Fréttablaðið - 14.01.2007, Page 6

Fréttablaðið - 14.01.2007, Page 6
Vélsleðasýning 13. og 14. janúar að Fiskislóð 1. Opið laugardag kl. 10–16 og sunnudag kl. 12–16. Frumsýnum Lynx 2007 www.ellingsen.is Fiskislóð 1 • Sími 580 8500 Borgarbúar kvörtuðu meira vegna geitunga í borginni síðasta sumar samanbor- ið við árið áður. Meindýravarnir borgarinnar sinntu 112 kvörtun- um vegna geitunga og eyddu samtals 140 geitungabúum. Þetta er 69 prósenta fjölgun á geitungabúum sem eytt er í borginni, en árið 2005 voru skráðar 79 kvartanir og 83 bú voru fjarlægð, segir Guðmundur Björnsson, rekstrarstjóri meindýravarna. Þá voru skotnir um átta þúsund mávar á síðasta ári samanborið við um 7.200 árið 2005. 140 búum eytt á síðasta ári „Við erum að draga enn frekar úr áhrifum tekna á bætur. Þessar breytingar verða því mikill hvati fyrir elli- og örorkulífeyrisþega til að fara út á vinnumarkaðinn. Þetta er hvati til vinnu.“ Þetta sagði Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra í Fréttablað- inu 7. desember þegar hún og Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra tilkynntu um sérstakar aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að draga úr áhrifum tekna lífeyrisþega á bætur. En reyndin er önnur. „Þetta hefur engu breytt,“ segir Guðrún Kristinsdóttir, starfsmannastjóri Húsasmiðjunnar, og telur skerð- ingarmörkin alltof lág. 300 þúsund krónur á ári gera 25 þúsund krónur á mánuði. Guðrún telur að frítekjumark upp á 60 þúsund krónur á mánuði gæti skipt máli og verið raunveru- legur hvati til vinnu. Sigurbjörg Rósa Sigþórsdóttir, starfsmannastjóri Bakarameist- arans, kveður sterkar að orði. „Þetta er bara djók. Markið hefði átt að vera milljón á ári. Þá fyrst gæti fólk unnið í um það bil fjóra tíma á dag.“ Sigurbjörg Rósa auglýsti síðast eftir starfsfólki í síðustu viku en fékk engin viðbrögð frá eldra fólki. Hún telur miður að stjórn- völd gangi ekki lengra til að hvetja fólk til atvinnuþátttöku. „Það myndi bæta svo margt. Fólk gæti unnið sig út úr fátæktargildru og lyfjakostnaður ríkisins gæti lækk- að því margir eru þunglyndir því þeir fara ekki út.“ Um leið mætti leysa vanda víða, til dæmis á frí- stundaheimilum og á leikskólum. Margrét Margeirsdóttir, for- maður Félags eldri borgara í Reykjavík, þekkir engan sem farið hefur út á vinnumarkaðinn eftir að nýju lögin tóku gildi. „Þetta er alltof, alltof lágt,“ segir hún. „Þegar búið er að taka af þessu skatta verður ekki mikið eftir.“ Margrét vill að stjórnvöld fari sömu leið og farin er í Noregi en þar mega lífeyrisþegar vinna sér inn ótakmarkaðar tekjur en greiða af þeim skatta eins og aðrir. Líf- eyrisgreiðslurnar skerðist hins vegar ekki. „Þannig ætti það að vera hér og satt best að segja skil ég ekki þessa afstöðu stjórnvalda. Skatttekjur myndu aukast, það gæti dregið úr þörf fyrir heil- brigðisþjónustu og félagsleg ein- angrun minnkað. Eldri borgarar búa yfir mikilli reynslu og þekk- ingu og margir eru í fullu fjöri,“ segir Margrét Margeirsdóttir. Frítekjumark eldri borgara breytir engu Frá og með áramótum geta ellilífeyrisþegar unnið sér inn 300 þúsund krónur á ári án þess að tekjutrygging skerðist. Ætlunin var að hvetja eldri borgara til vinnu. Sérfræðingar á vinnumarkaði segja aðgerðina engu hafa breytt. Líðan mannsins sem slasaðist alvarlega í bílslysi norðan við Munaðarnes í fyrradag er stöðug að sögn læknis á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi. Hann fór í langa aðgerð í fyrrakvöld og er haldið sofandi. Maðurinn var ökumaður jeppa sem skall saman við flutningabíl í fyrradag og var einn í bílnum. Tildrög slyssins liggja ekki fyrir, en færð var slæm og hálka mikil. Ökumaður og farþegi flutninga- bílsins sluppu ómeiddir. Líðanin stöðug Hundrað prósent írskra seðla bera leifar af kókaíni. Þetta er niðurstaðan í rannsókn sem vísindamenn við háskólann í Dublin gerðu, og kemur fram á fréttavef BBC. Vísindamennirnir beittu leitartækni sem nemur jafnvel minnstu leifar af efninu til að rannsaka fjörutíu og fimm seðla úrtak. Sumir seðlarnir höfðu svo miklar leifar af kókaíni á sér að líklegast hafa þeir verið notaðir til þess að sjúga efnið upp í nefið. Niðurstöðurnar eru í samræmi við svipaðar rannsóknir sem gerðar hafa verið á peningaseðl- um í öðrum löndum, meðal annars Bretlandi og Spáni. Kókaínleifar á öllum seðlum Tveir unglingspiltar fundust heilir á húfi í íbúð rúmlega fertugs manns í St. Louis í Banda- ríkjunum í gær. Annars piltanna hafði verið saknað síðan árið 2002 og hins frá því síðasta mánudag. Maðurinn, Michael Devlin, er framkvæmdastjóri pitsustaðar og starfar í hlutastarfi á útfararstofu. Hann hefur verið kærður fyrir að ræna hinum þrettán ára Ben Ownby á mánu- dag og hinum, nú fimmtán ára, Shawn Horn- beck, í október árið 2002. Sex- tíu kílómetrar voru milli stað- anna þaðan sem piltarnir hurfu. „Við færum ykkur annars vegar góðar fréttir og hins vegar ótrúlegar fréttir,“ sagði lögreglustjórinn sem stýrði rann- sókninni á blaðamannafundi í gær. Lögreglan fékk heimild til að leita í öllum húsum í nágrenni staðar þar sem sást hafði til hvíts sendi- ferðabíls, en hann þótti svara til lýsingar á bíl sem sást þar sem Ownby hvarf á mánudag. Báðir piltarnir voru sendir á sjúkrahús til athugunar en reynd- ust við góða heilsu og báru sig vel. Ekki er vitað hvað manninum gekk til en sjónarvottar segja Hornbeck ekki hafa verið hrædd- an við Devlin eða reynt að flýja. Þeir hafi reist tjald saman úti í garði og Devlin hafi leyft Horn- beck að eiga farsíma. Síðan Hornbeck hvarf hafa for- eldrar hans helgað líf sitt málum týndra barna. Nýr æfingasalur var tekinn í notkun í World Class í Laugum í gær. Salurinn er ætlaður börnum á aldrinum átta til fjórtán ára og er búinn tækjum sem hönn- uð eru fyrir börn samkvæmt svo- kölluðu Shokk-kerfi. Flestar lík- amsræktarstöðvar selja ekki fólki undir 16 ára aldri aðgang að stöðv- um sínum. Allt að 25 krakkar geta æft í salnum í einu. Æfingatækin eru litrík og áþekk hefðbundnum æfingatækjum, nema hvað þyngd lóða og álag við notkun er mun minna og miðast við líkamsburði barna á aldrinum átta til sextán ára. Leiðbeinandi er ávallt staddur í salnum og fær ekkert barn að byrja að æfa í salnum nema að undangenginni leiðsögn. „Kerfið hentar flestum börnum, líka þeim sem ekki finna sig innan hefð- bundinna keppnisíþrótta, en það hefur sýnt sig að þau verða oft út undan er kemur að líkamsrækt. Þar að auki getur regluleg líkams- rækt hjálpað öllum börnum að bæta andlega líðan og þeim sem þurfa að léttast,“ segir Björn Leifsson eigandi World Class. Shokk-æfingakerfið er enskt að uppruna og þarlendis bjóða rúm- lega 60 stöðvar upp á þjálfun sam- kvæmt kerfinu. Börnin ekki lengur út undan Ert þú með háskólamenntun? Hefurðu trú á að hand- boltalandsliðið nái góðum árangri á HM í Þýskalandi? Eldflaug var skotið á bandaríska sendiráðið í Aþenu í Grikklandi. Engan sakaði og voru skemmdir litlar. Eldflauginni var skotið af þriðju hæð úr nærliggjandi húsi. Lögreglan rannsakar hvort sömu aðilar standi að baki árásinni og sex árásum á síðustu þremur árum. Vitni sáu þrjá menn og eina konu flýja af vettvangi og hefur lögregla rannsakað fingraför og sígarettustubba sem fundust þar sem eldflauginni var skotið. Yfirvöld telja árásina tengda mótmælum vegna Guantánamo- fangelsisins. Eldflaug skotið á sendiráð

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.