Fréttablaðið - 10.01.2007, Síða 60
MARKAÐURINN 10. JANÚAR 2007 MIÐVIKUDAGUR18
NÝJASTA TÆKNI OG VÍSINDI
*Nafnávöxtun í ISK, EUR, USD og GBP á ársgrundvelli fyrir tímabili› 30/11/06-29/12/06.
Peningamarka›ssjó›ir eru fjárfestingarsjó›ir skv. lögum nr. 30/2003, um ver›bréfasjó›i og fjárfestingarsjó›i.
Rekstrarfélag sjó›sins er Rekstrarfélag Kaupflings banka hf. Fjárfestingarsjó›ur telst vera áhættusamari fjárfesting
en ver›bréfasjó›ur skv. lögunum. Meiri áhætta fjárfestingarsjó›s er fólgin í r‡mri fjárfestingarheimildum sem geta
m.a. leitt til minni áhættudreifingar en í ver›bréfasjó›i. Nánari uppl‡singar um framangreint má nálgast í útbo›sl‡singu
e›a útdrætti úr útbo›sl‡singu sjó›sins í útibúum Kaupflings e›a á www.kaupthing.is.
P E N I N G A M A R K A ‹ S S J Ó ‹ I R
Ávaxta›u betur
- í fleirri mynt sem flér hentar
Kynntu flér kosti Peningamarka›ssjó›a Kaupflings í ISK, USD, EUR og GBP.
Haf›u samband vi› rá›gjafa í síma 444 7000.
4,0%*
ávöxtun í evrum
6,2%*
ávöxtun í dollurum
13,8%*
ávöxtun í krónum
4,6%*
ávöxtun í pundum
Jón Aðalsteinn Bergsveinsson
skrifar
Vonir standa til að hundrað-dala-
tölvan svokallaða, sem reyndar
heitir XO, verði tilbúin og komin
í almenna dreifingu um allan
heim í júlí í sumar. Eins og nafn-
ið gefur til kynna mun tölvan
kosta 100 Bandaríkjadali eða um
7.000 íslenskar krónur en hún
er ætluð fátækum börnum, ekki
hvað síst í þróunarlöndunum,
sem fram til þessa hafa staðið
utan við tæknivæðinguna.
Fyrstu tölvurnar, sem þró-
aðar hafa verið í bandaríska
tækniháskólanum MIT síðast-
liðin tvö ár, fara til Brasilíu,
Argentínu, Úrúgvæ, Nígeríu,
Líbýu, Pakistan og til Taílands.
Í tölvunni er 366 MHz
örgjörvi frá AMD og þráðlaus
nettenging. Hún hefur engan
harðan disk en 512 MB vinnslu-
minni og tvö USB-port, sem
gerir það að verkum að hægt er
að tengja jaðartæki við tölvuna.
Þá keyrir tölvan á einfölduðu
stýrikerfi frá Linux en ræður
við stýrikerfi frá Microsoft og
Apple auk þess sem henni fylgja
ritvinnsluhugbúnaður, vafri og
RSS-fréttaþjónusta svo notend-
ur geti fylgst með gangi heims-
málanna.
Nicholas Negroponte, sem
unnið hefur að þróun tölvunn-
ar hjá MIT, vísar því á bug að
hundrað-dala tölvan sé strípuð
og einfölduð útgáfa af hefð-
bundnum tölvum. Hann geti
vel hugsað sér að leggja eigin
tölvu og nota XO-tölvuna. „Hún
verður mun betri á margan
hátt,“ segir hann í samtali
við fréttastofuna Associated
Press.
100 dala tölvan tilbúin í sumar
B a n d a r í s k i
bílaframleið-
andinn Ford
og hugbún-
a ð a r r i s i n n
M i c r o s o f t
kynntu í síð-
ustu viku
hugbúnað í
bíla sem gerir
ökumönnum
kleift að radd-
stýra ýmsum
rafbúnaði í
bílum sínum,
svo sem spil-
urum og far-
síma.
Hugbúnaðurinn skilur þrjú
tungumál en með honum getur
ökumaður greint frá því hvaða
lög hann vill heyra í græjum
á borð við iPod-spilara og í
hverja farsíminn á að hringja í.
Búnaðurinn verður innbyggður
í tólf nýjar bílategundir undir
merkjum Ford sem koma á mark-
að á þessu ári.
Að sögn stjórnenda bandarísku
bílasmiðanna er mikil eftirspurn
eftir handfrjálsum tækjabúnaði
á borð við þennan í bíla vestan-
hafs og sér fyrirtækið fram á að
geta plægt geysistóran markað
fyrir tæknina í Bandaríkjunum
til að byrja með.
Tækjabúnaðurinn, sem nefn-
ist Sync, þykir vera ágætt við-
bragð Microsoft til að stækka
markaðshlutdeild sína og sækja
á nýja markaði utan tölvugeir-
ans. Á móti kemur að Ford þykir
hafa landað ágætu tækifæri til að
bæta afkomu sína á bandaríska
bílamarkaðnum, sem hefur dreg-
ist nokkuð saman síðastliðin ár.
Aðrir bílaframleiðendur munu
vera að vinna að innleiðingu svip-
aðrar tækni í bíla sína. - jab
Microsoft og Ford
bæta ökumenningu
Hollenski viðtækja- og tækni-
framleiðandinn Philips kynnti
sérstaka viðhafnarútgáfu af
Philips Ambilight flatsjónvarpinu
á árlegu tæknisýningunni í Las
Vegas í Bandaríkjunum á sunnu-
dag um síðustu helgi. Tilefnið er
að fyrirtækið hefur selt milljón
sjónvörp af þessari gerð.
Hönnuðurinn Jeffrey Link á
heiðurinn að viðhafnarútgáfunni
sem er skreytt 2.200 eðaldem-
öntum.
Ekkert hefur verið gefið uppi
um hvort sjónvarpið, sem er ein-
stakt í sinni röð, fari í almenna
sölu en Philips hefur neitað að
gefa verðið upp. Hins vegar má
gera ráð fyrir að viðtækið muni
kosta skildinginn og vel það. - jab
Einstakt sjónvarp
Finnski farsímaframleiðandinn
Nokia kynnti þrjá nýja og næf-
urþunna margmiðlunarfarsíma
og lófatölvu undir merkjum fyr-
irtækisins á tæknisýningunni í
Las Vegas í Bandaríkjunum um
síðustu helgi.
Farsímarnir, sem eru í svokall-
aðri N-seríu, eru talsvert minni
en fyrri gerðir símanna. Þeir eru
13,7 millimetrar í þvermál og
koma á markað á fyrsta fjórð-
ungi þessa árs. Samkvæmt Nokia
seldust tæplega 40 milljónir far-
síma af þessari gerð á síðasta ári
en stefnt er að því að selja allt að
280 milljónir margmiðlunarfar-
síma á næstu tveimur árum.
Símarnir ráða
við tónlist á mp3-formi, geta ráfað
um netið og eru með tveggja
megadíla innbyggða myndavél.
Þá munu dýrari gerðir símanna
hafa innbyggða myndbandsupp-
tökuvél.
Nokia kynnti sömuleiðis nýja
handtölvu á tæknisýningunni.
Tölvan, sem sömuleiðis er hluti
af N-seríu Nokia, keyrir á stýri-
kerfi frá Linux. Vafri tölvunnar
þykir léttur í vöfum auk þess
sem tölvan er með innbyggða
vefmyndavél sem styður við Wi-
Fi-tækni. Þá stefnir Nokia sömu-
leiðis á að samhæfa tölvuna sam-
skiptaforritinu Skype, sem gerir
tölvunotendum kleift að hringja
á milli tölva með lágum tilkostn-
aði. Tölva þessi kemur fljótlega
á markað í Bandaríkjunum og í
Evrópu. - jab
Nýir margmiðlunarsímar