Fréttablaðið - 12.01.2007, Qupperneq 49
Forsteiktir kalkúnaborgarar
frá Ísfugli eru nú á tilboði hjá
Nettó og Kaskó.
Ísfugl setti nýja vörulínu á mark-
að á síðasta ári undir heitinu
Kalkúnakrásir. Þar undir flokkast
kalkúnabollur, kalkúnaborgarar
og kalkúnanuggets. Allar vörurn-
ar eru fulleldaðar og því fljótlegt
að útbúa úr þeim máltíð á skömm-
um tíma. Aðeins þarf að hita þessa
rétti í ofni, örbylgju eða á pönnu í
örfáar mínútur.
Tilbúið á
pönnuna
Nú er 20 til 70 prósenta afslátt-
ur af parketi í Harðviðarvali.
Um þessar mundir er útsala af
öllum gerðum parkets í verslun-
inni Harðviðarvali, Krókhálsi 4 í
Reykjavík. Þeir sem eru í parket-
hugleiðingum ættu að kynna sér
úrvalið, en í versluninni er viðar-,
plast- eða harðparket meðal þess
sem er á boðstólum. Nánari upp-
lýsingar má fá inni á heimasíðu
Harðviðarvals, www.parket.is,
eða með því að hafa samband í
síma 567 1010. Verslunin sjálf er
opin frá kl. 9 til 18 alla virka
daga og milli 10 og 16 á laugar-
dögum.
Útsala á
parketi
Allt að helmings afsláttur er nú
á úlpum, kápum og jökkum í
Topphúsinu í Mörkinni 6.
Útsalan er hafin í Topphúsinu í
Mörkinni. Þar eru jakkar, stuttar
og síðar kápur á lækkuðu verði
að ógleymdum úlpunum sem telj-
ast til nauðsynlegs fatnaðar á
Íslandi allt árið. Sumar kápurnar
eru líka vattfóðraðar og henta
því vel á köldum dögum. Afslátt-
urinn nemur allt að fimm-
tíu prósentum á yfirhöfn-
unum en svo fást þar
einnig fylgihlutir eins og
húfur, hattar, slæður og
hanskar á tuttugu prósenta
afslætti.
Útsalan í Topphúsinu mun
standa að minnsta kosti út þenn-
an mánuð.
Yfirhafnir af ýmsum
gerðum á afslætti
Útsala í
Hafnarfirði
Herra Hafnarfjörður er byrjað-
ur með nýársútsölu sína.
Slagorð útsölunnar er: „Útsalan
sem allir tala um.“ Hvort sem það
er satt eða ekki þá er hægt að fá
jakkaföt frá 9.900 krónum, úlpur
frá 4.900 krónum og SeltSem leður-
líkisjakka frá 3.900 krónum.
Gallabuxur eru einnig á tilboði
frá 3.900 krónum og boli er hægt að
fá frá 990 krónum. Herra Hafnar-
fjörður er í Firðinum í Hafnarfirði
en allar nánari upplýsingar um
búðina og útsöluna er að fá í síma
565 0073.