Fréttablaðið - 14.01.2007, Page 2

Fréttablaðið - 14.01.2007, Page 2
 Sænska veðmálafyrirtæk- ið Betsson, sem að sögn Júlíusar Þórs Júlíussonar er vinsælasta erlenda fjárhættuspilasíðan hjá þeim Íslendingum sem leita sér aðstoðar vegna spilafíknar á net- inu, græddi rúmar 200 milljónir króna á fyrstu níu mánuðum árs- ins 2006. Straumur-Burðarás á 28,1 prósents hlut í Betsson og Skúli Valberg Ólafsson situr í stjórn þess fyrir hönd Straums. Betsson er eina erlenda fjár- hættuspilasíðan sem er með íslenskt notendaviðmót á heima- síðunni sinni. Auglýsingar frá fyrirtækinu hafa birst í íslensk- um fjölmiðlum frá því á fyrri hluta síðasta árs. En í íslenskum lögum um happdrætti kemur fram að það varði sektum eða fangelsisvist að auglýsa happ- drætti sem ekki hefur verið veitt leyfi fyrir hér á Íslandi. Þrátt fyrir þetta auglýsir Betsson enn þá í fjölmiðlum. Lögreglan hefur verið með fyrirtækið og auglýs- ingar þess til rannsóknar frá því á fyrri hluta síðasta árs. Ekki náð- ist í Hörð Jóhannesson, aðstoðar- lögreglustjóra lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, í gær til að spyrja hann um framgang rann- sóknarinnar. Pontus Lindwall, stjórnarfor- maður Betsson, vill ekki gefa upp- lýsingar um hversu margir hafa spilað fjárhættuspil á heimasíðu fyrirtækisins, né hversu miklum fjármunum þeir hafa eytt, því það stríði gegn reglum fyrirtækisins. Stjórnarformaðurinn segir að ef sett verða lög hér á landi sem banni Íslendingum að spila fjár- hættuspil með kredikortum sínum á erlendum heimasíðum, eins og Júlíus Þór hyggst leggja til við Björn Bjarnason, dóms- og kirkju- málaráðherra, líti hann á það sem ofbeldi af hendi ríkisvaldsins. „Fólk á að fá að velja sjálft hvað það gerir við peningana sína.“ Að sögn Pontusar knúði sænska ríkið Betsson til að flytja höfuð- stöðvar sínar til Möltu og hefur það happdrættisleyfi þar. Pontus segir að rök sænska ríkisins hafi verið þau að fjárhættuspil geti haft slæmar félagslegar afleiðing- ar í för með sér fyrir fólk. Pontus segir að Betsson myndi gjarnan vilja vera með útibú á Íslandi ef íslensk stjórnvöld vilja veita þeim happdrættisleyfi. „Við viljum fá happdrættisleyfi og greiða skatta í þeim löndum þar sem við seljum þjónustu okkar, en sænska ríkið hefur ekki viljað veita okkur slíkt leyfi,“ segir Pontus og bætir því við að Betsson muni að öllu óbreyttu halda áfram að selja þjónustu sína á Íslandi. P IP A R • S ÍA • 6 0 8 90 Lyklakippur sem rata Í hverjum dælulykli er örgjörvi sem Atlantsolía getur lesið og þar með fundið út hver eigandi lyklanna er. Reglulega komast týndar lyklakippur til skila af þessari ástæðu. Enn ein góð ástæða þess að fá sér dælulykil frá Atlantsolíu! Sími: 591-3100 og www.atlantsolia.is Hagnaður Betsson var 200 milljónir Straumur-Burðarás er stærsti hluthafinn í Betsson. Stjórnarformaðurinn vill ekki gefa það upp hversu margir Íslendingar hafa spilað hjá Betsson. Ólöglegt er að birta auglýsingar veðmálafyrirtækja sem hafa ekki happdrættisleyfi. Fólk á að fá að velja sjálft hvað það gerir við peningana sína. Þrír menn á þrítugsaldri voru færðir í fangageymslur lögreglunnar á Selfossi eftir að ökumaður bíls sem þeir voru í ók utan í vegrið í Svínahrauni um sjöleytið í gærmorgun. Ljóst þykir að mennirnir hafi verið undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Þeir voru yfirheyrðir í gærdag og tekin úr þeim blóð- og þvag- sýni. Varðstjóri lögreglu segir mennina vera svokallaða góð- kunningja lögreglunnar. Ekki er búist við að viðgerðin á vegriðinu taki langan tíma. Bíll mannanna er óökufær eftir óhappið. Óku á vegrið undir áhrifum Hálfþrítugur vélsleðamaður var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar til Reykjavíkur í gær eftir slys nærri Vík í Mýrdal. Maðurinn var á ferð ásamt þremur félögum sínum og var á leið yfir Kerlingardalsá um hádegisbil í gær þegar sleðinn rakst harkalega í bakka árinnar og honum hvolfdi ofan á manninn með þeim afleiðingum að hann meiddist nokkuð. Maðurinn er talinn hafa hlotið einhver beinbrot en ekki fengust nánari upplýsingar um líðan hans. Beinbrotnaði í vélsleðaslysi Siggi, fáið þið borgað Í blíðu og stríðu? Öldungadeildarþing- maðurinn og fyrrverandi forsetafrúin Hillary Rodham Clinton kom til Íraks í gær til að funda með bandarískum og íröskum ráðamönnum. Banda- ríkjaþing, undir stjórn demó- krata, hefur mótmælt harðlega ákvörðun Bush forseta um að senda 21.500 hermenn til viðbótar til Íraks. Clinton hitti forsætis- ráðherra landsins, Nouri al- Maliki, í gær. Hún hafði ekki komið til Íraks í rúmt ár. Clinton fór í förina ásamt öldungadeildarþingmönnunum Evan Bayh, demókrata frá Indiana-ríki og John McHugh, repúblikana frá New York. Hillary Clinton fundaði í Írak Valgerður Sverrisdótt- ir utanríkisráðherra hlaut 301 atkvæði í fyrsta sæti í kosningu á lista framsóknarmanna í Norð- austurkjördæmi. Kosið var á auka- kjördæmisþingi í Mývatnssveit í gær. Birkir Jón Jónsson alþingis- maður hafnaði í öðru sæti og Hös- kuldur Þór Þórhallsson lögmaður í því þriðja. 335 greiddu atkvæði en 419 höfðu seturétt á þinginu. 324 atkvæði voru gild. Í fjórða sæti varð Huld Aðal- bjarnardóttir og Jón Björn Hákon- arson varð fimmti. Framsóknarflokkurinn á fjóra þingmenn í kjördæminu en Jón Kristjánsson og Dagný Jónsdóttir gáfu ekki kost á sér til endur- kjörs. „Þetta er glæsilegur og sigur- stranglegur listi,“ segir Valgerður Sverrisdóttir. Hún bendir á að meðalaldur þeirra sem skipa tíu efstu sætin sé 35,4 ár og kveðst hlakka til að takast á við kosninga- baráttuna með þessu unga fólki. Spurð hvort hún telji flokkinn eiga möguleika á að halda sínum fjórum þingmönnum í kjördæm- inu segir Valgerður allt hægt í pólitík. „Vissulega vorum við heppin síðast en miðað við þenn- an glæsilega lista og þetta kraft- mikla fólk sýnist mér við vera til alls líkleg.“ Þetta er sigurstranglegur listi Kona um fimmtugt bjargaðist úr eldsvoða á Vopna- firði í fyrrinótt. Slökkvilið var kallað út rétt fyrir klukkan fimm og stóð þá efri hæð tveggja hæða einbýlishúss í ljósum logum. Kona sem í húsinu var tilkynnti sjálf um eldinn og var þá innikróuð í húsinu. Þegar slökkvilið bar að garði hafði konan brotið rúðu í glugga og var á leið út um hann. Henni var síðan hjálpað niður. Vel gekk að slökkva eldinn. Konan fékk aðhlynningu á heilsugæslustöð bæjarins en slapp við reykeitrun. Upptök eldsins eru í rannsókn. Innlyksa konu bjargað úr eldi Talið er að um 300 tonn af olíu hafi runnið í sjóinn undan vesturströnd Noregs eftir að kýp- verska flutningaskipið Server strandaði á skerjum undan eyj- unni Fedja í Hörðalandi síðdegis á föstudag. Alls 25 skipverjum var bjargað en skipið liðaðist fljótlega í sundur í öldurótinu við strönd- ina. Afturhluti þess sökk en fram- hlutinn var dreginn að landi í gær. Í skipinu voru á bilinu 600 til 700 tonn en ekki er talið að olía hafi sokkið með aftari helmingi skips- ins. Skipið, sem var um 180 metrar á lengd, er skráð á Kýpur en í eigu grískrar útgerðar. Enginn farmur var um borð og skipið á leið til Múrmansk í Norðvestur-Rúss- landi. Síðan í nótt hefur olían borist með ströndinni. Tor Christian Sletner, yfirmaður norsku strand- gæslunnar, segir veður á strand- stað torvelda hreinsun og umhverf- isverndarsinnar segja að líkast til kosti það tugi milljarða norskra króna að hreinsa upp olíuna sem hafi töluverð áhrif á dýralíf á svæðinu. Verndarsvæði fugla norðvestur af Björgvin er talið í mikilli hættu vegna olíulekans og segja sérfræðingar hjá norsku mengunarvörnunum að það geti tekið allt að hálft ár að hreinsa olí- una upp. Veður á strandstað hefur verið óhagstætt og torveldað hreinsun. Fiskistofa hefur úthlutað aflamarki í loðnu í samræmi við ákvörðun sjávarút- vegsráðuneytisins um að gefa út byrjunarkvóta upp á 180 þúsund tonn. Börkur NK frá Neskaupstað er með mestan byrjunarkvóta, 10.754 tonn. Af byrjunarkvótanum koma alls 143.835 tonn í hlut íslenskra skipa. Alls fá 32 skip úthlutað loðnukvóta en fimm kvótahæstu skipin eru: Börkur NK – 10.754 tonn, Ingunn AK – 8530 tonn, Faxi RE – 8007 tonn, Sigurður VE – 7818 tonn og Antares VE – 7287 tonn. 143.000 lestir í hlut Íslendinga

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.