Fréttablaðið - 09.02.2007, Síða 6

Fréttablaðið - 09.02.2007, Síða 6
 Lögð hefur verið fram á Alþingi tillaga um að samgönguráðherra láti meta kosti þess að gera göngubrú yfir Ölfusá við Selfoss og kostnað við framkvæmdina. „Með síaukinni umferð um Ölfusárbrú, ekki hvað síst þungaflutningum, er ljóst að þrengt hefur verið að gangandi umferð á brúnni. Því miður hafa oftsinnis orðið óhöpp við handrið sem aðskilur gangandi vegfarendur og ökutæki á Ölfusárbrú en hingað til hafa ekki orðið slys á fólki í þessum óhöppum,“ segir í greinargerð með tillögunni. Hún er nú lögð fram öðru sinni af sjö þingmönn- um Sjálfstæðisflokks, Samfylk- ingar og Frjálslynda flokksins. Vilja göngubrú yfir Ölfusá Kosningar til Stúdenta- ráðs Háskóla Íslands fóru fram í gær. Einnig var kosið um hverjir sitja Háskólafund næsta árið. Þrjár fylkingar buðu fram að þessu sinni: H-listinn, Röskva og Vaka. Í kosningunum var notuð miðlæg kjörskrá og stúdentar gátu því valið sér kjördeildir á háskólasvæðinu eftir hentugleika. Opið var í kjördeildum til klukkan 18. Úrslitin í kosningun- um lágu ekki fyrir þegar Frétta- blaðið fór í prentun í gær. Kosningar til Stúdentaráðs Hæstiréttur staðfesti í gær dóm Héraðs- dóms Reykjavíkur um að sýkna framkvæmdastjóra heildsölufyrirtækis fyrir að láta birta auglýsingar á áfengum bjór í tveimur dagblöðum í desember árið 2004. Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að auglýsingarnar væru brot á áfengislögum þar sem varan sem var auglýst hefði meira áfengismagn en 2,25 prósent. Talið var að birting auglýsinganna bryti í bága við bann áfengislaga við áfengisauglýs- ingum. Þrátt fyrir að birting auglýsinganna væri brot á áfengislögum komst Hæstiréttur að þeirri niður- stöðu að framkvæmdastjóri heildsölufyrirtækisins bæri ekki refsiábyrgð á auglýsingunum því á þeim kæmi hvorki fram nafn hans né auglýsandans. Eina nafnið sem kæmi fram í auglýsingunum væri nafn bjórframleiðandans og að það eina sem fram- kvæmdastjórinn hefði gert hefði verið að kaupa aug- lýsingarnar sem umboðsaðili bjórsins. Engin auðkenni í auglýsingunum vísuðu beint eða óbeint til hans eða fyrirtækis hans. Þess vegna staðfesti Hæstiréttur sýknudóminn og kvað á um að áfrýjunarkostnaður málsins, tæpar 500 þúsund krónur, skyldu greiðast úr ríkissjóði. Borgarráð Reykjavík- ur samþykkti í gær að taka tilboði í húsið Fríkirkjuveg 11 í Reykja- vík. Kaupandinn er Novator, fjár- festingafélag Björgólfs Thors Björgólfssonar, og kaupverðið er 600 milljónir króna. Þrjú önnur til- boð bárust í húsið, en leynd hvílir yfir þeim þrátt fyrir að húsið sé í opinberri eigu. Samkvæmt tilboði Novators verður húsinu og lóðinni komið í upprunalegt horf og þar sett á fót safn um Thor Jensen, langafa Björgólfs, sem reisti húsið á sínum tíma. Þegar tilboð voru metin var tekið tillit til fyrirætlana um notk- un hússins. Auk kaupverðsins kemur til greina að Björgólfur greiði allt að 200 milljónir króna til viðbótar vegna framkvæmda við húsið og lóðina. Húsið verður afhent ekki seinna en 1. september. Björn Ingi Hrafnsson, formað- ur borgarráðs, segir tilboð Novat- or hafa verið afgerandi best og talsvert hærra en hin tilboðin. Varðandi það hvers vegna leynd hvíli yfir tilboðunum sem hafnað var segir Björn að ákvæði hafi verið um það í upphaflegum skil- málum. Árni Þór Sigurðsson, borgar- fulltrúi Vinstri grænna, greiddi einn atkvæði gegn tillögu um að samþykkja tilboð Novators í borg- arráði í gær. Því verður málið end- anlega afgreitt á fundi borgar- stjórnar eftir um tvær vikur. „Ég er ekki alls kostar sáttur við hvernig þetta fór,“ segir Árni Þór. „Þó ég sé ekki andvígur því að hús í eigu borgarinnar séu seld þá er þetta mjög sérstakt hús á ein- stökum stað, og ég tel að sala til einkaaðila hljóti að rýra gildi Hall- argarðsins, sem húsið stendur í.“ Í tilboðinu sem samþykkt var segir að safnið eigi að vera sniðið að börnum þannig að þau hafi gagn og gaman af sýningunni sem á að vera gagnvirk og sett upp með nýj- ustu tækni. Á fyrstu hæð verði móttökusal- ur, fundarherbergi og framleiðslu- eldhús, og á annarri hæð verði gestaíbúð fyrir opinbera gesti borgarinnar sem og gesti eiganda. Björgólfur Thor reisir safn á Fríkirkjuvegi 11 Fríkirkjuvegur 11 verður seldur Björgólfi Thor Björgólfssyni á 600 milljónir króna. Þar verður safn um Thor Jensen, langafa Björgólfs, sem reisti húsið á sínum tíma. „Ekki alls kostar sáttur við söluna,“ segir fulltrúi Vinstri grænna í borgarráði. Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra kynnir áætl- un um hvernig rannsókn á með- ferðarheimilum fyrir börn á rík- isstjórnarfundi í dag. Hann segir nauðsynlegt að fleiri staðir verði kannaðir en Breiðavík, sem mjög hefur verið í umræðunni að und- anförnu. Ekki sé enn ljóst hvaða tímabil verði rannsakað. Litið verði til þess sem gert hefur verið í svipuðum málum í Noregi en þar var farið yfir fimmta til níunda áratug síðustu aldar. „Ég tel að stjórnvöld beri ábyrgð á þessu ástandi og því rétt að þau láti rannsaka þessi mál,“ segir Magnús. Hann segist hvorki vita um þann fjölda heimila sem þurfi að rannsaka né heldur þann fjölda sem sakaður hefur verið um harðræði í gegnum tíðina en fleiri staði en Breiðavík hafi hann heyrt nefnda. Verði upplýst um að brot hafi átt sér stað gegn börnum sé ekki ljóst hvort farið verði fram á refs- ingu gagnvart gerendum. Hann telur þó afar mikilvægt að komið verði til móts við þá sem sættu ofbeldi sem börn á heimilum á vegum ríkisins þótt ekki liggi enn fyrir með hvaða hætti það verður gert. Þær upplýsingar fengust hjá velferðarsviði, sem er meðal þeirra aðila sem nú eru að safna gögnum um heimilin, að fundað yrði um málið í næstu viku. Aðgerðir kynntar ríkisstjórn Eru fébætur við hæfi í Breiða- víkurmálinu? Finnst þér rétt að Reykjavíkur- borg selji Fríkirkjuveg 11? Bandaríska fyrirsætan og leikkonan Anna Nicole Smith lést í Flórídafylki í gærkvöldi. Hún var 39 ára. Lögfræðingur hennar segir að komið hafi verið að henni meðvitundarlausri á hótelherbergi sínu, hún hafi því næst verið flutt á sjúkrahús. Dánarorsök hennar væri ekki kunn. Á síðasta ári eignaðist Anna dóttur með Howard K. Stern, sambýlismanni og lögfræðingi. Skömmu síðar lést tvítugur sonur hennar. Anna var þekktust fyrir hjónaband sitt við milljarðamær- inginn J. Howard Marshall en hann var 63 árum eldri en hún. Þegar hann lést hófust miklar deilur um erfðamál en fjölskylda Marshalls hélt því fram að hún hefði aðeins gifst honum vegna peninganna. Því neitaði hún staðfastlega. Anna Nicole Smith látin Rán var framið í versluninni Samkaup í Sandgerði um klukkan sjö í gærkvöld. Maður um tvítugt kom inn í verslunina og skipaði afgreiðslu- stúlku að opna peningakassann. Hún hlýddi og maðurinn hvarf á brott með peningana. Að sögn fulltrúa lögreglunnar á Suðurnesjum er ekki vitað með vissu hversu miklum peningum var stolið úr peningakassa verslunarinnar, en maðurinn komst undan á hlaupum. Lögregla fékk greinargóða lýsingu á honum og leitar að honum, meðal annars í bílum sem eru á leið frá svæðinu. Ræningi ógnaði afgreiðslustúlku
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.