Fréttablaðið - 14.01.2007, Síða 86

Fréttablaðið - 14.01.2007, Síða 86
Lætur ekkert sitja á hakanum Í fimbulkuldanum þessa dagana skarta margir skjólgóðum höfuð- fatnaði en það færist í vöxt að Íslendingar beri ekki aðeins kauðslegar lopakollur eða merkja- skreyttan íþróttavarning sér til hlífðar. Hattar virðast í miklum móð og má sjá fólk á öllum aldri og báðum kynjum bera þá við öll möguleg tækifæri. Kristín Matthíasdóttir hefur starfað í Hattabúð Reykjavíkur á Laugavegi um árabil og selt ófáa hatta en hún merkir meiri áhuga og þor á því sviði hjá Íslendingum, sér í lagi af yngri kynslóðinni, sem gjarnan vill skreyta sig með hött- um. „Þetta er orðin tíska hjá báðum kynjum en sérstaklega hjá körlum – þeir eru alveg ótrúlega mikið inni í höttum,“ segir Kristín og áréttar að í seinni tíð hafi úrval- ið aukist mikið. „Á sínum tíma var ósköp lítið til af karlhöttum, þá gekk einn og einn með hatt sem fólk hafði þá keypt í útlöndum.“ Hún bendir á að hártískan hafi líka sitt að segja og karlmenn nú til dags séu með töluvert minna hár en áður. Hún kveðst bjartsýn á yngri kynslóðina sem máski mun bæta hattamenninguna enn frekar. „Yngra fólkið er duglegt að lífga upp á sig og ófeimnara við slíkt. Kynslóðin sem er á miðjum aldri nú þekkir það síður að nota hatta,“ segir hún og kveðst sjálf ekki nota þá að staðaldri. „Hattur setur punktinn yfir i- ið,“ segir Kristín. „Nú notar fólk alls konar höfuðföt og öðruvísi – það eru meiri skemmtilegheit og fólk sækir í að nota hatta þegar eitthvað stendur til,“ útskýrir hún og bætir við að mikið sé spurt um pípuhatta sem þó séu því miður ekki til. „Ég hef verið með harð- kúluhatta og fleiri sígilda herra- hatta hér en konurnar koma mikið og leita að hárskrauti, höttum með slöri og fjöðrum og viðlíka.“ Á sínum tíma þótti það ákveðin yfirlýsing að bera höfuðfat á borð við hatt en í dag er slíkt ekki jafn- mikið stöðutákn og áður, til dæmis vegna aukins framboðs á fjölda- framleiddum höttum. Kristín seg- ist kaupa inn hatta frá Evrópu en á sínum tíma þóttu fínustu hatt- arnir koma frá Englandi. Fjöl- margar sérverslanir höndluðu með hatta en þeim fækkaði þegar túberingarnar komust í tísku enda vonlítið að ætla sér að tylla hatti ofan á slíkar upphækkanir. Hattabúð Reykjavíkur hefur þó verið starfrækt við Laugaveginn í bráðum sjötíu ár og kveðst Krist- ín hafa verið viðloðandi rekstur- inn í næsta helming þess tíma. Hún er því með það alveg á hreinu hvað skiptir mestu máli þegar kemur að hattakaupum. „Að hann sitji vel,“ segir hún, „og klæði þann sem notar hann – sami hattur- inn klæðir alls ekki alla. Fólk þarf að prófa sig áfram og falla vel við hattinn. Hann þarf að gera eitthvað fyrir þann sem ber hann.“ Gestir miðbæjarins eru dug- legir að kíkja til Kristínar og máta. „Sumir máta marga á meðan aðrir eru að leita að einum sérstökum – til dæmis týndum hatti en þá fær fólk náttúrlega sjaldnast aftur,“ segir hún sposk. … fá RJF-hópurinn og Einar S. Einarsson fyrir þrautseigju og óbilgirni í þágu Arons Pálma sem loksins er á leiðinni heim. „Já já, það er rétt. Ég er að láta prenta nýjan matseðil,“ segir Örn Guðmundsson, eigandi hins ágæta Grillhúss við Tryggvagötu. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins eru veitingahús landsins mörg hver að láta prenta nýja matseðla, ekki til að kynna nýja rétti, heldur nýtt verð á gömlum og góðum réttum. Fullyrt er að þetta hangi saman við þá stað- reynd að matarskattur lækkar 1. mars og veitingamenn að búa sig undir að hirða hýruna. Enda neyt- endur og launaþrælar því vanir að vera hlunnfarnir þegar opin- berar aðgerðir standa fyrir dyrum ætlaðar til að bæta þeirra hag. Eru nefndar tölur upp í 15 prósenta hækkun á venjulegum réttum. Örn segir það alveg rétt, fjöl- margir veitingamenn séu nú að láta prenta nýja matseðla, nánast yfir línuna, í því skyni að kynna nýtt verð. En það sé af og frá að lækkandi matarskattur sé ástæð- an fyrir hækkandi verði. „Ég er að hækka um einhver fjögur til fimm prósent. En það er ekki vegna lækkunar á matar- skatti. Þá mun ég lækka aftur. Ég hækkaði ekkert á síðasta ári. En árið 2006 hafa verðhækkanir dunið á mér. Gos og kjötvörur hafa hækkað gríðarlega og miklu meira en við höfum verið að hella út í verðlagið. Já, ef ég ætti að standa á núlli þyrfti ég að hækka um 15 prósent. En það getur maður ekki. Þá er maður búinn að vera.“ Að sögn Arnar er hækkunin birgjum að kenna. Og laun hafa stigið mikið. Erfitt er að fá fólk til vinnu og það vill fá vel borgað. Verulegar hækkanir á nýjum matseðlum
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.