Fréttablaðið - 14.01.2007, Side 73

Fréttablaðið - 14.01.2007, Side 73
SAMFÉLAGSVERÐLAUN HEFUR ÞÚ ORÐIÐ VITNI AÐ GÓÐVERKI? Óskað er eftir tilnefningum til Samfélagsverðlauna Fréttablaðsins sem veitt verða í annað sinn 22. febrúar nk. Til greina koma allir sem hafa lagt sitt af mörkum til að gera íslenskt samfélag betra fyrir okkur öll. Skorað er á lesendur Fréttablaðsins að senda inn tilnefningar um fólk sem á skilið að fá hraustlegt klapp á bakið og er þess verðugt að fá slík verðlaun. Allir koma til greina, allt frá óþekktum einstaklingum til félagasamtaka eða þjóðþekktra karla og kvenna sem hafa með gjörðum sínum og framgöngu verið öðrum til fyrirmyndar. Samfélagsverðlaunin verða veitt í sex flokkum: 1. Hvunndagshetjan Einstaklingur sem sýnt hefur einstaka óeigingirni eða hugrekki, hvort sem er í tengslum við einn atburð eða með vinnu að ákveðnum málaflokki í lengri tíma. 2. Uppfræðari ársins Hér koma til greina kennarar, leiðbeinendur, þjálfarar og aðrir uppfræðarar sem hafa skarað framúr og látið gott af sér leiða. 3. Framlag til æskulýðsmála Félagasamtök sem hafa sinnt börnum af sérstökum metnaði og alúð. 4. Til atlögu gegn fordómum Einstaklingur eða félagasamtök sem hafa unnið ötullega að því að eyða fordómum í samfélaginu. 5. Heiðursverðlaun Einstaklingur sem hefur helgað líf sitt baráttu fyrir betra samfélagi. 6. Samfélagsverðlaunin Félagasamtök sem hafa unnið framúrskarandi mannúðar- eða náttúruverndarstarf og lagt sitt af mörkum til að gera íslenskt samfélag betra fyrir okkur öll. Sendið tilnefningar með því að fara inn á visir.is, með tölvupósti á netfangið samfelagsverdlaun@frettabladid.is eða bréfleiðis merkt Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins, Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík. Frestur til að skila inn tilnefningum rennur út 23. janúar. Dómnefnd mun taka allar innsendar tilllögur til skoðunar. Verðlaunahafar verða kynntir og verðlaun afhent við hátíðlega athöfn 22. febrúar.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.