Fréttablaðið - 10.01.2007, Page 44

Fréttablaðið - 10.01.2007, Page 44
8 Um leið og bíllinn er ræstur kemur á óvart hversu lítið heyrist í vélinni, en maður á von á því að sullandi dísilhljóðið fylli stýrishúsið, en að nokkrum sekúndum liðnum tekur maður ekki lengur eftir vélarhljóð- inu. Vélin sem er 115 hestafla 2,0 lítra dísilvél togar í fullum afköst- um 240 Nm við 1.600 sn/m og eyðir um 7,9 lítrum á hundraðið við blandaðan akstur. Vélin tók vel við sér og hélt góðum skriði þegar ekið var upp brekkur og getur maður ímyndað sér að hún eigi ekki í miklum vandræðum þótt bíllinn sé fullhlaðinn, en gert er ráð fyrir að bíllinn geti tekið allt að 1,200 kílóa hlass. Auðvelt er að koma hlassi fyrir í bílnum, en hann er þannig hann- aður að afturendi bílsins nær nokk- uð vel yfir kantinn svo vel sé hægt að koma hlutum inn í hann, auk þess sem hann er lágur. Einnig er rennihurð á honum báðum megin. En bílnum er auðveldlega hægt að breyta í níu manna smárútu, sem er í raun aðeins ein útfærsla af bílnum því hann er nánast hægt að sníða eftir eigin höfði. Hann er afar lipur í akstri og sér- staklega þægilegur. Helst var yfir því að kvarta að þegar þurfti að nota handbremsuna þvældist arm- púðinn við bílstjórasætið ansi mikið fyrir. Auðvelt var að bakka honum eftir speglunum, sem eru tvískiptir og útsýni úr bílnum er mjög gott. Stýrishús Renault Trafic er afar notalegt. Vel fer um bílstjóra, hægt er að stilla sætið á alla mögulega vegu. Rýmið er gott og vel sést á mælaborðið og þægilegur armpúði er við bílstjórasætið, sem truflar þó aðgengi að handbremsu eins og áður sagði. Trafic er fyrst og fremst vinnubíll og því er stýrishúsið vinnustaður bílstjórans og augljós- lega lagt mikið upp úr því að þörf- um hans sé mætt og honum líði vel þær löngu stundir sem hann eyðir í bílnum. Hólf eru fyrir drykkjarmál, smádót og pappíra í mælaborði svo að einfalt er að teygja sig í hluti eða leggja þá frá sér án þess að það trufli aksturinn, auk þess sem hljómtækjum er fjarstýrt úr stýri. Renault Trafic er lipur og spar- neytinn vinnuþjarkur. kristineva@frettabladid.is Þægilegur og sparneytinn Fyrsta útgáfan af Renault Trafic kom út í núverandi mynd árið 2002 og var hann þá valinn sendibíll ársins í Evrópu. Nú er hann kominn í nýrri útgáfu með nýrri 2,0 lítra dísilvél. Reynsluakstur RENAULT TRAFIC L2H1 Vél: 2,0 dCi 115 hö/240 Nm Eyðsla, bl. akstur: 7,9 l/100 km. Lengd: 5,182 m. Flutningsrými: 5 m3/1,023- 1,217 kíló 60% MARKAÐSHLUTDEILD Á ÍSLANDI ÁRIÐ 2004 MANITOU skotbómulyftarar - Þarfur þjónn, sem uppfyllir ströngustu gæði og væntingar þeirra kröfuhörðustu. HANN ER GRIMMUR! MANITOU MLT 634 TURBO INTERCOOLER - VIÐURKENND VARAHLUTAÞJÓNUSTA í 44 ár - Útvegum notaða skotbómulyftara - Úrval notaðra lyftara á lager Fjórhjóladrifinn Fjórhjólastýrður Lyftigeta: 3.400 KG Lyftihæð: 6.050 MM Gafflar: 1.200 MM Vél: Perkins Turbo intercooler, 123 HÖ LOAD SENSING!! Samtímis glussahreyfingar án aukins snúningshraða vélar. SKOTBÓMULYFTARI PON PÉTUR O. NIKULÁSSON ehf. Melabraut 23 • 220 Hafnarfjörður Símar 552 2650 & 552 0110 • FAX: 552 1588 • e-maiL: pon@pon.is { vélar og tæki }

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.