Fréttablaðið - 10.01.2007, Page 88
Fyrir tólf árum var ég blaða-maður á blaði sem reyndi sitt
besta til að stinga á samfélagskýl-
unum. Þar starfaði hugumstór rit-
stjóri sem þreyttist seint á að
segja sömu söguna. Hún var af
blaðamanni sem ráðinn hafði verið
á blað út á þá hugmynd að skrifa
um fátækt á Íslandi. „Hann ætlaði
að taka viðtöl við fátækt fólk en
hver haldiði að vilji viðurkenna að
hann sé fátækur? Maðurinn var
auðvitað látinn fara viku síðar,
ekki búinn að skrifa staf,“ sagði
ritstjórinn. Fátækt var bara eins
og hver annar draugagangur, erf-
itt að festa hendur á henni þótt
marga hafi vissulega grunað að
hún væri til.
hafa tímarnir heldur betur
breyst. Undanfarinn áratug hafa
fjölmiðlar fjallað ötullega um tekj-
ur hinna ríku, bílaflota, fasteignir
og flugvélar og til að lesendur átti
sig á því hvað þetta fólk á fyrir
bragðgóðu salti í grautinn þurfum
við almennileg viðmið. Því taka nú
fjölmiðlar reglulega viðtöl við fólk
sem hikar ekki við að viðurkenna
að það búi við sult og seyru.
einu eða tveimur árum
birti Kastljós til að mynda ekki
aðeins viðtal við mann sem hafði
látið jólagjafapeningana sína
renna til blankrar konu heldur
spjallaði konan sjálf líka um þessa
rausnarlegu gjöf sem hafði svo
sannarlega komið sér vel. Í síð-
ustu viku tók Ingibjörg B. Sveins-
dóttir, blaðamaður á Blaðinu, síðan
viðtal við eldri konu sem hafði
orðið fyrir því happi að ókunnug
hjón buðust til að greiða fyrir hana
matarkörfuna þar sem hún var
stödd í Krónunni. Yfir örlæti hjón-
anna eru notuð mörg falleg orð
sem sjaldséð eru í íslenskum
fréttaflutningi, svo sem „kærleik-
sverk“, „elskusemi“ og „góðvild“.
fyrr gátum við lifað sæl í
þeirri trú að jöfnuður ríkti í sam-
félaginu. Enginn átti of mikið og
enginn of lítið. Þeir sem voru
fátækir flögguðu því ekki og það
sem meira er, þeir ríku gerðu það
heldur ekki. Þeir buðu blaðamönn-
um einfaldlega ekki upp á að
smella myndum af Kjarvalnum og
kristalnum. Nú hafa fjölmiðlar
sýnt okkur að litla stúlkan með
eldspýturnar gengur í sama skóla
og ríku börnin í Burberry-fötun-
um og það væri lítið varið í söguna
af þeirri krókloppnu snót ef ekki
skini „birta úr öllum gluggum og í
götunni var svo yndislegur ilmur
af gæsasteik“.
Elskusemi
þeirra velstæðu Hugsaðu þér bara
hvað þú losnar við
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
T
O
Y
3
56
06
0
1/
07
Toyota Kópavogi
Nýbýlavegi 2
Kópavogur
Sími: 570-5070
www.toyota.is
Hraðþjónusta Toyota - engar tímapantanir
Reglubundið viðhald þarf ekki að vera óþægilegt.
Með tilkomu Hraðþjónustu Toyota er það bæði
einfaldara og fyrirhafnarminna en áður.
Hraðþjónusta Toyota gefur þeim sem eru önnum
kafnir kost á að njóta þjónustu sem losar fólk undan
óþarfa umstangi og snúningum. Næst skaltu biðja
um Hraðþjónustu Toyota og komast að raun um hvað
hún getur breytt miklu fyrir þig á annasömum degi.
Hraðþjónusta Toyota - ekið inn að ofanverðu, Dalbrekkumegin
Hraðþjónusta
1 2 3
www.toyota.is