Fréttablaðið - 14.01.2007, Page 31

Fréttablaðið - 14.01.2007, Page 31
Rafmagnstæknifræðingur / Iðnfræðingur Olíudreifing ehf. óskar eftir að ráða rafmagns- tæknifræðing eða iðnfræðing í tækni og þjónustudeild félagsins í Reykjavík. Starfið felst í hönnun raflagna, rafbúnaðar og stýringa, gerð verklýsinga kostnaðaráætlana og útboðsgagna ásamt umsjón og eftirliti með verkum. Einnig tæknileg aðstoð við starfsmenn þjónustudeildar varðandi uppsetningar og viðhald búnaðar. Leitað er að þjónustu-og samstarfsliprum einstaklingi með reynslu á ofangreindu sviði og getur starfað sjálfstætt. Um er að ræða framtíðarstarf sem stendur báðum kynjum jafnt til boða. Allar nánari upplýsingar veitir forstöðumaður: Árni Ingimundarson. Sími 550-9940 arni@odr.is Oliudreifing ehf www.odr.is Laus störf hjá Olíudreifingu ehf. Olíudreifing ehf. sér um dreifingu á fljótandi eldsneyti fyrir Olíufélagið ehf. og Olíuverzlun Íslands hf. Félagið hefur starfað frá 1. janúar 1996. Sjá nánari upplýsingar um fyrirtækið á www.oliudreifing.is www.toyota.is Toyota á Íslandi Nýbýlavegi 8 200 Kópavogur Sími: 570-5070 Komdu og keyrðu með okkur Toyota á Íslandi er innflytjandi Toyota bifreiða, vara- og aukahluta. Starfsmenn fyrirtækisins byggja gildi sín og viðmið í starfi á The Toyota Way: Stjórnunar-, þjónustu- og mannauðsstefnu Toyota. Gagnkvæm virðing og náin samvinna eru hornsteinar í daglegri starfsemi Toyota á Íslandi. Hverri áskorun er tekið fagnandi hendi og leita starfsmenn stöðugt leiða til að tryggja áframhaldandi framfarir í öllu því sem við kemur starfsemi fyrirtækisins og þjónustu gagnvart viðskiptavinum þess. Vegna aukinna umsvifa óskar Toyota á Íslandi að ráða starfsmann í Þjónustuver. Starfssvið Upplýsingagjöf í síma fyrir allar deildir Innbókanir á verkstæði Tækniupplýsingar til viðskiptavina Önnur tilkallandi verkefni Hæfniskröfur Góð þekking á bílum er nauðsynleg Viðgerðarþekking kostur Góð grunnfærni á tölvur Toyota á Íslandi leitar eftir einstaklingum sem eru metnaðargjarnir, samviskusamir og jákvæðir, liprir í mannlegum samskiptum og með ríka þjónustulund. Leitað er að drífandi starfskrafti með þægilegt viðmót og ríka þjónustulund, sem er fljótur að tileinka sér ný vinnubrögð. Vinnutími er frá kl. 8-17 og kl. 9-18 aðra hvora viku. Í boði er spennandi framtíðarstarf hjá framsæknu fyrirtæki sem hefur á að skipa metnaðarfullu og samhentu starfsfólki. Umsóknarfrestur rennur út mánudaginn 22. janúar nk. Áhugasamir sendi umsóknir ásamt ferilskrá á netfangið atvinna@toyota.is. Nánari upplýsingar veitir Fanný Bjarnadóttir í síma 570-5070. ÍS L E N S K A S IA IS T O Y 35 70 2 01 /0 7

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.