Fréttablaðið - 12.01.2007, Síða 64

Fréttablaðið - 12.01.2007, Síða 64
! Best í heimi í Iðnó Kl. 17.00 Þórunn Hjartardóttir opnar sýningu í Anima galleríi Ingólfsstræti 8. Á sýningunni verða verk sem Þórunn hefur unnið í vetur í Reykjavík og Róm, en hún dvaldi vetrarpart í Rómarbústaðnum. Sýningin, sem er sjötta einkasýning Þórunnar, stend- ur til 27. janúar. Þrjár stórsýningar hafa verið uppi í London á þessu hausti: Manna- myndasýningu Þjóðverjans Hans Holbein (1497/98-1543) lauk í Tate- safninu síðasta sunnudag. Þar gat að líta frægustu mannamyndir þyska málarans: Thomas More, Jane Seymour, eru þar á meðal en Holbein gerði margar fleiri mynd- ir af mektarmönnum á valdatíma Hinriks áttunda í Bretlandi, enda vann hann við hirðina sem málari og stílisti. Sýningar á mannamyndum spænska málarans Velázquez (1599-1660) verður uppi á National Gallery til 21. janúar. Hann var ættaður frá Sevilla en vann mest við hirð Filipusar fjórða. Hann var mikill meistari sjónblekkinga sem síðar ollu bæði raunsæismálurum og impressjónistum heilabrotum. Myndirnar á National eru nær helmingur varðveittra verka hans og eru fenginar að láni frá Prado- safninu. Verður bið á því að þær ferðist mikið eftir að þeim er skil- að sökum kostnaðar. Þetta er því einstakt tækifæri sem gefst til að sjá þær. Í lok þriðju viku lýkur einnig mannamyndasýningu Davids Hockney á National Portrait Gall- ery. Þó að Hockney teljist óvírætt til kynslóðar bresku popparanna hefur hann frá fyrstu tíð verið óhemju afkastamikill manna- myndamálari, bæði með olíu, past- el, penslum og lit. Að ógleymdum ljósmyndum sem hann hefur notað mikið í seinni tíð. Hög hönd hans dregur fram aðstæður og persón- ur af mikilli list. Samfara þessum þremur sýn- ingum mannamynda eru söfnin með útgáfur sem auðveldlega má nálgast í vefbúðum þeim tengd- um. Mannamyndir hafa á tímum ljósmyndarinnar verið víkjandi iðn, því sumir vilja ekki kenna þá iðkun til lista. Hér hafa þó verið óhemju afkastamiklir portrett- málarar, Örlygur Sigurðsson, Sig- urður Sigurðsson og Baltasar. Ýmis merki eru uppi að víða um lönd sé mannamyndin aftur í upp- sveiflu og hafa menn kennt um aldri og velsæld millistéttar og nýríkum efristéttum. Enn hafa ekki komið fram hér á landi mál- arar sem einbeita sér að portretti en X-kynslóðin, krúttin og upparn- ir, svo ekki sé talað um 68-kynslóð- ina, eru nægilega einstaklings- sinnuð og sjálfupptekin til að taka slíkri túlkun persónuleika fagn- andi – finnist sá málari. Enn hefur ekki verið hóað í einhverskonar yfirlit mannamynda hér á landi af stóru söfnunum. Mannamyndir á söfnum Bók Nesútgáfunnar um færeyska málarann Samal Joensen-Mikines sem Aðalsteinn Ingólfsson er aðalhöfundurinn að fær framúrskarandi umsögn hjá Peter Michael Hornung í Politiken um helgina. Ein glæsi- legasta útgáfa ársins segir gagnrýnandinn og hrósar aðstandendum útgáfunnar fyrir metnað í öllum frágangi verksins. Nesútgáfan sendi bókina frá sér í árslok og hefur hún hlotið litla athygli hér á landi. Kynningareintökum hefur enda ekki verið dreift á fjölmiðla. Gagnrýnandinn viður- kennir fúslega að færeyski málarinn hafi átt litla von um að komast að hásætum evrópskrar málaralistar verandi frá Fær- eyjum. Hann rekur umfjöllun Aðalsteins og hvernig innri andstæður málarans urðu til þess að hrekja hann lengra í myrkur ókunnugleika og vanmats á sterkri list- rænni gáfu hans, sem og áfengissýki hans og lyfjaneysla og síðan samúð hans með fasismanum. Bók um Mikines hrósað Það er ekki á hverjum degi sem almenningi gefst kost- ur á að sjá sæmilegt yfirlit um íslenska byggingarlist en nú gefst slíkt tækifæri: Sýning um byggingarlist á Íslandi á síðustu árum verður uppi í Tjarnarsal Ráðhússins í Reykjavík frá föstudeginum 12. til 28. jan- úar. Á sýningunni er sýnd byggingarlist á Íslandi frá 1992 til þessa dags. Sýningin nefnist 50+12 og er sam- norrænt verkefni, sem var fram- lag Arkitektaskólans í Árósum til Menningarviku borgarinnar í sept- ember 2006. Arkitektafélag Íslands og Listaháskóli Íslands stóðu að sýningunni af Íslands hálfu en nokkuð var í hana lagt: Styrktarað- ilar eru Norræni Menningarsjóð- urinn, Minningarsjóður Guðjóns Samúelssonar, Menningarsjóður Íslandsbanka og Sjóvá-Almennra og Ráðhús Reykjavíkur.Sýningin 50+12 er sjálfstætt framhald af sýningu um byggingarlist á Íslandi, sem haldin var í tilefni af 50 ára afmæli íslenska lýðveldisins fyrir tólf árum. Á þeirri sýningu voru sýnd verk, sem náðu yfir alla sögu byggingarlistar á Íslandi fram til ársins 1994. Tildrög hennar voru nokkuð óvenjuleg: hingað hafði þá komið reglulega hópur nemenda í arkitektúr frá Árósum með kenn- ara sínum, Paul Nedgaard Jensen. Hóparnir lögðust í mælingar á íslenskum húsum fornum og skil- aði það útgefnu efni sem farið hefur lágt en er grundvallarverk í íslenskri byggingarsögu: Þverá og Öræfi 1 og 2. Hvers vegna skyldi danskur kennari í arkitektúr leita til Íslands eftir mælingaverkefnum: hér er óplægður akur – rannsóknir á íslenskri húsagerðarlist eru skammt á veg komnar, víddir eru hér aðrar og viðfangsefni gerólík því sem finna má í Danmörku. Svo er Paul frá Skagen en þar er birta og land gerólíkt flestum stöðum í Danaveldi – hann fann hér á landi eitthvað sem var keimlíkt sínum fornu slóðum, festi ástfóstri við landið og fornan húsakost hér. Hugmynd kom svo upp vegna þessara tengsla að gera sýningu um íslenskan arkitektúr fyrir menningarvikuna árlegu í Árós- um, en þegar menn tóku að líta til verksins var einsýnt að hún þyrfti að sækja lengra aftur í tímann og úr varð sýning sem gerði grein fyrir eldri húsagerð. Hún kom upp 1994 en barst ekki hingað fyrr en 1996. Samfara henni kom út lítið rit eftir Þorstein Gunnarsson, Hjörleif Stefánsson og Pétur Ármannsson á þremur tungumál- um. Það er nú orðið fágætt. Sýningin nú er beint framhald. Þar eru 25 verk skoðuð, tvö þeirra skara tímamótin milli sýninganna. Landslagsmyndir ljósmyndarar- ans Aage Lund Jensen móta umgjörð sýningarinnar. Sjón er sögu ríkari og því er best að vísa áhugasömum í Ráðhúsið. Opnun- arhátíð er í dag kl. 16. Sýningin stendur til 28. janúar og er opin kl. 8-19 virka daga og kl. 12 til 18 um helgar. Samstarf við Árósamenn hefur dregið dilk á eftir sér: enn koma hingað hópar til mælinga frá Árós- um. Nú eru það gömlu kirkjurnar sem þeir mæla og leggja því sitt til hinnar miklu ritraðar um kirkjur á Íslandi. Guðmundur Gunnarsson arkitekt hefur fylgst með þessu starfi öllu og segir hann til-legg Árósamanna ómetanlegt í skrán- ingu gagna fyrir íslenska bygging- arsögu sem er hreint ekki lítill hluti menningarsögu okkar en ekki nema að litlu leyti rannsökuð og skráð og því flestum hulin – þó að hún blasi við. Sýningin í Ráðhús- inu er holl áminning um það. Steinunn Þórarinsdóttir á verk á listaverkamessunni í Palm Beach 3 Contemporary Art Fair í Flórída. Um níutíu gallerí sýna þar og er Samu- el Osborne galleríið í Mayfair þar á meðal sen það höndlar alla jafna með verk Steinunnar. Osborne höndlar með marga fleiri merka listamenn að staðaldri en í hópnum sem þeir selja eru meðal annarra Henry Moore, David Hockney, Lucien Freud, Jim Dine, Miró, Picasso, Warhol, Anna Maria Pacheco, Sean Henry, Frank Stella og Sophie Ryder. Eitt af verkum Steinunnar er staðsett við aðalinngang sýningarinnar ásamt verki eftir Lynn Chadwick. Lynn Chadwick, sem er nýlátinn, var einn af þekktustu mynd- höggvurum Breta á 20. öldinni og hefur Osbourne talsvert af verkum hennar til sölu. Alþjóðlega listamessan í Palm Beach er nú haldin í tíunda sinn en hún hófst í gær og lýkur 16. janúar. Hægt er að sjá valin verk frá sýningunni á www. osbornesamuel.com. Steinunn í Flórída

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.