Fréttablaðið - 12.01.2007, Side 60
„Íslendingar vita ekki
hvað þeir eru heppnir að
búa á Íslandi.“
Breska Zúlú-stríðið hefst
„Maður er svona búinn að búa sig
undir þetta andlega,“ sagði alþingis-
konan Ásta Möller létt í bragði, þegar
Fréttablaðið forvitnaðist um hvernig
tímamótin legðust í hana. Ásta var þó
ekki á því að hún stæði á einhverjum
sérstökum tímamótum á fimmtugsaf-
mælinu. „Ég held að mesta áfallið hafi
verið þegar ég varð fjörutíu og eins
árs, mér fannst ég vera orðin svo
gömul þá,“ sagði Ásta, sem kvaðst
hins vegar ekkert hafa fundið fyrir
því þegar hún varð fertug. „Svo tekur
maður þessu bara með stóískri ró,“
sagði hún kát. Á alvarlegri nótum
sagðist Ásta þó ekki einblína sérstak-
lega á aldur.
„Maður er eins gamall og maður
telur sig vera. Þetta er stór tugur, en í
anda er ég miklu yngri,“ sagði hún.
„Ég er náttúrulega enn þá ung og efni-
leg kona og verð það vonandi áfram,
en samt með þá reynslu sem aldurinn
gefur til kynna. Ég held að það sé mik-
ilvægt að maður nýti þá reynslu og
þekkingu sem maður hefur aflað sér,
en líti svo á að maður sé enn ungur og
efnilegur. Að fólk horfi fram á veginn
og skoði hvernig það geti bætt um
betur,“ sagði Ásta. „Mér finnst ég
ekkert vera á leiðinni niður, ég er
ennþá á leiðinni upp,“ bætti hún við.
Aðspurð hvort einhver afmælis-
dagur sé henni minnisstæðari en
annar, segir Ásta alla afmælisdaga
sína hafa verið frábæra. „Mér finnst
líka alveg ofboðslega stutt síðan ég
var 25 ára, þrítug og fertug. Manni
finnst þetta líða svo hratt,“ sagði hún.
Ásta man þó sérstaklega eftir tólf
ára afmælisdegi sínum og nefnir að
hann sé miklu heldur tímamótadagur
en fimmtugsafmælið. „Þá var svona
litið á mann eins og maður væri
aðeins farinn að fullorðnast. Ég man
að ég fór um kvöldið með pabba og
mömmu á Byssurnar í Navarone. Það
var í fyrsta skipti sem ég fór á mynd
sem var bönnuð innan tólf ára. Þá
var maður ekki lengur bara í krakka-
myndunum,“ sagði hún.
Ásta segist hafa óskaplega gaman
af því að hópa fólki í kringum sig af
ýmsum tilefnum og ætlar því að
halda heljarinnar veislu í kvöld. „Ég
stóð frammi fyrir því núna að ákveða
hvað ég ætti að gera, láta mig hverfa
eða fagna þessu. Ég ákvað að fagna
bara, og slæ upp balli fyrir fjöl-
skyldu, vini, kunningja og vinnufé-
laga í Félagsheimilinu á Seltjarnar-
nesi í kvöld,“ sagði hún að lokum.
Eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Steingrímur Jónsson
flugvirki,
sem lést 4. janúar sl. verður jarðsunginn frá
Dómkirkjunni í Reykjavík, þriðjudaginn 16. janúar
kl. 13. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim
sem vilja minnast hans er bent á Minningasjóð Grundar.
Molly Jónsson
Jón Steingrímsson Guðrún Ólafsdóttir
Skorri Steingrímsson
og barnabörn.
Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
Sölvína Herdís Jónsdóttir
Lyngholti, Ólafsfirði,
síðar Dvalarheimilinu Ási, Hveragerði,
verður jarðsungin frá Ólafsfjarðarkirkju laugardaginn
13. janúar kl. 13.30.
Kristján Reykdal
Guðfinna Ólöf Friðriksdóttir Gunnar Ágústsson
Margrét Friðriksdóttir Einar Gestsson
Hildur Friðriksdóttir Gylfi Ólafsson
Jón Sveinn Friðriksson Jóna Gunnarsdóttir
Auður Regína Friðriksdóttir Sævar Anton Hafsteinsson
Eygló Friðriksdóttir, ömmubörn og langömmubörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Ársæll Guðsteinsson
rafvirki, Dalvegi 16c Kópavogi,
lést á líknardeild Landakotsspítala þriðjudaginn 9. janúar.
Pálína K. Pálsdóttir
Sigurður Ársælsson Anna Dóra Guðmundsdóttir
Vilborg Ósk Ársælsdóttir Finnbogi G. Kristinsson
Páll H. Ársælsson
Guðrún H. Ársælsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
60 ára afmæli
Skúli Viðar Lórenzson
miðill, verður sextugur 15. jan.
Á þessum merku tímamótum bjóðum
við ætting jum og vinum að gleðjast
með honum laugardaginn 13. jan. í
Hamri, félagsheimili Þórs, frá kl.
17.00. Fjölskyldan.
Við viljum þakka öllum þeim sem með
bænum, blómum, gjöfum, fallegum orðum,
faðmlögum, kertalogum, samúðarkveðj-
um, ýmiss konar hjálp eða á annan hátt
hafa sýnt minningu Ágústs sonar okkar
virðingu.
Þakkir frá okkar dýpstu hjartarótum. Þið eruð okkar
hetjur. Guð blessi ykkur.
Auróra G. Friðriksdóttir Bjarni Sighvatsson.
AFMÆLI
FÆDDUST ÞENNAN DAG