsson, forstjóri Icelandair Group, fær rétt til að kaupa fimm milljónir hluta. - eþa Stjórnendur fá kauprétti

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.