Fréttablaðið - 10.01.2007, Síða 40
4
Guðjón Ólafsson er eigandi „græna
drekans“ eins og vélin er réttilega
kölluð. Hönnun græna drekans er
eins og sjá má á myndinni býsna
framtíðarleg „Það má alveg segja
að þessi vél komist nokkuð auð-
veldlega yfir móa og mel. Hún er
þannig útbúin að öll fjögur hjólin
eru á sérstökum örmum sem hægt
er að færa til með glussatjökkum.
Armarnir miða allir að því að halda
húsinu beinu og ökumaðurinn stýr-
ir þeim öllum.“ segir hann.
Töluverð þörf er á skógarhöggsvél
hér á landi að mati Guðjóns. „Elstu
bændaskógarnir eru komnir á þann
aldur að það þarf að fara að grisja
þá. Hingað til hefur eftirspurn eftir
skógarhöggi þó ekki verið mikil hér
á landi, en með tilkomu þessarar
vélar þá margfaldaðist hún, enda
afkastar hún á við tíu manna skóg-
arhöggsflokk.“
Vélin getur einnig verið trjá-
plöntunarvél, en þá er settur þar til
gerður haus framan á einn arminn
og segir Guðjón að græni drekinn
hafi margt fram yfir aðrar plöntun-
arvélar. „Þessi vél gerir meira held-
ur en bara að planta trjám því hún
skiptir um jarðveg, plantar og ber
á.“ En er vélin jafn afkastamikil við
plöntun og skógarhögg? „Hún er
kannski ekki alveg á við 10 manna
vinnuflokk í beinum afköstum, en
hún kemst nær allt og hún gerir
svo margt sem tekur aðra gífurlega
langan tíma að gera. Það er í raun-
inni ekki hægt að bera þetta saman
við mannshöndina, en samanbor-
ið við aðrar plöntunarvélar þá er
engin önnur gerð til sem getur gert
þetta.“
Dreki sem heggur
og plantar trjám
Nýlega flutti fyrirtækið Imtex inn nýjung í landbúnað-
arvélum hér á landi. Vélin er af gerðinni Mensi Muck A91
4X4 Forest og er allt í senn skurðgrafa, skógarhöggs- og
trjáplöntunarvél.
Andri Stefánsson hefur unnið hjá
timburdeild Húsasmiðjunnar í fjög-
ur ár. Þar vinnur hann með skólan-
um um helgar og einnig yfir sumar-
tímann og er stór hluti starfsins að
vinna á lyftara. „Þetta er nýr lyftari
sem við fengum í vor. Áður fyrr
var maður ekki á neinum sérstök-
um lyftara, maður mætti bara og
tók einhvern. Það er allt annað líf
eftir að þessi nýi kom og nú skell-
ir maður sér alltaf á hann,“ sagði
Andri, hæstánægður með nýja lyft-
arann sem Húsasmiðjan hefur fest
kaup á.
Lyftarinn er af gerðinni Jung-
heinrich DFH 545 og er lyftigeta
hans fjögur tonn. Hann hefur hlið-
ar- og sundur-saman færslur og er
mun kraftmeiri en gömlu lyftararn-
ir. „Aðalmunurinn er samt sá að
þessi er með geislaspilara öfugt við
þessa gömlu sem við vorum með.
Það er alveg ómögulegt að vera í
svona vinnu og keyra um á tæki
sem hvorki er með geislaspilara né
útvarp. Þessir gömlu voru alltaf bil-
aðir og voru alltaf í viðgerð. Því var
ekki annað í stöðunni en að skella
sér á nýjan í staðinn fyrir þetta
gamla drasl,“ sagði Andri.
„Svo er miðstöðin svo fljót að
hitna í þessum nýja sem er mikill
kostur þegar maður er að vinna
úti. Þannig að hitinn er fljótur að
koma. Maður kemur sér bara vel
fyrir í upphafi vinnudagsins, skellir
sér í lyftarann og hlustar á fína tón-
list. Svo reynir maður bara að sitja
þarna og dunda sér þar til vinnu-
dagurinn er búinn.“
- egm
Geislaspilarinn
gerir gæfumuninn
Andri Stefánsson vinnur á lyftara hjá timburdeild Húsa-
smiðjunnar.
Úrval vinnuvéla
Gæði á góðu verði
flestar gerðir til afgreiðslu strax
Venieri VF-763B
Venieri VF-1.33B Venieri VF-10.33B
Venieri VF-963Yuchai YC135Yuchai YC85
Yuchai YC18 Yuchai YC55
Hydrema 912CHydrema M1400C
Hydrema
McCormick C-Max 105 McCormick CX 105
McCormick MC 115 McCormick XTX 200
{ vélar og tæki }