Fréttablaðið - 09.02.2007, Page 11

Fréttablaðið - 09.02.2007, Page 11
 Mikhaíl Khodorkovskí, fyrrverandi auðjöfur í Rússlandi, hefur sakað ráðamenn í Kreml um samsæri um að halda sér bak við lás og slá eftir að saksóknarar birtu nýjar ákærur gegn honum. Hann sagðist á miðvikudag ekki gera sér grillur um neitt annað en að verða sakfelldur. Khodorkovskí, sem þar til fyrir fjórum árum var aðaleigandi og forstjóri olíufyrirtækisins Yukos sem nú hefur verið ríkisvætt, er talinn hafa troðið Vladimír Pútín um tær með afskiptum af stjórnmál- um og var dæmdur í átta ára fangelsi fyrir skatta- lagabrot. Síðar á árinu yrði hann búinn að afplána helming dómsins í fangabúðum í Síberíu, en ætti þá að eiga möguleika á reynslulausn. Að nýju ákærurnar skuli koma fram nú – þingkosningar fara fram síðar á árinu og forsetakosningar á því næsta – vekur grunsemdir um að ráðamenn vilji halda Khodorkov- skí bak við lás og slá til að halda honum frá virkri stjórnmálaþátttöku. Sakar ráðamenn um samsæri Hægt er að kaupa símann í verslunum Símans eða á vefversluninni á siminn.is Sony Ericsson Z530i 14.900 Verð aðeins: kr. Kauptu þér glæsilegan Z530i farsíma eða skráðu þig í 0 kr. innan fjölskyldunnar og þú gætir átt lúxussalinn! Einn heppinn viðskiptavinur verður dreginn út og getur unnið forsýningu í lúxussal fyrir allt að 28 manns á hina frábæru gamanmynd Music and Lyrics með Hugh Grant og Drew Barrymore. Dregið verður 15. febrúar. Nánari upplýsingar á siminn.is. Síminn hagnaðist um 2,8 milljarða króna á síðari hluta ársins 2006. Tap ársins í heild nemur 3,6 milljörðum króna. Hluti skulda Símans er í erlendri mynt og olli gengislækkun krónunnar gengis- tapi upp á 5,8 milljarða króna. Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði og skatta (EBIT) jókst um 33,9 prósent á síðari helmingi ársins og nam 2,64 milljörðum króna. Fyrir árið í heild nam hann 4,6 milljörðum. Sala Símans á árinu nam rúmum 25 milljörðum króna. Var það aukning á milli ára um 15,7 prósent. Síminn tapaði 3,6 milljörðum Stjórn Verkalýðsfélags- ins Hlífar skorar á Alþingi að samþykkja að skattleysismörk tekjuskatts verði aldrei lægri en umsamin lágmarkslaun sem nú eru 125 þúsund krónur. Skattleysimörk- in eru 90 þúsund krónur. Hlíf segir að hefðu skattleys- ismörk fylgt launaþróun frá 1988 væru þau nú ekki undir 140 þúsund krónum á mánuði. Eftir skatt væru tæplega 112.500 krónur eftir af 125 þúsund króna mánaðarlaunum. „Slík laun eru það lág að þau duga ekki einstakl- ingi til eðlilegrar framfærslu og þess vegna eiga þau að vera tekjuskattlaus,“ segir stjórn Hlífar. Skattleysi við lágmarkslaun Á fimmta hundrað þátttakendur frá sautján löndum sitja ferðakaupstefnuna Mid- Atlantic í ár. Á þessari árlegu kaupstefnu Icelandair eru leiddir saman kaupendur og seljendur ferða- þjónustu í Evrópu og Bandaríkj- unum. Tilgangurinn með kaupstefn- unni er að halda við og auka ferðamannastraum til Íslands. Í tilkynningu Icelandair er heitið lífi og fjöri og litríkum sýningarbásum í anddyri Laugardalshallarinnar. Kaupstefnan stendur fram til 11. febrúar. Fjölmargir þátt- takendur í ár Loka þurfti fimm flugvöllum og nokkrum lestar- leiðum milli Englands og Wales í gær vegna mikillar snjókomu sem gekk yfir Bretlandseyjar. Fella þurfti 90 flug niður á Heathrow-flugvelli en ekki kom til lokunar. Flugvellirnir fimm í Luton, Stansted, Bristol, Birmingham og Cardiff voru opnaðir um miðjan dag eftir að flugbrautir höfðu verið ruddar. Breska veðurstofan varaði við mikilli snjókomu í Englandi, Wales og á Norður-Írlandi. Snjór hamlaði flugi í Bretlandi

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.