Fréttablaðið - 12.01.2007, Síða 31
Blár er litur mánaðarins.
Ef marka má þær myndir sem
okkur berast af fræga fólkinu þá
virðast bláir kjólar vera í tísku um
þessar mundir. Kvikmyndaleik-
konur stilla sér upp, hver á fætur
annarri, fyrir framan myndavél-
arnar í bláum kjólum, allt frá ljós-
bláum upp í dimmbláan lit rökk-
ursins. Blár litur fer
flestum vel og segja sér-
fræðingarnir að blár sé
góður litur til að vera í á
mynd, því hann lætur
alla líta vel út.
Gleraugu taka breytingum í
takt við tískuna eins og flest
annað. Fréttablaðið leit inn
í tvær gleraugnaverslanir í
miðborginni og sannfærðist um
það.
Litir virðast áberandi í gleraugna-
umgjörðum núna. Að sögn kaup-
mannanna Sigrúnar Bergsteins-
dóttur í Linsunni við Aðalstræti og
Gylfa Björnssonar í Sjáðu á
Laugavegi 32 er almenningur
ánægður með það. „Fólk er alveg
tilbúið að taka á móti þessum nýj-
ungum eftir allt þetta svarta, hvíta
og glæra þótt það sé alltaf sígilt.
Meira að segja strákarnir fá sér
óhikað litaðar umgjarðir,“ segir
Sigrún. Gylfi er sama sinnis og
segir alla flóruna vera í tísku.
„Sum gleraugun eru ýkt og önnur
látlausari en það er tvímælalaust
gott fyrir okkur Íslendinga sem
höfum þetta ljósa litaraft og langa
skammdegi að við skulum hafa
aðgang að frískandi umgjörðum
ef við þurfum á gleraugum að
halda.“
Þegar Sigrún er innt eftir vin-
sælustu merkjunum nefnir hún
Alain Mikli sem hún segir leggja
nokkuð línurnar í gleraugnatísk-
unni. „Alain er franskur og er einn
okkar fremsti hönnuður,“ segir
hún. „En svo erum við með mörg
önnur þekkt merki eins og Cartier
og Lacoste og einnig Diesel fyrir
krakkana.“
Gylfi er sjóntækjafræðingur og
selur meðal annars gleraugu frá
Mykita, sem er þýskt, með eftir-
gefanlegar umgjarðir, smelltar
saman. Hann nefnir líka Theo sem
er belgískt merki sem hann segir
hafa mokað til sín hönnunarverð-
launum. „Theo keyrir á óvenjuleg-
um formum og er djarfur í litum.
Oft eru gleraugun þaðan ekki eins
hægra megin og vinstra megin og
það getur verið svolítið skemmti-
legt. Þetta er stærsta sölumerkið
hjá mér í dag,“ segir Gylfi og
tekur fram að allar gerðir fáist í
mismunandi litum.
Fjölbreyttir litir og form
Á bláum kjól
SJÁLFSSTYRKING FRAMKOMA OG LÍKAMSBURÐUR INNSÝN Í FYRIRSÆTUSTÖRF FÖRÐUN UMHIRÐA HÚÐAR
OG HÁRS UNDIRBÚNINGUR FYRIR MYNDATÖKU MYNDATAKA (12 SV/HV MYNDIR) TÍSKUSÝNINGARGANGA
FÍKNIEFNAFRÆÐSLA LEIKRÆN TJÁNING NÆRINGARRÁÐGJÖF
Umsjónarkennarar:
Kristín Ásta Kristinsdóttir
Gestakennarar:
Kolbrún Pálína Helgadóttir, Lilja Nótt Þórarinsdóttir ofl.
Allir þáttakendur fá Eskimo boli, viðurkenningaskjal og 10 sv/hv myndir.
Námskeiðinu líkur með stórri tískusýningu.
Verð 17.900 kr.
Skráning er hafin í síma 533-4646 og á www.eskimo.is.
FRAMKOMU&
FYRIRSÆTUNÁMSKEIÐ
SJÖ VIKNA NÁMSKEIÐ HEFJAST 23. OG 25. JANÚAR.