Fréttablaðið - 12.01.2007, Qupperneq 73
Það hefur verið áhugavert að fylgjast með
framgöngu, og framkomu, formanns KSÍ,
Eggerts Magnússonar síðustu vikur. Brátt
lýkur 19 ára valdatíð Eggerts og verður ekki
sagt að útganga formannsins sé glæsileg.
Það verður ekki tekið af Eggerti að hann
hefur gert margt gott fyrir íslenska knatt-
spyrnu og fjárhagsstaða KSÍ, sem og nýr og
glæsilegur Laugardalsvöllur, ber vitni um.
Einnig hefur öll umgjörð í kringum efstu
deildir karla og kvenna batnað til mikilla
muna sem er vel.
Hjá því verður þó ekki litið að eldar
geysa víða og mikilvægir hópar innan hreyf-
ingarinnar hafa borið skarðan hlut frá borði
á þessu mesta velmegunarskeiði knatt-
spyrnusambandsins. Það logar allt í illdeil-
um milli KSÍ og dómara landsins sem hafa
svo sannarlega setið eftir á meðan laun for-
mannsins hafa hækkað eðlilega samhliða
launaþróun í landinu að því er gjaldkeri
sambandsins segir.
Skemmst er síðan að minnast þeirrar
skammarlegu upphæðar sem KSÍ skaffar
landsliðskonum Íslands meðan þær eru í
verkefnum með landsliðinu. Um það mál
hefur Eggert neitað að ræða með öllu og
hann hefur gert sér lítið fyrir og skellt á þá
blaðamenn sem hafa verið svo „frekir“ að
spyrja hann út í málið. Eru það eðlilegir
stjórnarhættir?
Svo má ekki gleyma grasrótinni og litlu lið-
unum sem telja sig oft vera hlunnfarna í
samskiptum við KSÍ. Má taka sem dæmi að
KSÍ lét ekki krónu rakna af hendi til Snart-
ar á Kópaskeri, sem hafði fengið hvatning-
arverðlaun sambandsins og fékk nokkra-
bolta að launum, þegar forráðamenn
félagsins leituðu á náðir sambandsins með
einhvern styrk svo þeir gætu keypt sér
mörk sem er grundvöllurinn fyrir því að
hægt sé að leika knattspyrnu.
Ekki króna kom frá KSÍ en einn leikmað-
ur liðsins lét húðflúra mörk á sig í sjón-
varpsþætti í skiptum fyrir alvöru mörk. Það
var þessum einstaklingi að þakka, en ekki
KSÍ, að knattspyrna var enn leikinn í því
ágæta bæjarfélagi.
Fjármál sambandsins hafa oftar en ekki
verið á milli tannanna á fólki og það vekur
óneitanlega upp spurningar þegar í ljós
kemur að það séu nánustu samstarfsmenn
formannsins sem ákveði laun hans og að
einungis mjög þröngur hópur – sjö manns
– viti nákvæmlega hvernig fjármál-
um KSÍ sé háttað.
Það vekur einnig athygli að for-
maðurinn sitji fundina þegar launin
eru ákveðin – hann bregður sér frá
rétt á meðan launatalan er ákveðin –
og ekki er síður áhugavert að launin
séu horfin af áætlunum og árs-
reikningi. Eru þetta eðlileg-
ir stjórnarhættir? Hvað
eru sömu einstaklingar að
skaffa sér í dagpeninga og
risnu þegar þeir ferðast á
vegum sambandsins?
Það veit aðeins þessi
þröngi hópur og hreyfing-
in verður áfram í myrkri
með fjármálin verði engar
breytingar á stjórn sam-
bandsins því aðgengi að
slíkum upplýsingum, og
eflaust fleiri áhugaverðum,
er takmarkað við þennan litla
hóp.
Til að toppa allt saman er
formaðurinn hættur að
sækja fundi stjórnar KSÍ en
á síðasta fundi tók hann þátt
í gegnum síma og nú eru
stjórnarmenn KSÍ sendir út
til London svo hægt sé að taka einn fund.
Einkennilegt að formaðurinn geti ekki
komið til Íslands í einn dag til að sinna
starfinu sínu sem hann fær víst greitt
fyrir.
Þetta nýjasta útspil er í takti við
framkomu formannsins, og
reyndar framkvæmdastjór-
ans líka, undanfarnar vikur.
Þar er farið undan í flæm-
ingi í erfiðum málum og fyr-
irspurnum blaðamanna sem
„dirfast“ að spyrja erfiðra
spurninga er svarað með
dónaskap og hroka sem ein-
kennir menn sem hafa setið
of lengi við völd.
Hvernig væri að þessir
ágætu herrar gerðu einu sinni
hreint fyrir sínum dyrum í
stað þess að flýja án útskýringa
og hreyta ónotum í þá sem
spyrja? Eins og staðan er í dag
þá er afar lítil reisn yfir útgöngu
Eggerts Magnússonar sem
virðist flúinn af landi brott og
frá eldunum sem loga glatt í
kringum KSÍ þessa dagana.
Formaður á flótta
David Beckham gaf það
út í gær að hann myndi hætta að
leika með Real Madrid næsta
sumar og mun hann í kjölfarið
halda til Bandaríkjanna þar sem
hann hefur gert fimm ára samn-
ing við LA Galaxy. Beckham græð-
ir vel á vistaskiptunum en samn-
ingur hans við Galaxy er metinn á
128 milljónir dollara sem gerir
rúma 9 milljarða íslenskra króna.
„Real Madrid bað mig um að
taka ákvörðun um framtíð mína í
þessari viku. Hvort ég ætlaði að
vera áfram hjá þeim næstu tvö
árin eða fara annað. Eftir að hafa
rætt möguleikana í stöðunni við
fjölskyldu mína og ráðgjafa hef ég
ákveðið að taka tilboði LA Galaxy
og mun ég byrja að spila með þeim
í ágúst,“ segir í yfirlýsingu sem
Beckham gaf frá sér í gær.
„Ég vil þakka stuðningsmönn-
unum og fólkinu í Madrid sem
hefur látið mér og fjölskyldu
minni líða vel hér og það er ekki
síst út af þessu fólki að ákvörðun-
in var mjög erfið. Ég hef notið
tímans á Spáni svo um munar og
ég er þakklátur félaginu fyrir að
gefa mér tækifæri til að spila með
þessu frábæra félagi og fyrir
þessa stórkostlegu stuðnings-
menn. Ég er stoltur af því að hafa
leikið með tveim stærstu félögum
heims og ég bíð spenntur eftir
áskoruninni sem felst í því að gera
stærstu íþrótt heims enn stærri í
landi þar sem fólk hefur einlægan
áhuga á íþróttum. Ég mun gefa
allt sem ég á fyrir Real Madrid út
þetta tímabil og ég trúi því að
Fabio Capello geri liðið sigursælt
eins og það á skilið,“ segir enn
fremur í yfirlýsingu Beckhams.
Dan Courtemanche, talsmaður
bandarísku atvinnumannadeildar-
innar, MLS, staðfesti að fulltrúar
Beckhams væru búnir að ræða við
Galaxy í þó nokkurn tíma.
„AEG og fólk frá LA Galaxy
hefur verið að ræða við fulltrúa
Beckhams. Beckham er í sam-
starfi við AEG, sem á LA Galaxy,
með knattspyrnuskólann sinn.
Viðræður hófust í þessum mánuði
eins og löglegt er samkvæmt regl-
um FIFA,“ sagði Courtemanche.
AEG er eitt áhrifamesta fyrir-
tækið í bandaríska boltanum en
fyrirtækið á LA Galaxy, Chicago
Fire sem og Houston Dynamo.
Fyrirtækið átti einnig DC United
en seldi það fyrr í vikunni.
Beckham til Bandaríkjanna
Það gengur ekkert hjá
Englandsmeisturum Chelsea og
til að bæta gráu ofan á svart þá
fær knattspyrnustjórinn José
Mourinho enga peninga til þess
að styrkja liðið. Það var Mourin-
ho sjálfur sem kom fram og sagði
að hann hefði ekki fengið leyfi til
þess að kaupa nýja leikmenn til
Chelsea í janúar.
„Ég vil ekki gefa upp ástæð-
urnar af hverju ég fæ ekki fjár-
magn til þess að kaupa nýja leik-
menn því það er innanbúðamál.
Það er enginn að koma til Chel-
sea og ef það kemur enginn þá
fer heldur enginn leikmaður frá
Chelsea. Ég get ekki misst neinn
leikmann því við glímum við
manneklu vegna meiðsla. Það er
ekki mín ákvörðun að kaupa ekki
nýja menn því þetta er ekki mitt
félag – ég er bara knattspyrnu-
stjórinn,“ sagði Mourinho eftir 1-
1 jafntefli við 2. deildarlið Wyc-
ombe í enska deildarbikarnum.
Þessar fréttir þykja benda til
þess að framtíð Portúgalans á
Stamford Bridge gæti verið farin
að styttast í annan endann. „Staða
mín er ekki mikilvæg. Það sem
er mikilvægt er Chelsea og liðið
er í góðri stöðu. Við erum næst-
um því komnir í úrslit deildar-
bikarsins, erum í 16 liða úrslitum
Meistaradeildarinnar, komnir
inn í 4. umferð bikarsins og erum
í 2. sæti í deildinni. Ég er ekki
mikilvægur, það er liðið mitt sem
skiptir öllu máli og þannig hefur
verið það verið allan minn feril,“
sagði Mourinho enn fremur.
Slæm en dýr kaup Chelsea á
mönnum eins og Andriy
Shevchenko og Michael Ballack
í sumar hjálpa Mourinho ekkert
í baráttunni fyrir fé í leikmanna-
kaup. Framtíð José Mourinho
hefur einnig verið milli tann-
anna á fólki, ekki síst þegar
heyrðist af ósætti hans og
Roman Abramovich, eiganda
Chelsea.
Það hefur verið sagt og
skrifað að takist Portúgalanum
ekki að vinna Meistaradeildina í
vor þá muni Roman skipta um
mann í brúnni og nafn Guus
Hiddink hefur verið nefnt í því
samhengi. Chelsea hefur nú gert
fjögur jafntefli í röð og hefur
ekki unnið leik síðan á Þorláks-
messu.
José fær ekki að kaupa nýja menn
Dikembe Mutombo
verður 41 árs í sumar og hefur
heldur betur gengið í endurnýjun
lífdaga í NBA-deildinni í vetur.
Þetta er fimmtánda tímabil þessa
218 cm og 118 kg miðherja frá
Saír og eftir að hafa látið lítið
fara fyrir sér undanfarin ár hefur
hann stokkið inn í sviðsljósið á
síðustu vikum.
Mutombo hefur verið vara-
maður Kínverjans Yao Ming hjá
Houston Rockets undanfarin þrjú
tímabil en þegar Yao Ming
meiddist í síðasta mánuði þurftu
Houston-menn að treysta á gamla
karlinn og hann hefur ekki
brugðist.
Mutombo var aðeins ryðgaður
í byrjun en í síðustu átta leikjum
hefur hann tekið 14,3 fráköst,
skorað 5,0 stig og varið 2,0 skot
að meðaltali. Í þeim síðasta, 102-
77, sigri á Lakers var þessi
fyrrum besti varnarmaður
deildarinnar með 5 varin skot og
19 fráköst.
Mutombo komst um leið upp í
2. sætið yfir flest varin skot í
deildinni frá upphafi. Hann fór
upp fyrir Kareem Abdul-Jabbar
en vantar 639 varin skot til þess
að ná Hakeem Olajuwon. Best af
öllu fyrir Mutombo er að Hous-
ton-liðið hefur unnið sjö af
þessum átta leikjum og það lítur
út fyrir að þeir sakni Kínverjans
frábæra ekkert allt of mikið.
Í fullu fjöri 41
árs gamall
Ágúst S. Björgvinsson
og Jón Halldór Eðvaldsson voru
trúir sínum stelpum þegar þeir
kusu í lið fyrir Stjörnuleik
kvenna. Ágúst valdi fimm
Haukastelpur í sitt lið og Jón
Halldór valdi fimm Keflavíkur-
stelpur í sitt lið.
Leikurinn hefst klukkan 14 í
DHL-höllinni á laugardaginn.
Trúir sínum
liðum