Fréttablaðið - 12.01.2007, Síða 74
Eins og Fréttablaðið
greindi frá í gær þá ríkir leynd
vegna launamála formanns KSÍ.
Einnig kom fram í blaði gærdags-
ins að það væru nánustu sam-
starfsmenn formannsins sem
ákveddu laun hans og það á fundi
sem Eggert Magnússon, formaður
KSÍ, situr en hann stígur fram á
gang á meðan gengið er frá launa-
málum hans. Einungis sex ein-
staklingar vita hvað formaður KSÍ
hefur í laun og aðeins sjö einstakl-
inum er kunnugt um hvernig fjár-
málum sambandsins er nákvæm-
lega háttað.
Einn þeirra er framkvæmda-
stjóri KSÍ og formannsframbjóð-
andinn, Geir Þorsteinsson. Frétta-
blaðið spurði Geir að því hvort
hann væri að bjóða sig fram vegna
launanna.
„Ég býð mig fram til þess að
vera starfandi formaður í knatt-
spyrnuhreyfingunni. Ég mun ekki
ákveða launin og er ekki að bjóða
mig fram vegna launanna,“ sagði
Geir en orðrómur hefur verið uppi
um að hann ætli að leggja niður
starf framkvæmdastjóra og þess í
stað ætli hann sér að vera starf-
andi stjórnarformaður.
Geir segir þann orðróm ekki
vera réttan. „Ég mun ekki leggja
niður framkvæmdastjórastöðuna
enda á að vera framkvæmdastjóri
samkvæmt lögum sambandsins og
ég mun ekki leggja fram neinar
breytingatillögur um slíkt. Ég er
ekki að fara að breyta stjórnkerfi
sambandsins.“
Margir hafa ekki talið stöðu
formanns KSÍ ekki vera fullt starf
hingað til en Geir er því ekki sam-
mála og segir auðvelt mál að gera
formannsstarfið að fullu starfi.
„Ég er reiðubúinn að starfa af
fullum krafti og ætla mér að gera
það nái ég kjöri. Ef mér endist
dagurinn til þá er þetta fullt starf.
Ég held að það sé nóg starf dag og
nótt að vera formaður KSÍ. Það
byggist annars á hverjum og
einum hversu mikið hann gefur af
sér í starfið. Það eru nóg tækifæri
til að hafa óþrjótandi verkefni við
að vinna að framgangi knatt-
spyrnunnar,“ sagði Geir sem er að
gefa frá sér gott starf sem er þar
að auki vel launað.
„Það er rétt. Ég hef sinnt því
starfi lengi og varð að glíma við
þessa ákvörðun sem ég tók. Ég
ætlaði ekki að vera eilífur í þessi
starfi og það er ljóst að ég verð
ekki framkvæmdastjóri KSÍ sama
hvort ég nái kjöri eður ei,“ segir
Geir Þorsteinsson.
Geir Þorsteinsson, framkvæmdastjóri KSÍ, segist ekki vera að bjóða sig fram til
formanns KSÍ vegna launanna. Hann segir að staða formanns KSÍ sé fullt starf
og að verkefnin séu óþrjótandi fyrir tilvonandi formann.
Ein skærasta stjarna
NBA-deildarinnar, Jason Kidd,
leikmaður New Jersey Nets, hefur
sótt um skilnað frá eiginkonu
sinni til síðustu tíu ára. Málið
hefur vakið mikla athygli vestra
enda sakar Kidd eiginkonu sína
um áralanga misnotkun, líkam-
lega sem andlega. Kidd sótti um
skilnað degi eftir að hann fór fram
á tímabundið nálgunarbann á
eiginkonuna.
Í skilnaðarumsókninni er
nákvæm lýsing á hegðun eigin-
konu hans, Joumana Kidd, og
henni lýst sem sjúklega afbrýði-
samri. Í umsókninni kemur fram
að Joumana hafi notað átta ára
son þeirra til að laumast inn í
klefa Nets og stela síma Jasons.
Joumana fór síðan í gegnum síma-
skrána og sms eiginmannsins og
eftir það skildi hún soninn eftir og
fékk sér sæti inni í sal þar sem
Jason var að keppa með Nets í
NBA-deildinni. Þaðan jós hún fúk-
yrðum yfir eiginmann sinn meðan
á leik stóð.
Jason heldur því einnig fram
að hún hafi kýlt, sparkað og fleygt
heimilismunum í sig eftir því sem
hún versnaði með árunum. Jason
heldur því einnig fram að hún hafi
falið staðsetningarbúnað í bíl hans
og tölvu. Þau hjónin eiga þrjú
börn, átta ára son og fjögurra ára
tvíbura.
Segir eiginkonuna hafa
lamið sig í mörg ár
Það var dregið í
undanúrslit Lýsingarbikarkeppni
karla og kvenna í körfubolta í
fyrrakvöld og það má segja að
drátturinn sé endurtekning frá
árinu 2001 en það ár komust
einmitt karlalið Hamars og ÍR
óvænt í bikarúrslitaleikinn eftir
útisigra í Keflavík og Grindavík.
ÍR-ingar mæta nú aftur til
Grindavíkur en að þessu sinni fá
leikmenn Hamars/Selfoss heima-
leik gegn Keflavík. Keflavík og
Grindavík mættust í úrslitaleikn-
um í fyrra. Í kvennaflokki
mætast Grindavík og Haukar í
Grindavík og Keflavík tekur á
móti Hamar alveg eins og hjá
körlunum en þessi leikur fer hins
vegar fram á Sunnubrautinni í
Keflavík.
Endurtekning
frá 2001?
KSÍ hefur gefið út á
hvaða völlum verður leikið í
úrslitakeppni EM U19 kvenna
sem fram fer hér á landi í júlí
næstkomandi. Leikið verður á sjö
völlum, Akranesvelli, Grindavík-
urvelli, Hlíðarenda, Kópavogs-
velli, KR-velli, Laugardalsvelli og
Víkingsvelli.
Annar hluti undankeppninnar
fer fram í apríl næstkomandi en
24 lið í sex riðlum keppa þar um
sjö laus sæti þar sem sigurvegari
hvers riðils og liðið með bestan
árangur í 2. sæti komast í
úrslitakeppninni á Íslandi.
Það verður dregið í riðla úrslita-
keppninnar í lok maí og verða
tveir leikir sýndir beint á
sjónvarpsstöðinni Eurosport.
Sjö vellir hýsa
keppnina
Frjálsíþróttasambandið
ætlar að virkja fimmtu og sjöttu
bekkinga í skólum landsins og
stendur fyrir Skólaþraut FRÍ í
fyrsta sinn. Þrautin mun fara
fram frá 1. febrúar til 1. maí og
verður öllum grunnskólum í
landinu boðið að taka þátt í henni.
Keppnisgreinar verða 120
metra spretthlaup, hástökk og
kúluvarp. Íþróttakennarar
skólanna geta framkvæmt
þrautina í þremur leikfimitímum
og og stuðst verður við unglinga-
töflur FRÍ við útreikninga
stigakeppninnar. Átta efstu
einstaklingum í hvorum aldurs-
flokki af hvoru kyni verður síðan
boðið á lokamót sem verður
haldið um miðjan maí.
Skólaþraut
hefst í febrúar
Íslenska kvennalandslið-
ið tekur þátt í Algarve Cup í mars
næstkomandi og er í riðli með
Ítalíu, Portúgal og Írlandi. Ísland
tók sæti Wales.
Mótið er tvískipt, liðin í A- og
B-riðli keppa um sex efstu sætin
en tvö efstu liðin í riðli Íslands
mæta neðstu liðunum í A-ö og B-
riðli til að skera út um hvaða lið
endar í 7. til 11. sætinu í mótinu.
Íslenska landsliðið getur því best
náð 7. sætinu á þessu móti sem
fer nú fram í 14. sinn.
Ísland hefur tvisvar áður tekið
þátt í þessu móti en það voru árin
1996 (6. sæti) og 1997 (7. sæti).
Leikirnir verða fyrsta verkefni
Sigurðar Ragnars Eyjólfssonar
og Guðna Kjartanssonar með
íslenska kvennalandsliðið
Geta best náð 7.
sæti á mótinu
F
í
t
o
n
/
S
Í
A