Fréttablaðið - 12.01.2007, Side 34
Þ etta eru gróusögur. Ég talaði við Magna og okkur er skítsama um þessar
sögur. Fólk getur talað eins og
það vill en ég er ekki ástæðan
fyrir skilnaði þeirra,“ sagði söng-
konan Dilana í einkaviðtali við
Sirkus en þrálátur orðrómur
þess efnis að hún sé ástæðan
fyrir skilnaði Magna Ásgeirsson-
ar og Eyrúnar Huldar Haraldsdóttur hefur
gengið um allt Ísland allt frá því að Magni og
Eyrún birtu fréttatilkynningu í DV fyrir viku
þar sem þau tilkynntu að þau hefðu slitið
samvistir.
Dilönu og Magna varð afar vel til vina á
meðan á upptökum stóð á sjónvarpsþættinum
Rockstar Supernova síðastliðið sumar og hún
hefur meðal annars komið til Íslands
nokkrum sinnum síðan. „Auðvitað
elskum við hvort annað sem nánir og
góðir vinir. En við erum bara vin-
ir,““sagði Dilana og bætti við að
þátturinn hefði breytt lífi allra
þátttakendanna. „Magni breyttist og
þroskaðist frá sambandinu. Þessi
heimski þáttur breytti okkur
öllum, gerði okkur að öðrum
einstaklingum með aðrar
væntingar um okkur sjálf og
lífið.“
Aðspurð hvort hún sæi fyrir
sér að hún og Magni myndu
byrja saman nú þegar hann er laus og liðugur
svaraði Dilana því neitandi. „Alveg örugglega
ekki. Við erum bara vinir sem viljum fá að spila
okkar tónlist. Ég veit að Eyrúnu finnst að þetta
sé mér að kenna en ég neita að samþykkja það.
Hún er stórkostleg kona og er Marínó frábær
móðir en aðeins ég og Magni munum vita hinn
raunverulega sannleika,“ sagði Dilana. Hún
vildi ekki skýra nánar þessa síðustu setningu
þegar sérstaklega var gengið á eftir því.
Magni mun væntanlega halda til móts
við Dilönu og aðra Rockstar-söngvara í
næstu viku þar sem hann mun fara í
tveggja mánaða tónleikaferðalag um
gjörvöll Bandaríkin. „Ég hlakka til að
sjá hann og vona að hann komi í
næstu viku. Það er verið að vinna í
vegabréfáritun fyrir hann og ég á
von á því að það klárist um
helgina. Það verður gaman að
hittast aftur og spila tónlist,“ sagði
Dilana.
- óþh
Apótekið til sölu
Einn vinsælasti
veitingastaður
miðbæjarins Apótekið er
til sölu. Sirkus hefur heimildir fyrir því að
eigendurnir og hjónin, Guffi og Gulla,
séu nálægt því að komast að samkomu-
lagi við þekktan veitingamann um kaup á
staðnum. Ekki er vitað hvert kaupverðið
er en miðað við staðsetningu og vinsæld-
ir ætti að vera um töluverðar fjárhæðir
að ræða.
Bachelorinn kominn
með kærustu
Einn þekktasti
piparsveinn
landsins,
Steingrímur
Randver
Eyjólfsson, er
kominn með
nýja kærustu
upp á arminn. Sú heppna heitir Hrönn
Helgadóttir og er hárgreiðslustúlka.
Nýja parið býr á Akureyri en Steini vildi
ekkert segja um sambandið. „Ég er
kominn með nóg af fjölmiðlaumfjöllun og
vil bara fá að vera í friði hér í sveitinni.
Þetta var skemmtileg reynsla en nú er
komið nóg,“ sagði Steini við Sirkus.
Auðunn á fullu í ræktinni
Sjónvarpsmaðurinn Auðunn Blöndal
æfir nú af miklum móð í ræktinni til að
vera í sem bestu formi fyrir hlutverk sitt
sem kynnir á Hlustendaverðlaunum FM
sem fara fram 23. janúar í Borgarleikhús-
inu. Mörgum þótti Auðunn hafa bætt
töluvert á sig á síðasta ári en hann tekur
vel á lóðunum og hrynja kílóin hreinlega
af honum. Sem veitir ekki af þar sem
innkoma hans á hátíðina verður með
óvenjulegum hætti sem ekki verður farið
nánar út í hér.
Útgáfufélag 365 prentmiðlar Útgefandi Helgi Hermannsson, ábm. Ritstjórn Óskar Hrafn Þorvaldsson oskar@frettabladid.is,
Indíana Ása Hreinsdóttir, indiana@frettabladid.is Útlitshönnun Kristín Agnarsdóttir kristina@frettabladid.is, Yfirmaður
sirkusmiðla Árni Þór Vigfússon arni@minnsirkus.is Sirkusblaðið Skaftahlíð 24 105 Rvk, sími 550 5000
Sölustjóri Gréta Karen Grétarsdóttir 550 5864 gretakaren@frett.is
Heyrst hefur
fréttir
sirkus
ROCKSTAR-SÖNGKONAN DILANA UM SKILNAÐ MAGNA OG EYRÚNAR
„Ég er ekki ástæðan
fyrir skilnaðinum“
B ubbi Morthens er á leið inn í hljóðver til að hefja upptökur á nýjustu plötu sinni sem kemur út síðar á
þessu ári. Hann sagði í samtali við Sirkus að hann væri
kominn í startholurnar og gæti ekki beðið
eftir því að byrja. Með honum á plötunni
verða Mínus-mennirnir Frosti og Bjössi og
sagði Bubbi að það lægi augum uppi
hvers konar tónlist yrði á plötunni. „Þetta
verður rokk,“ sagði Bubbi en hann veit ekki
enn upp hár hvenær platan kemur fyrir
augu almennings.
Bubbi gaf ekki út neina plötu með
frumsömdu efni á
síðasta ári enda árið
undirlagt af uppákom-
um í tilefni fimmtíu ára
afmælis hans. Upptaka
af afmælistónleikum
hans 06.06.06 og DVD-
diskur með sama efni seldist þó ljómandi vel og seldust alls
á bilinu 16 til 17 þúsund eintök af þessum
tveimur útgáfum.
Bubbi hefur löngum verið þekktur
fyrir að fara sínar eigin leiðir
þegar að því kemur að velja
fólk til samstarfs við
plötugerð. Tvær síðustu
plötur sem hann gaf út
með frumsömdu efni árið
2005 vann hann í
samstarfi við
Barða
Jóhannesson.
Þær voru
lágstemmdar
en nú verður
talið í og
rokkað.
Bubbi í hljóðver með Mínusliðum
Bubbi Morthens
Ætlar að rokka á
næstu plötu sinni
sem lítur dagsins
ljós á þessu ári.
Frosti og Bjössi Mínus-rokkararnir
verða Bubba til halds og trausts á
nýju plötunni.
SAMSTÍGA Á SVIÐINU Magni og
Dilana tróðu upp í starfsmannap-
artíi Icelandair í lok október.
EYRÚN HULD HARALDSDÓTTIR
Dilana hrósar Eyrúnu Huld í
hástert en segir Magna hafa
þroskast burtu frá sambandinu á
meðan hann dvaldi í Bandaríkj-
unum.
BLS. 2 | sirkus | 12. JANÚAR 2007
Öflugt fjarnám í boði.
Hagstætt verð.
Skoðið heimasíðuna:
www.fg.is
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ
við Skólabraut, 210 Garðabæ • Sími 520-1600 • Fax 565-1957
vefslóð: http:www.fg.is • netfang: fg@fg.is