Fréttablaðið - 10.01.2007, Síða 58

Fréttablaðið - 10.01.2007, Síða 58
MARKAÐURINN 10. JANÚAR 2007 MIÐVIKUDAGUR16 H É Ð A N O G Þ A Ð A N Íslensku tæknifyrirtækin CCP og dohop, sem þróa og reka samnefnda fargjaldaleitarvél halda, í samvinnu við alþjóð- legu samtökin Python Software Foundation, ráðstefnu um Python-forritunarmálið í Salnum í Kópavogi, mánudaginn 15. jan- úar næstkomandi. Aðgangur er ókeypis en tilgangurinn er að kynna forritunarmálið betur fyrir íslenskum áhugamönnum um forritun. Aðalfyrirlesari er Steve Holden, einn fremsti sérfræð- ingur heims í notkun, kennslu og þróun forritunarmálsins, að því er segir í tilkynningu um komu hans. Þetta er önnur heimsókn Holdens en hann kom hingað til lands síðast í sumar og hafði umsjón með átaksverkefni CCP sem miðaði að þróun ákveðinna hluta Python-forritunarmálsins en tölvuleikurinn EVE Online, sem hannaður er og rekinn af CCP, er að stærstum hluta for- ritaður með Python. Að sögn Halldórs Fannars Guðjónssonar, tæknistjóra CCP, er notkun Python að aukast bæði hér og erlendis og því skipt- ir miklu máli að tæknimenntað fólk kunni skil á forritunarmál- inu. „Það má segja að ráðstefnan sé okkar viðleitni til að styðja við bakið á íslenskri hátækni og kynna forritunarmál sem getur nýst afar vel í atvinnulífi og kennslu hér á landi á komandi árum,“ segir Halldór. - jab Ráðstefna um Python-forritun Gísli Þorsteinsson hefur verið ráðinn sem markaðs- og kynn- ingarstjóri Matís ohf. Gísli hefur verið upplýsingafulltrúi Vodafone og lýkur þar störfum á næstu dögum. Matís er hlutafélag að fullu í eigu ríkisins, en í því sameinast starfsemi Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins, Matvæla- rannsókna Keldnaholti (MATRA) og Rannsóknastofu Umhverfisstofnunar. Félagið var stofnað nú í haust. - óká Frá Vodafone til Matís ohf. Borgartún 35 • 105 Reykjavík • sími 511 4000 • fax 511 4040 • utflutningsrad@utflutningsrad.is www.utflutningsrad.is Útflutningsráð Íslands stendur fyrir dagsnámskeiðið undir heitinu „Networking for Business Success“ með leiðbeinandanum Stephanie Peckham frá breska fyrirtækinu Magic of Networking. Stjórnendur og starfsmenn fyrirtækja sem vilja byggja upp og viðhalda sterku tengslaneti sínu um allan heim eru sérstaklega hvattir til þátttöku. Verð er 24.900 kr. ásamt veitingum. Takmarkaður þátttakendafjöldi. Skráning fer fram með tölvupósti á utflutningsrad@utflutningsrad.is eða í síma 511 4000. Nánari upplýsingar um námskeiðið gefa Hermann Ottósson, forstöðumaður, hermann@utflutningsrad.is og Inga Hlín Pálsdóttir, verkefnisstjóri, inga@utflutningsrad.is. Skipulagt tengslanet er lykillinn að árangri þíns fyrirtækis P IP A R • S ÍA • 7 0 01 4 Námskeið á Hótel Loftleiðum fimmtudaginn 25. janúar 2007 kl. 09.00 - 17.00 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI Dótturfélag Alfesca í Skotlandi, Farne, sópaði til sín verðlaunum þegar matvælaverðlaunin „Food and Britain“ voru afhent á Svaoy- hótelinu í London í desember síð- astliðnum. Í fréttatilkynningu frá Alfesca segir að Farne hafi hlotið fern verðlaun. Það hafi verið útnefnt útflutandi ársins í Skotlandi, útflytjandi ársins í frystum og kældum matvörum, útflytjandi ársins í vörumerkjum stórmark- aða og útflytjandi ársins í flokki drykkja og matvara. - hhs Alesca verðlaunað
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.